Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

TikTok-stjarna skotin til bana af eiginmanni sínum

Hafði sakað hann um barn­a­níð skömmu áður

TikTok-stjarna skotin til bana af eiginmanni sínum
Sara og Sean Sara hafði opin­berað Sean sem barn­a­níð­ing Mynd: Samsett

TikTok-áhrifa­vald­ur­inn Sara Gilson, 43 ára, var skotin til bana af eig­in­manni sínum, Jeremiah „Shawn“ Duffey, 48 ára, sem svipti sig síðan lífi á heim­ili þeirra í Owasso í Oklahoma aðfara­nótt föstu­dags. Lögregla rann­sakar málið sem heim­il­is­of­beldi og morð-sjálfs­víg (e. murder-suicide).

Lögregla var kölluð á vett­vang skömmu eftir klukkan 23 eftir að neyð­ar­lín­unni barst sím­tal þar sem til­kynnt var um skot­hvelli. Þegar lög­reglu­menn komu á stað­inn fundu þeir hjónin látin af skotsárum. Barn sem var inni á heim­il­inu hafði hringt í neyð­ar­lín­una og heyrð­ist kona öskra og gráta í bak­grunni sím­tals­ins.

Rann­sókn­ar­lög­regla telur að Duffey hafi skotið eig­in­konu sína til bana áður en hann beindi byss­unni að sjálfum sér. Lög­reglan segir enga hættu lengur steðja að almenn­ingi en rann­sókn máls­ins stendur enn yfir.

Gilson hafði fengið nálg­un­ar­bann á eig­in­mann sinn þann 10. júní sem gilti til 24. ágúst. Samkvæmt dóms­úr­skurði átti Duffey að halda sig í að minnsta kosti 100 metra fjar­lægð frá eig­in­konu sinni og yfir­gefa sam­eig­in­legt heim­ili þeirra.

Sama dag var einnig óskað eftir nálg­un­ar­banni gegn Duffey af hálfu móður 15 ára stúlku sem hann hafði þjálfað í körfu­bolta. Þar var honum meðal ann­ars gefið að sök að hafa sent stúlkunni óvið­eig­andi skila­boð, sýnt af sér óvið­eig­andi lík­am­lega snert­ingu og boðið þögg­un­ar­greiðslur.

Skömmu áður en skotárásin átti sér stað birti Gilson mynd­band á TikTok þar sem hún sak­aði eig­in­mann sinn um að vera barn­a­níð­ingur. Mynd­bandið fór í mikla dreif­ingu og hefur verið horft á það meira en tíu milljón sinnum.

Í kjöl­far and­láts hennar hefur verið hrundið af stað söfnun fyrir tvö börn þeirra hjóna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife