Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Fólk með milljónir á mánuði veit ekkert hvernig er að lifa með krónunni“

„Við eigum að fá frið fyrir þeim sem njóta for­rétt­ind­anna“

„Fólk með milljónir á mánuði veit ekkert hvernig er að lifa með krónunni“
Signý Sig­urð­ar­dóttir Sakar elít­una um veru­leikafirr­ingu: „Mér er rosa­lega mis­boðið“ Mynd: Facebook/Signý Sigurðardóttir

Signý Sig­urð­ar­dóttir við­skipta­fræð­ingur og stjórn­mála­kona seg­ist hafa snöggreiðst þegar hún heyrði rök­stuðn­ing Áfram Íslands. Gagn­rýnendur Áfram Íslands telja mál­flutn­ing þeirra ein­kenn­ast af veru­leikafirr­ingu og að töl­fræði sé hag­rætt til að fegra stöð­una á íslenskum vinnu- og hús­næð­is­mark­aði. Vaxandi hiti er í umræð­unni um fram­tíð íslenska efna­hags­kerf­is­ins og gjald­mið­ils­ins og sú rök­semda­færsla að Ísland sé í „afburða­deild“ þegar kemur að vel­ferð almenn­ings mætir nú harðri and­stöðu frá fólki sem stendur í stríði við hátt vaxta­stig, verð­trygg­ingu og eft­ir­köst efna­hags­hruns­ins.

„Ég snöggreidd­ist í gær þegar ég átt­aði mig hvers konar mála­til­búnað elítan í Áfram Ísland hefur sett fram til að rök­styðja mál sitt um að við eigum að segja nei í ágúst.“

Horft fram hjá afleiðingum hrunsins

Gagn­rýnendur benda á að mál­flutn­ingur þeirra sem verja núver­andi kerfi taki iðu­lega mið af upp­haf­s­punktum í töl­fræði sem þjóni hags­munum þeirra, á meðan horft sé fram hjá hrun­inu og þeim var­an­lega skaða sem það olli á lífs­kjörum almenn­ings. Efna­hags­hrunið hafi ekki síst stafað af gagn­rýn­is­leysi og hjarð­hegðun innan við­skipta­lífs­ins, en afleið­ing­arnar hafi bitnað þyngst á venju­legu launa­fólki sem enn eigi erfitt upp­dráttar.

„Ég skil ekki hvernig það getur við­geng­ist að ég og við "venju­legt launa­fólk" á Íslandi þurfi að standa í stríði við elítu sem er með margar millj­ónir á mán­uði í tekjur og veit ekk­ert um það hvernig það er að þurfa að borga íslenska vexti af hús­næð­is­láni í hverjum mán­uði og að auki verð­trygg­ingu og verð­tryggða vexti af náms­láni.

Þetta er eitt­hvað svo stór­kost­lega rangt og kol­geggjað. Að þessi elíta telji sig hafa heim­ild til þess að setja fram tölur sem sýna mynd af því að Ísland sé í "afburða­deild" þegar að vel­ferð hins venju­lega manns kemur og nota til þess upp­haf­s­punkt sem hentar þeirra mál­flutn­ingi. Tekur ekki hrunið með í reikn­ing­inn - hrunið sem eyði­lagði líf okkar margra - leiddi til þess að við áttum ekki sjens eftir það,“ segir Signý í opin­berri færslu.

Ekki enn komin með milljón á mánuði í tekjur

„Mér er rosa­lega mis­boðið og mér er alveg nákvæm­lega sama þó að það fari í illa í ein­hvern.

Það er algjör­lega morg­un­ljóst í mínum huga að fólk með margar millj­ónir í tekjur á mán­uði hefur enga vigt í þess­ari umræðu. Enga. Það veit ekk­ert um það hvernig það er að lifa með íslenskri krónu frá mán­uði til mán­aðar alla ævina. Hefur ekki hug­mynd.

Sú er þetta ritar orðin 63 ára og borgar enn 150.000 af 20 millj­óna króna hús­næð­is­láni og 30.000 kr. af náms­láni. Búin að vera á vinnu­mark­aði alla tíð síðan ég var 15 ára þar til mér var útskúfað eftir hrun en náði mér á strik aftur síð­ustu tvö ár. Ekki enn komin með milljón á mán­uði í tekjur.

Mér finnst það ekki í lagi að hafa þurft að upp­lifa hrunið á Íslandi fyrir 18 árum síðan og að sama elíta og kom okkur þangað fái að standa í vegi fyrir því að við fáum að eiga sjens á að losna undan krón­unni.

Hrunið sner­ist ekki um "vonda ein­stak­linga" eins og margur hefur viljað halda fram. Hrunið sner­ist um hjarð­hegðun og gagn­rýn­is­leysi heils hóps í við­skipta­lífi lands­ins sem leyfði öllu að keyra hér fram af brún­inni án þess nokkurn tíma að reyna að stöðva það sem var í gangi.

Þessi hópur virð­ist nú ætla að koma í veg fyrir að við fáum að eiga mögu­leika á að breyta efna­hags­um­hverfi okkar til fram­tíðar.

Það kemur ein­fald­lega ekki til mála. Þessi hópur á ekki að hafa neina vigt í þeirri ákvörðun sem framundan er.

Við eigum að fá frið fyrir þeim sem njóta forr­rétt­ind­anna.

Það er algjör­lega morg­un­ljóst og á ekki að þurfa að segja það einu sinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina