Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ráðist gegn rekstri Fúsa handboltakappa

„Verulega illa gert og getur haft skað­leg áhrif“

Ráðist gegn rekstri Fúsa handboltakappa
Sigfús Sig­urðs­son ósáttur við falska lok­un­ar­til­kynn­ingu á Google Mynd: Facebook/Sigfús Sigurðsson

Einhver miður skemmti­legur ein­stak­lingur til­kynnti til Google að Fiskbúð Fúsa væri lokuð. Sigfús Sig­urðs­son, eig­andi búð­ar­innar og fyrrum lands­liðs­maður í hand­bolta, segir svona skemmd­ar­verk geta haft alvar­legar afleið­ingar fyrir sitt lífs­við­ur­væri.

Sigfús Sig­urðs­son, jafnan kall­aður Fúsi, birti færslu á sam­fé­lags­miðlum sínum þar sem hann greinir frá því að vef­svæði fisk­búðar hans á Google hafi verið hnekkt. Búðin var sögð ýmist tíma­bundið eða alfarið lokuð í leit­ar­vélum eftir að svokölluð ábend­ing þess efnis var send inn.

„Það var ein­hver miður góður/skemmti­legur ein­stak­lingur sem sendi inn 'ábend­ingu/ar' til google um að það væri búið að loka búð­inni hjá okkur og þegar búðin var googluð þá kom upp að hún væri alfarið lokuð eða tíma­bundið lokuð,“ skrifar Fúsi á síðu sína.

Þurfti að senda myndbönd til Google

Fúsi segir að búið sé að leysa málið en ferlið hafi kraf­ist tölu­verðrar vinnu. Til þess að sanna að rekst­ur­inn væri enn opinn þurfti hann að senda inn stað­fest­ing­ar­mynd­bönd, ljós­myndir og skrif­leg svör til tækniris­ans.

„Það er búið að kippa þessu í lið­inn eftir nokkur stað­fest­ingar video, myndir og svör,“ segir Fúsi.

Hann leggur áherslu á að þótt búið sé að leið­rétta vill­una, þá geti tjónið setið eftir. Svona skemmd­ar­verk flækja líf sjálf­stætt starf­andi kaup­manna og geta fælt við­skipta­vini frá sem treysta á upp­lýs­ingar á net­inu.

„Þó að það sé búið að kippa þessu í lið­inn þá hefur þetta áhrif og er veru­lega illa gert, getur haft skað­leg áhrif á rekst­ur­inn og mitt lífs­við­ur­væri,“ útskýrir hann.

Frá harðjaxli á vellinum í farsælan kaupmann

Sigfús á að baki glæstan íþrótta­feril og er í hópi þekkt­ustu línu­manna. Hann var lyk­il­maður í hinu goð­sagna­kennda „Silf­ur­liði“ Íslands sem vann til silf­ur­verð­launa á Ólymp­íu­leik­unum í Peking árið 2008. Hann lék sömu­leiðis um ára­bil sem atvinnu­maður erlendis og var þekktur fyrir mikla hörku, elju og hjarta, bæði í vörn og sókn.

Fúsi hefur verið opin­skár með þær áskor­anir sem mættu honum eftir að íþrótta­ferl­inum lauk. Hann hefur farið mik­inn í umræð­unni um bar­áttu sína við alkó­hól­isma og fjár­hags­vand­ræði, en hann hefur nú verið alls­gáður og edrú í tæp þrjá­tíu ár.

Árið 2018 hóf hann nýjan kafla í líf­inu þegar hann opn­aði Fiskbúð Fúsa í Skip­holti í Reykja­vík. Búðin hefur síðan þá verið hans helsta lífs­við­ur­væri.

Tekur á móti fólki með bros á vör

Fúsi lætur þetta nýjasta til­ræði gegn rekstr­inum þó ekki eyði­leggja fyrir sér dag­inn og lýkur færsl­unni á jákvæðum nótum til vina sinna og við­skipta­vina:

„Hlakka til að afgreiða ykkur með bros á vör eins flest alla daga. Kær kveðja Fúsi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð