Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Rektorar svara ásökunum Hannesar

„Röng ályktun að evrópskir styrkir feli í sér keypta hollustu“

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus og Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor emeritus og Silja Bára Ómars­dóttir, rektor Háskóla Íslands Mynd: Samsett mynd

Rektorar íslenskra háskóla hafna því alfarið að íslenskir fræðimenn séu á launum hjá Evrópu­sambandinu eða að erlendir rannsóknar­styrkir felist í pólitísku mútufé. Þetta kemur fram í grein sem rektorarnir birta í Morgun­blaðinu í dag undir yfir­skriftinni „Alþjóð­legir rannsóknar­styrkir í þágu samfélagsins alls“. Greinin er skrifuð í kjölfar ásakana Hannesar Hólmsteins Gissurar­sonar á hendur nafn­greindum fræði­mönnum.

Deilurnar hófust eftir að Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, fullyrti í sjónvarps­þættinum Spursmálum að tilteknir íslenskir fræðimenn væru „beinlínis á launum hjá Evrópu­sambandinu“. Hannes vísaði þar sérstak­lega til rannsóknar­styrkja sem fræði­mennirnir hefðu hlotið og sagði í viðtalinu að með þessum hætti hefði Evrópu­sambandið hreinlega keypt sér hollustu þeirra í umræðunni.

Alþjóðlegt jafningjamat en ekki pólitísk skoðun

Í grein sinni svara rektorarnir, með Silju Báru Ómars­dóttur, rektor Háskóla Íslands, í broddi fylkingar, þessum full­yrðingum af hörku. Rektorarnir segja málflutning Hannesar byggja á grundvallar­misskilningi á því hvernig alþjóðlegt styrkja­kerfi háskóla virkar.

„Við rektorar háskóla á Íslandi birtum grein í Morgun­blaðinu í dag, um mikilvægi alþjóðlegra rannsókna­styrkja fyrir háskóla­starf á landinu og samfélagið allt,“ segir Silja Bára um greinar­skrifin. Í greininni sjálfri árétta rektorarnir að alþjóð­legir samkeppnis­sjóðir starfi eftir ströngustu faglegu kröfum:

„Erlendir rannsókna­styrkir eru viðurkenning á faglegum gæðum rannsókna og getu rann­sakenda til að standast alþjóð­legan samanburð.“

Þeir benda á að ferlið fari fram í gegnum óháð alþjóðlegt jafningjamat þar sem rannsóknar­áætlanir eru metnar út frá vísinda­legu gildi þeirra, en ekki út frá stjórnmála­skoðunum umsækjenda. Það sé því „röng ályktun að evrópskir rannsókna­styrkir feli í sér keypta hollustu við Evrópu­sambandið.“

Mikilvæg innspýting fyrir íslenskt samfélag

Rektorarnir lýsa yfir áhyggjum af því að alþjóðlegt vísinda­starf sé dregið niður í pólitískar skot­grafir og undir­strika mikilvægi þessara sjóða fyrir íslenskt samfélag í heild. Um sé að ræða gríðar­lega mikilvæga fjár­mögnun sem nýtist til þekkingar­sköpunar, nýsköpunar og menntunar á Íslandi, fremur en að þjóna pólitískum hagsmunum erlendra ríkja eða stofnana.

Auk Silju Báru Ómars­dóttur standa að greininni rektorar hinna íslensku háskólanna: Áslaug Ásgeirs­dóttir, Kristín Eysteins­dóttir, Ólína Kjerúlf Þorvarðar­dóttur, Ragn­heiður I. Þórarins­dóttir og Ragnhildur Helga­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra