Helga Vala Helgadóttir og Grímur Atlason voru 29. júní að aflétta kaupmála af gamalli eign samkvæmt Lögbirtingablaðinu. Hjónin eiga tvö börn saman en samtals telja börnin á heimili þeirra fjögur þar sem bæði áttu barn úr fyrri samböndum.
Samband þeirra hófst í október 1999 þegar þau hittust út á lífinu. Þau hafa verið gift frá 2000 en í viðtali við Rás 2 sagði Grímur að þau hefðu bæði stundað nám við Menntaskólann í Hamrahlíð (MH) og hann hefði þekkti hana lítillega áður en upp frá þessu hafi þau fylgst að alla tíð síðan.
Hjónin hafa verið áberandi í samfélagsumræðunni og rætt um hjónabandið opinberlega.
Þegar Helga Vala stóð í ströngu í pólitík og mætti gagnrýni, skrifaði hún opinberlega á Facebook til að leiðrétta rangfærslur: „Rétt er að geta þess einnig, að gefnu tilefni, að ég er feikilega vel gift öflugum greinanda á samfélagið í nútíma- og sögulegu ljósi og er hann góður penni að auki.“
Grímur vísar oft óbeint eða beint til hennar sem einstaklega réttsýnnar og vinnusamrar manneskju, hvort sem það er á vettvangi stjórnmálanna eða í lögmennsku.
Helga Vala Helgadóttir hefur í gegnum feril sinn sem lögmaður og þingkona einkum barist fyrir mannréttindum, velferðarmálum, réttindum barna og gegnsæi í stjórnsýslunni. Hún hefur oft gagnrýnt útlendingastefnu íslenskra stjórnvalda á opinberum vettvangi og kallað hana mannfjandsamlega. Hún er hlynnt nánara samstarfi við Evrópu og situr í stjórn Evrópuhreyfingarinnar. Hún hefur gagnrýnt íslenska vaxtastigið, verðtryggingu og krónuna harðlega og tengt það m.a. við erfiða stöðu námsmanna í námslánakerfinu.
Grímur Atlason brennur fyrst og fremst fyrir hagsmunagæslu jaðarsettra hópa, bótum á geðheilbrigðiskerfinu og auknum mannréttindum í samfélaginu. Sem framkvæmdastjóri Geðhjálpar og menntaður þroskaþjálfi bendir hann iðulega á mikla innviðaskuld og fjárskort innan geðheilbrigðiskerfisins.
Fréttin hefur verið uppfærð:
Í upprunalegu fréttinni var því haldið fram að þau hafi verið að gera kaupmála en þau voru að aflétta kaupmála á gamalli eign. Beðist er velvirðingar á mistökunum.































Athugasemdir