Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu

Björn Leví svar­aði með eigin jarmi

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins birti í dag meme eða jarm eins og það er stundum kallað á íslensku, þar sem skotið er föstum skotum á Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, utan­rík­is­ráð­herra. Píratinn fyrr­ver­andi Björn Leví Gunn­ars­son svar­aði hins vegar Sigmundu um hæl með öðru jarmi. Jarm er ein­hvers konar mynda­grín sem hefur verið vin­sælt á sam­fé­lags­miðlum síð­asta ára­tug­inn.

Jarm Sig­mundar Davíðs sýnir atriði úr heim­ild­ar­mynd um Beckham-hjónin bresku en David, nafni Sig­mundar, hvatti eig­in­konu sína til að vera heið­ar­lega í þætt­inum. Í jarm­inu sést Þor­gerður Katrín segj­ast vilja sjá hvað sé í boði og er þá átt við um kom­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald­andi samn­ings­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið. David biður hana um að vera heið­ar­lega og svarar Þor­gerður því til að hún sé heið­ar­leg. David ítrekar beiðni sína um að hún sé heið­ar­leg og þá segir Þor­gerður að hún segi hvað sem er til að kom­ast í ESB.

Björn Leví Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata svarar jarmi Sig­mundar á sínum eigin Facebook-vegg en í þar má sjá David biðja nafna sinn Sigmund um að vera heið­ar­legan eftir að hann seg­ist vilja bara ræða ógn­ina að utan, og að lokum segir Sig­mundur: „Ég vil að fólk horfi á útlend­inga en ekki til Wintris.“

Við færslu sína skrifar Björn Leví:

„Þessu dreifir Sig­mundur Davíð um póli­tískan and­stæð­ing sinn.

Það er þó nokkuð kald­hæðn­is­legt að SDG sé að ásaka póli­tíska and­stæð­inga um óheið­ar­leika. Að leggja þeim orð í munn svona.

Það væri álíka mál­efna­legt og ef Þor­gerður Katrín myndi dreifa mynd­inni af SDG sem ég læt fylgja með hérna. Ég get hins vegar auð­veld­lega dreift henni, þar sem ég bjó hana til á svip­aðan hátt og SDG lét lík­lega gera fyrir sig. Ég er hins vegar bara gaur út í bæ sem get auð­veld­lega gert grín að stjórn­mála­mönnum.

Sér­stak­lega þegar það er (að mínu mati og sam­kvæmt minni reynslu) satt.“

Mið­flokk­ur­inn hefur á árinu tapað miklu fylgi í skoð­ana­könn­unum en í jan­úar á þessu ári mæld­ist flokk­ur­inn með 22,2 pró­senta fylgi en er nú kom­inn í 13,4 pró­sent í skoð­ana­könnun Maskínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum