Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið

Minnsta reiki­stjarna sól­kerf­is­ins minnkar og minnkar

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið
Merkúr­íus Minnsta reiki­stjarnan minnkar og minnkar Mynd: HO / NASA / AFP

Ný rann­sókn bendir til þess að Merkúr­íus, minnsta reiki­stjarna sól­kerf­is­ins, sé að skreppa saman hraðar en vís­inda­menn hafa áður talið. Reiki­stjarnan virð­ist því vera að minnka líkt og vín­ber sem þornar upp og verður að rús­ínu í sól­inni.

Vís­inda­menn við Geim­rann­sókna­stofnun þýsku geim­ferða­stofn­un­ar­innar greindu frá nið­ur­stöð­unum í gær. Samkvæmt rann­sókn­inni gæti sam­dráttur Merkúr­í­usar verið 30 pró­sent meiri en áður var talið. Þvermál reiki­stjörn­unnar gæti hafa minnkað um allt að 23 kíló­metra. Það er umtals­verð breyt­ing fyrir reiki­stjörnu sem er aðeins um 4.900 kíló­metrar í þver­mál.

Hrjúft yfir­borð Merkúr­í­usar, sem stöðugt breyt­ist vegna efnis sem þeyt­ist frá gígum eftir loft­steina­á­rekstra, kann að hafa falið raun­veru­lega umfang sam­drátt­ar­ins. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum vís­inda­mann­anna, sem birt­ust í vís­inda­rit­inu Geophysical Research Letters.

Frétt­irnar ber­ast aðeins viku eftir að tvö geim­för frá Evrópu og Japan skildu sig frá ferða­palli sínum og héldu áfram för sinni í átt að Merkúr­íusi. Geim­förin, sem ganga undir heit­inu BepiColombo, eiga að fara á braut um reiki­stjörn­una í nóv­em­ber. Þá verður þeim skipt í sundur svo hægt verði að rann­saka hana ítar­legar.

Gaku Nis­hi­yama, aðal­höf­undur rann­sókn­ar­innar og þátt­tak­andi í geim­leið­angrinum, segir að leysi­bún­aður BepiColombo eigi að stað­festa hversu mikið Merkúr­íus hefur minnkað vegna kóln­unar í iðrum reiki­stjörn­unnar.

Sam­drátt­ur­inn gæti jafn­vel verið meiri en rann­sókn­arteymi Nis­hi­yama áætlar út frá mæl­ingum banda­ríska geim­fars­ins Messen­ger, sem rann­sak­aði Merkúr­íus á árunum eftir 2010. Aðeins tvö geim­för hafa hingað til heim­sótt reiki­stjörn­una. Hitt var Mariner 10, sem NASA sendi þangað á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar.

Merkúr­íus, innsta og minnsta reiki­stjarna sól­kerf­is­ins, hefur verið að skreppa saman allt frá því að hún mynd­að­ist fyrir um 4,5 millj­örðum ára.

Járn­kjarni hennar er óvenju­stór miðað við stærð reiki­stjörn­unnar. Þegar kjarn­inn kólnar og dregst saman minnka einnig mött­ull­inn og jarð­skorpan. Yfir­borðið herp­ist saman líkt og belti sem þrengir að lík­ama sem hefur grennst.

Nis­hi­yama og sam­starfs­fólk hans báru saman kort sem sýna mis­gengi og önnur jarð­fræði­leg ummerki um sam­drátt á Merkúr­íusi við nýrri kort sem sýna hversu hrjúft yfir­borð reiki­stjörn­unnar er.

Þau komust að því að á hrjúf­ustu svæð­unum voru færri merki um sam­drátt en búast hefði mátt við. Vís­inda­menn­irnir telja að ummerki um sam­drátt­inn kunni að hafa graf­ist undir efni sem þeytt­ist til við loft­steina­á­rekstra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendir ferða­menn í bílnum sem lenti í Kleifá

Straumurinn bar bílinn í gegnum ræsi og þurfti að draga hann úr ánni áður en hægt var að ná öðrum ferðamanninum út.
Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Heimur

Huckabee segir Satan stjórna and­stæð­ingum Íran­stríðs­ins

Heimur

Ísra­elskur sjón­varps­maður lát­inn víkja eftir rasísk ummæli

Heimur

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Lík þriggja fundust á heimili hins grunaða eftir árásina. Talið er að fólkið hafi verið honum skylt.
Heimur

Dæmd í fang­elsi fyrir að van­rækja börn og fela þau fyrir for­eldrum

Heimur

Hand­tek­inn eftir að hafa brot­ist inn á lóð LeBron James

Heimur

Flóð leggja flótta­manna­búðir á Gaza í rúst

Heimur

Blóðbað á mark­aðs­torg­inu í Kraká

Heimur

Níu ára stúlka lést eftir að hafa orðið fyrir bíl á Kanarí­eyjum