Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lætur Nei-sinna fá á baukinn í nýjum texta við sígilt lag

„Hafi hann sæll ort og megi þessi jákvæði bragur hljóma sem víð­ast.“

Lætur Nei-sinna fá á baukinn í nýjum texta við sígilt lag
Hall­grímur Helgason Hall­grímur kann að ýfa fjaðrir. Mynd: Golli

Hall­grímur Helgason, rit­höf­undur og list­mál­ari hefur samið nýjan texta við lag Svein­björns Bald­vins­sonar, Lagið um það sem er bannað. Þar dregur Hall­grímur Nei-sinn­ana í ESB-umræð­unni sundur og saman í háði.

Í nýja text­anum, sem Hall­grímur birti fyrir síð­ustu helgi á Facebook, gerir hann stólpa­grín að þeim sem ætla sér að segja Nei í kom­andi atkvæða­greiðslu um áfram­hald­andi við­ræður um Evr­ópu­sam­bands­að­ild Íslands. Þar fær Morg­un­blaðið á bauk­inn sem og nafn­tog­aðir Nei-sinnar. Þá minn­ist rit­höf­und­ur­inn á syst­urnar, þær Guðríði og Gyðu, sem er hug­ar­smíði Eddu Björg­vins­dóttur en þar leikur hún for­herta forr­rétt­inda­konu, sem er með flest á hornum sér.

Höfundur upp­runa­text­ans, Svein­björn Bald­vins­son hrósar Hall­grími fyrir nýja text­ann í Facebook-færslu þar sem hann segir:

„Ljómandi kvæði hjá Hall­grími Helga­syni. Hafi hann sæll ort og megi þessi jákvæði bragur hljóma sem víð­ast.“

Hér má sjá nýju útgáfu Hall­gríms:

Lagið um það sem er bannað

Það má ekki prófa að segja já
og ekki einu sinni fá að sjá.
Við eigum bara að hlýða
og setja kross við Nei-ið,
þá ríka fólkið verður allt svo fegið.

Það má ekki skoða betra lán
og ekki gera sam­an­burð við Spán
og ekki tala um fisk­inn
án þess að spyrja herra
því hann er ekki okkar heldur þeirra.

Þetta nei­kvæða lið er svo skrýtið.
Það er alltaf að skamma mann.
Þó maður geri ekki neitt,
það er alltaf að skamma mann.

Það má ekki lækka verð á mat
því ann­ars borðar þjóðin á sig gat.
Bara vera áfram
í tveimur þremur vinnum
og borga húsið þrisvar fjórum sinnum.

Það má ekki tala um ESB.
Það má bara hlusta á ÓRG
og lesa langar greinar
frá Halla, Sollu, Villa.
Þau eru klár og þekkja marga milla.

Þetta nei­kvæða lið er svo skrýtið.
Það er alltaf að skamma mann.
Þó maður geri ekki neitt,
það er alltaf að skamma mann.

Það má ekki prófa eitt­hvað nýtt.
Allt er svart þótt sýn­ist vera hvítt.
Og ekki kíkja í pakk­ann,
það fúla fyr­ir­bæri.
Í honum eru bara tæki­færi.

Það má ekki segja Guten Tag
og ekki finna ást­ina í Prag.
Bara vera heima
og borga krónu­skatt­inn
því evran hún er verri en sjálfur skratt­inn.

Þetta nei­kvæða lið er svo skrýtið.
Það er alltaf að skamma mann.
Þó maður geri ekki neitt,
það er alltaf að skamma mann.

Við eigum bara að hlusta á SFS
og þá sem voru á móti EES
en eru núna með því
og líka á ömmu og afa
sem hringja úr íbúð­inni á Costa Brava.

Það má aldrei breyta neinu hér,
þá getur eng­inn vitað hvernig fer.
Því hér er best að búa
og best að eiga krakka
og það er ekki Þorgerði að þakka!

Þetta nei­kvæða lið er svo skrýtið.
Það er alltaf að skamma mann.
Þó maður geri ekki neitt,
það er alltaf að skamma mann.

Það má ekki heldur gera grín
að þeim sem þamba Nei-ið eins og vín.
Þær Guðríður og Gyða,
þær eiga flottar bokkur
og eiga líka kvót­ann fyrir okkur.

Það má ekki horfa á for­sætis-
ráð­herra í Rest is Politics.
Við gætum skipt um skoðun
og kosið eitt­hvað annað,
eitt­hvað sem að Mogginn hefur bannað.

Þetta nei­kvæða lið er svo skrýtið.
Það er alltaf að skamma mann.
Þó maður geri ekki neitt,
það er alltaf að skamma mann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum