Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Stöðv­unum verður meðal ann­ars skylt að halda raf­ræna skrá yfir allar seldar ferðir

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Leigu­bílar í mið­borg­inni Mynd: BHJ

Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hefur gert umfangs­miklar breyt­ingar á reglu­gerð um leigu­bif­reiða­þjón­ustu sem miða að því að efla eft­ir­lit með starf­sem­inni og tryggja neyt­endum örugg­ari og skil­virk­ari þjón­ustu.

Flestar breyt­ing­arnar hafa þegar tekið gildi en ákvæði um sér­stök skrán­ing­ar­merki leigu­bif­reiða tekur gildi 1. apríl 2027.

Með breyt­ing­unum eru auknar skyldur lagðar á Sam­göngu­stofu, leyf­is­hafa og leigu­bif­reiða­stöðvar. Sam­göngu­stofu verður meðal ann­ars gert að fram­kvæma árlegt eft­ir­lit með leyf­is­höfum og koma á sér­stöku áhættu­mats­kerfi. Frekara eft­ir­lit verður síðan byggt á nið­ur­stöðum þess mats.

Sam­göngu­stofa skal jafn­framt gera árlega skýrslu um fram­kvæmd eft­ir­lits og hafa reglu­bundið eft­ir­lit með við­ur­kenndum nám­skeiðs­höld­urum. Þá er kveðið á um að próf­taka vegna leigu­bif­reiða­akst­urs skuli fara fram án utan­að­kom­andi aðstoðar.

Nýjar kröfur eru einnig gerðar til leigu­bif­reiða­stöðva. Þeim ber að setja sér hátt­ern­is­reglur og birta þær auk þess að halda raf­ræna atvika­skrá þar sem skráð verða frá­vik í starf­semi, brot á lögum og kvart­anir neyt­enda.

Stöðv­unum verður einnig skylt að halda raf­ræna skrá yfir allar seldar ferðir. Upp­lýs­ingar úr skránni skulu vera eft­ir­lits­að­ilum aðgengi­legar í raun­tíma í gegnum örugga vef­gátt.

Kröfur um upp­lýs­inga­gjöf til far­þega verða jafn­framt hertar. Ítar­legri ákvæði gilda nú um fram­setn­ingu verð­skrár og sýni­leika leyf­is­skír­teina í leigu­bif­reiðum.

Leyf­is­höfum verður auk þess skylt að til­kynna Sam­göngu­stofu um úrskurði eft­ir­lits­að­ila, svo sem Neyt­enda­stofu, vegna lög­brota. Slík brot geta jafn­framt verið metin sem brot gegn góðum við­skipta­háttum og leitt til svipt­ingar leyfis.

Ein sýni­leg­asta breyt­ingin tekur þó ekki gildi fyrr en 1. apríl 2027. Frá þeim tíma verða leigu­bif­reiðar auð­kenndar með sér­stökum lit­uðum skrán­ing­ar­merkjum. Sérstök reglu­gerð verður sett um útfærslu þeirra.

Miklar deilur og ósætti

Breyt­ingar inn­við­a­ráð­herra á reglu­gerð um leigu­bif­reiða­þjón­ustu eru nýjasti kafl­inn í breyt­ingum á umgjörð leigu­bíla­akst­urs hér á landi. Málefni grein­ar­innar hafa áður valdið miklum deilum, meðal ann­ars árið 2022 þegar leigu­bíl­stjórar mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri breyt­ingu á lögum.

Þá lögðu leigu­bíl­stjórar undir sig Tjarn­ar­götu og flaut­uðu fyrir utan ráð­herra­bú­stað­inn á meðan rík­is­stjórn­ar­fundur stóð yfir. Tilefnið var frum­varp sem átti meðal ann­ars að heim­ila ein­stak­lingum og rekstr­ar­að­ilum að reka leigu­bíla án þess að vera bundnir við leigu­bíla­stöð eða hafa akst­ur­inn að aðal­at­vinnu.

Bíl­stjórar töldu breyt­ing­arnar ógna bæði starfs­ör­yggi þeirra og öryggi almenn­ings og kröfð­ust þess að stjórn­völd hlust­uðu betur á sjón­ar­mið grein­ar­innar.

Nú, fjórum árum síðar, hefur Eyjólfur hert reglu­verkið á ýmsum sviðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum