Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ísland hefur sæti landsins ávallt mannað“

Fulltrúi Íslands ekki meðal þeirra sem gengu út þegar Benjamin Net­anyahu steig í pontu hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum í gær.

„Ísland hefur sæti landsins ávallt mannað“
Sam­ein­uðu þjóð­irnar Fjöl­margir yfir­gáfu sal­inn, en full­trúi Íslands sat sem fast­ast. Mynd: TIMOTHY A. CLARY / AFP

Fulltrúi Íslands yfir­gaf ekki sal alls­herj­ar­þings Sam­ein­uðu þjóð­anna þegar Benjamín Net­anjahú, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, flutti þar ræðu í gær. Full­trúar fjölda ríkja gengu hins vegar út í mót­mæla­skyni vegna þjóð­ar­morðs Ísraels á Gaza.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra var ekki við­stödd þegar Net­anjahú steig í pontu. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu var hún á sama tíma stödd á við­burði um stuðn­ing við UNRWA, flótta­manna­að­stoð Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir Palest­ínu­menn. Fyrr um dag­inn hafði hún einnig tekið þátt í ráð­herra­fundi um tveggja ríkja lausn­ina.

Í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Mannlífs um það hvers vegna full­trúi Íslands hafi ekki gengið út eins og flestir aðrir full­trúar, segir Ægir Þór Eysteins­son, fjöl­miðla­full­trúi utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, að full­trúi fasta­nefndar Íslands í mann­rétt­inda­málum hafi setið í sæti Íslands á fund­inum.

„Fulltrúi fasta­nefndar Íslands í mann­rétt­inda­málum sat í sæti Íslands. Ísland, eins og önnur nor­ræn ríki, hefur sæti lands­ins ávallt mannað í umræðum í ráð­herra­viku alls­herj­ar­þings Sam­ein­uðu þjóð­anna,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Íslensk yfir­völd ákváðu í mars síð­ast­liðnum að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóða­dóm­stólnum í Haag. Í fyrra gaf Alþjóða glæpa­dóm­stóll­inn út hand­töku­skipun á hendur Benjamín Net­anyahu, vegna þeirra stríðs­glæpa sem framdir hafa verið á Gaza.

Hálftómur salur

Samkvæmt AP-frétta­stof­unni var sal­ur­inn hálf­tómur þegar Net­anjahú flutti ræðu sína. Við upp­haf hennar fögn­uðu sumir við­staddir for­sæt­is­ráð­herr­anum en aðrir púuðu og gengu út.

Í ræðu sinni hafn­aði Net­anjahú ásök­unum um að Ísrael fremdi þjóð­ar­morð á Gaza og kall­aði þær „stærstu lygi ald­ar­innar“.

„Ef það eru ein­hverjir aðrir sið­ferð­is­legir hug­leys­ingjar sem hafa ekki enn yfir­gefið sal­inn, vin­sam­leg­ast gerið það núna,“ sagði hann.

Síðar í ræð­unni sagði hann að árásir Ísraels á Íran hefðu verið „ein auð­veldasta ákvörðun sem ég hef nokkurn tíma þurft að taka.“

Mahmoud Abbas, for­seti Palest­ínu, gat ekki mætt á alls­herj­ar­þingið eftir að banda­rísk stjórn­völd synj­uðu honum á ný um vega­bréfs­á­ritun. Hann ávarp­aði því þingið á mynd­skeiði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi