Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Linda P var rúmliggjandi af liðagigt

„Erfitt að trúa því að þetta sé sama manneskjan“

Linda Péturs opnar sig um tímann þegar hún gat ekki sinnt sér sjálf
Linda Péturs opnar sig um tím­ann þegar hún gat ekki sinnt sér sjálf Mynd: Skjáskot

Linda Péturs­dóttir deildi einlægri og hvetjandi sögu á samfélags­miðla­síðu sinni. Þar lýsir hún því hvernig hún sigraðist á alvarlegum veikindum og hvernig hugarfars­breyting og seigla hjálpuðu henni að snúa lífi sínu við.

Árið 2010 stóð Linda frammi fyrir einni stærstu áskorun lífs síns þegar hún veiktist alvarlega af liðagigt. Á þeim tíma var hún einstæð móðir með fjögurra ára gamla dóttur og átti oft í erfið­leikum með að sinna einföldustu hlutum.

„Suma daga var ég svo verkjuð og bólgin að ég gat ekki sinnt sjálfri mér, hvað þá hjálpað henni með allt það sem ég var vön að gera fyrir hana daglega,“ segir Linda í færslunni og bætir við að dóttir hennar hafi stundum þurft að hjálpa henni að matast. „Þetta voru mjög erfiðir tímar. Ég fór reglulega í lyfja­gjafir og vissi ekki hvernig fram­haldið yrði.“

Seiglan tvíefldist við móðurhlutverkið

Linda útskýrir að sem einstæð móðir hafi hún fljótt áttað sig á því að hún yrði að gera allt sem í hennar valdi stóð til að breyta stöðunni. Hún segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á sjálfs­vinnu og að hún sé gædd mikilli seiglu, en sú seigla hafi „tvíeflst“ þegar hún varð móðir. Hún hóf að rannsaka hvað hún gæti sjálf gert til að bæta heilsu sína, breytti hugsunar­hætti sínum og tók upp hollara mataræði ásamt nýjum og heil­brigðum lífsstíls­venjum sem hún fylgir enn þann dag í dag.

„Með hverju árinu hefur áherslan á heilsuna aukist og í dag er það mér jafn mikilvægt að efla mig líkamlega og andlega,“ segir hún.

Erfitt að trúa breytingunni

Þegar Linda horfir til baka á myndir frá árinu 2010 segir hún erfitt að trúa því að um sömu manneskjuna sé að ræða, en sextán ár eru liðin síðan hún stóð í ströngustu barátt­unni. Hún bendir á að fólk eigi það til að horfa á núverandi stöðu sína og nota hana sem mæli­kvarða á það hvað sé mögulegt í fram­tíðinni.

„En staðan þín í dag er ekki framtíðin þín. Tíma­bundnir erfið­leikar þurfa ekki að ákvarða hvað verður mögulegt fyrir þig síðar,“ skrifar Linda.

Linda notar eigin reynslu til að hvetja og styðja aðra sem ganga í gegnum erfið­leika. Hún boðar til ókeypis örnámskeiðs undir heitinu Nýir mögu­leikar, þar sem hún ætlar að aðstoða fólk við að sjá lengra en núverandi aðstæður og opna á ný tækifæri í lífinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni