Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

„Hættið að fela börnum að teikna klámmyndir“

Sigmundur tengir saman PISA-niður­stöður og kynfræðslu

Sigmundur Davíð hjólar í grunnskólakerfið
Sig­mundur Davíð hjólar í grunn­skóla­kerfið Mynd: RÚV-skjáskot

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, fer hörðum orðum um stöðu íslenska grunn­skóla­kerfisins í nýrri færslu á persónulegri Facebook-síðu sinni. Þar tengir hann saman slæmt gengi íslenskra nemenda í alþjóð­legum rann­sóknum og áherslur í kynfræðslu sem hann telur farnar út fyrir öll velsæmis­mörk.

Hræðilegar niðurstöður í dýrasta kerfinu

Tilefni færslunnar er nýleg útkoma PISA-könnunarinnar, sem sýndi áfram­haldandi hnignun í læsi, stærð­fræði og náttúru­vísindum hér á landi. Sigmundur lýsir stöðunni sem mikið áhyggju­efni og sparar ekki stóru orðin þegar kemur að fjár­mögnun kerfisins í samhengi við árangurinn.

„Niður­stöður Pisa-könnunarinnar eru hræðilegar. Dýrasta grunn­skólakerfi heims fær verstu niður­stöður þróaðra ríkja,“ skrifar Sigmundur á síðu sína.

Vill að skólar hætti að láta teikna klám

Hann lætur þó ekki staðar num við tölfræðina heldur snýr spjótum sínum að innihaldi kennslunnar og þeirri umræðu sem verið hefur áberandi um kynfræðslu­efni í grunn­skólum. Gengur hann svo langt að leggja til róttækar breytingar á forgangs­röðun skólanna til að rétta af afleidda stöðu í bóklegum fögum.

„Ég ætla að fara alveg út á ystu nöf og leggja til að skólarnir hætti að fela börnunum að teikna klám­myndir og noti tímann sem sparast til að kenna þeim að lesa,“ bætir formaðurinn við.

Vísar á sýnidæmi í athugasemdum

Sigmundur kaus að deila ekki dæmum um það efni sem hann vísar til beint í færslunni sjálfri, en bendir lesendum á athugasemda­kerfið til nánari glöggvunar.

„Ég ákvað að láta myndefni ekki fylgja færslunni þótt granda­lausum kjósendum hafi verið boðið upp á slíkt í kosningum. Í athugasemd má þó finna tengil á sýnidæmi.“

Ummælin hafa þegar vakið mikla athygli og líklegt er að þau muni kynda enn frekar undir umræðuna um bæði menntamál og inntak kynfræðslu í íslenskum skólum á næstunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.
Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi bið ríkisstjórnarinnar með hagræðingu. Kristrún Frostadóttir segir tillögur væntanlegar á næstu dögum.
  • „Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum