Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

„Ráð­herr­ann er ein­fald­lega ekki trú­verð­ugur“

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Magga Stína er lítt hrifin af utan­rík­is­ráð­herr­anum Mynd: BHJ

Söng­konan og aðgerðasinn­inn Margrét Blöndal, oft­ast kölluð Magga Stína, segir enga ástæðu til að hríf­ast af ræðu Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna, þrátt fyrir að ræðan hafi vakið mikla athygli og jákvæð við­brögð víða en þar svarar hún ræðu Benja­mins Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels.

Margrét skrifar athuga­semd við Facebook-færslu Þórólfs J. Dags­sonar þar sem ræða utan­rík­is­ráð­herr­ans er birt. Hún gagn­rýnir þar bæði ráð­herr­ann og rík­is­stjórn­ina harð­lega vegna afstöðu Íslands til stríðs­ins á Gaza.

„Skil ég það rétt að þú rekir mig upp úr sóf­anum fyrir ræðu utan­rík­is­ráð­herra sem hún flutti á als­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna í gær? Ef svo er, vil ég svara þér því þannig að það er engin ástæða til að hríf­ast nokkuð af þeirri ræðu. Þvert á móti,“ skrifar Margrét.

Hún segir orð utan­rík­is­ráð­herr­ans ekki vera trú­verðug og gagn­rýnir jafn­framt vett­vang­inn sem ræðan var flutt á.

„Orð hennar rista jafn­djúpt og tárin sem féllu á sama vett­vangi fyrir ári síðan. Ráð­herr­ann er ein­fald­lega ekki trú­verð­ugur. Vett­vang­ur­inn sem hún talar á ekki heldur,“ skrifar hún.

Margrét beinir sér­stak­lega gagn­rýni að sam­skiptum íslenskra stjórn­valda við ísra­elsk stjórn­völd og segir Þorgerði Katrínu ekki hafa gengið nægi­lega langt í gagn­rýni sinni á Ísrael.

„Þor­gerður Katrín hefur ein­ungis talað um ísra­elsk stjórn­völd sem "vini okkar á villi­götum" eins og hún orð­aði það víst á sínum tíma,“ skrifar hún.

Hún segir utan­rík­is­ráð­herr­ann ekki hafa sýnt í verki vilja til að bregð­ast við því sem hún sjálf kallar þjóð­ar­morð á Gaza.

„Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir hefur ekki sýnt í verki nokkra til­burði til að horfast í augu við þann glæp gegn mann­kyni sem verið er að fremja í Palest­ínu eða að henni sé yfir höfuð í mun að hlíta alþjóða­lögum eins og henni ber skylda til þegar hún verður vitni að þjóð­ar­morði.“

Margrét gagn­rýnir einnig orð­notkun ráð­herr­ans og segir hana hafa talað um þjóð­ar­morðið í Rúanda í ræðu sinni en ekki notað sama orð um ástandið á Gaza.

„Þjóð­ar­morð er orð sem hún hefur alls ekki uppi um þjóð­ar­morðið á Gaza, þjóð­ar­morðið sem framið er á palest­ínsku þjóð­inni. Hún tal­aði um þjóð­ar­morðið í Rwanda en minnt­ist ekki á þetta þjóð­ar­morð.“

Hún gagn­rýnir jafn­framt rík­is­stjórn­ina fyrir sam­skipti við ísra­elsk fyr­ir­tæki og segir þau fela í sér áfram­hald­andi stuðn­ing við Ísrael.

„Hún og hennar rík­is­stjórn hafa brugð­ist við þjóð­ar­morð­inu á Gaza með áfram­hald­andi og auknum við­skiptum við ísra­elsk fyr­ir­tæki og ekki ber á neinu öðru en áfram­hald­andi stuðn­ingi hennar og rík­is­stjórn­ar­innar við þjóð­ar­morðið.“

Margrét segir jafn­framt að stjórn­völd hafi aukið þátt­töku Íslands í alþjóð­legum hern­að­ar­málum og gagn­rýnir ráð­herr­ann fyrir að tala um frið á sama tíma og hún styðji aukin útgjöld til varn­ar­mála.

„Hún leyfir að tala um frið á sama tíma og hún lofar stríð­herrum heims­ins auknum fjár­úlátum til vopna­kaupa til drápa á almennum borg­urum.“

Þá gagn­rýnir Margrét afstöðu stjórn­valda til flótta­fólks og minni­hluta­hópa og segir hana ósam­ræm­ast áherslum utan­rík­is­ráð­herr­ans á mann­rétt­indi.

„ÞKG leyfir sér að tala um mann­rétt­indi minni­hluta­hópa á meðan hún stendur fyrir þeim aukna fas­isma sem við öll erum vitni að hér á landi gagn­vart minni­hlut­hópum, eins og flótta­fólki sem flýr þjóð­ar­morð og stríð sem hún styður.“

Að lokum segir Margrét að hún muni ekki láta ræðu utan­rík­is­ráð­herr­ans sann­færa sig um breytta stefnu stjórn­valda.

„Ég blind­ast því ekki af inni­halds­lausum setn­ingum um "ástandið á Gaza" úr munni Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur.“

Hún lýkur færsl­unni með til­vísun í spurn­ing­una „Who are the REAL moral cowards?“ og segir:

„Svar mitt við þeirri spurn­ingu er: Það fólk sem styður við þjóð­ar­morð, beint, og óbeint og því miður hefur utan­rík­is­ráð­herra til­heyrt þeim hópi en Þòròlfur Júlían Dagsson, ég verð fyrst til að spretta upp úr sóf­anum þegar ég sé rík­is­stjórn Íslands sinna ófrá­víkj­an­legri skyldu sinni sam­kvæmt alþjóða­lögum um að gera allt sem í hennar valdi stendur til að stöðva og koma í veg fyrir þjóð­ar­morð. Þær vita nákvæm­lega hvað þær eiga að gera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum