Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa borist tvær tilkynningar um menn sem sagðir eru hafa elt börn í Árbæ og boðið þeim far. Málin eru nú til rannsóknar.
Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir í samtali við mbl.is að tilkynningarnar hafi borist frá foreldrum í gegnum vef lögreglunnar í síðustu viku.
Lögregla ræddi við forráðamenn barnanna eftir að tilkynningarnar bárust en enn liggja litlar upplýsingar fyrir um mennina.
Hjördís segir lögreglu taka málin mjög alvarlega og hvetur foreldra til að hringja strax í lögreglu ef sambærileg atvik koma upp, fremur en að senda tilkynningu í gegnum vefinn.































Athugasemdir