Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Ben Dancer bíður eftir stað­fest­ingu frá Heims­meta­bók Guinnes.

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Ben Dancer Ef Ben dans­aði til að gleyma, væri hann orð­inn alveg minn­is­laus Mynd: Instagram

Níger­íski dans­ar­inn Benjamin Daniel, betur þekktur sem Ben Dancer, lauk á þriðju­dag sjö daga til­raun sinni til að setja heims­met í lengsta dans­mara­þoni ein­stak­lings. Hann dans­aði sam­fellt í 176 klukku­stundir, 52 mín­útur og 59 sek­úndur í Lagos.

Daniel hóf til­raun­ina 22. sept­em­ber með það að mark­miði að slá núver­andi met, sem ind­verski dans­ar­inn Srushti Sudhir Jagtap setti árið 2023. Hún var þá 16 ára og dans­aði sam­fellt í 127 klukku­stundir.

Stuðn­ings­menn dans­ar­ans söfn­uð­ust saman í Freedom Park í Lagos á meðan á til­raun­inni stóð. Ungir Níger­íu­menn hvöttu Daniel áfram, tóku upp frammi­stöðu hans og döns­uðu með honum fyrir aftan örygg­is­hlið.

Á einum tíma­punkti sam­hæfði lít­ill hópur áhorf­enda dans­spor sín við hreyf­ingar hans á meðan vin­sæl afró­bít­lög, með þekktum dans­sporum, ómuðu um svæðið.

„Dansinn er honum and­legur,“ sagði aðstoð­ar­kona hans, Mercy Idisi, við AFP-frétta­stof­una á meðan hann hélt áfram að dansa.

Að sögn aðstand­enda hans sótti Daniel inn­blástur í fjöl­breyttar tón­listar- og menn­ing­ar­hefðir Nígeríu stóran hluta dans­mara­þons­ins.

Afróbít var áber­andi í tón­list­inni, en einnig mátti heyra tón­list­ar­stefnur á borð við fuji, djass og zouk. Stundum skipti Daniel um dans­klæðnað og klædd­ist hefð­bundnum níger­ískum fatn­aði.

Und­ir­bún­ingur Daniels fyrir mettil­raun­ina hófst árið 2022. Hann stund­aði þá lík­ams­rækt til að byggja upp vöðva, æfði sig í að þola sárs­auka og auka úthald sitt og tók einnig þátt í æfingum þar sem hann svaf lítið til að búa sig undir álagið.

Þremur vikum áður en hann hóf til­raun­ina meidd­ist Daniel á hnjánum. Það vakti áhyggjur skipu­leggj­enda um að meiðslin gætu haft áhrif á mettil­raun­ina.

Hann glímdi þó ekki við nein alvar­leg heilsu­far­s­vanda­mál á þeim sjö dögum sem dans­áskor­unin stóð yfir, að sögn Chika Anagoba, læknis sem fylgd­ist með honum.

„Að breyta heiminum með dansi“

Við jaðar svæð­is­ins þar sem lít­ill hópur fólks dans­aði sátu íbúar úr heima­byggð Daniels í Bauchi-hér­aði í norð­ur­hluta Nígeríu á plast­stólum og gæddu sér á jollof-hrís­grjónum og hrásal­ati, sem eru meðal algengra rétta í land­inu.

„Við höfum verið hér frá fyrsta degi,“ sagði Ibrahim við AFP. „Við erum svo stolt af honum.“

„Þetta sýnir mér að ég get áorkað stórum hlutum þótt ég komi frá litlum stað og að ég geti breytt heim­inum með dansi,“ sagði Daniel við AFP eftir að hafa lokið mettil­raun sinni.

Daniel hafði þrisvar sinnum sótt um hjá Heims­meta­bók Guinness áður en hann fékk leyfi til að reyna við metið í febr­úar. En fyrir honum sner­ist frammi­staðan um miklu meira en að setja heims­met.

„Mark­miðið með Heims­meta­bók Guinness var aldrei metið sjálft,“ sagði hann. „Ég vildi vekja athygli um allan heim svo fólk beindi sjónum sínum í auknum mæli að hefð­bundnum dönsum Afríku.“

Heims­meta­bók Guinness hefur ekki enn stað­fest hvort frammi­staða Benja­mins telj­ist gilt heims­met. Stað­fest­ing­ar­ferli sam­tak­anna getur tekið tíma eftir mettil­raun og end­an­leg nið­ur­staða ræðst af því hvort öllum reglum þeirra hafi verið fylgt.

Hvað sem því líður von­ast Daniel til að gegna stærra hlut­verki í fram­tíð­inni við að kynna afríska menn­ingu og dans­hefðir fyrir umheim­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco