Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar

Málið á rætur að rekja til pakka­sendingar frá Íslandi til útlanda

Starfsmaður Póstsins
Starfs­maður Póstsins Mynd: Pósturinn

Ónefndur einstaklingur kvartaði til umboðs­manns Alþingis vegna úrskurðar úrskurðar­nefndar fjar­skipta og póstmála sem staðfesti ákvörðun Byggða­stofnunar um að aðhafast ekki frekar vegna kvörtunar hans yfir starfs­háttum Íslands­pósts.

Málið var birt á heimasíðu umboðs­manns Alþingis í byrjun október en umboðs­maður lauk athugun sinni á því með bréfi 28. september 2026.

Málið á rætur að rekja til pakka­sendingar frá Íslandi til útlanda. Sendingin var stöðvuð við eftirlit PostNord í Danmörku þegar endur­senda átti hana til Íslands. Í pakkanum voru fimm notaðir farsímar og var fjórum þeirra fargað.

Kvart­andinn, sem er ónefndur í gögnum málsins, hélt því fram að starfs­menn Íslands­pósts hefðu veitt honum rangar upplýsingar um heimildir til að senda farsímana. Taldi hann að upplýsinga­gjöfin hefði leitt til þess að verðmætum hans var fargað.

Við meðferð málsins lagði maðurinn meðal annars fram upptökur af samskiptum sínum við starfs­menn Íslands­pósts. Í bréfi umboðs­manns kemur fram að upptökurnar virðist hafa verið gerðar án vitneskju starfs­mannanna sem teknir voru upp.

Í úrskurði nefndarinnar kom meðal annars fram að rafhlaða eins farsímans hefði ekki verið inni í símanum, sem bryti gegn reglum um sendingu lithíumrafhlaðna. Þá hefði sendingin ekki verið rétt merkt þar sem ekki var upplýst um að hún innihéldi hættu­legan varning.

Umboðs­maður taldi ekki tilefni til athugasemda við niður­stöðu úrskurðar­nefndarinnar og ákvað að taka málið ekki til frekari skoðunar.

Kvart­andinn lagði síðar fram ný gögn frá PostNord. Umboðs­maður benti honum á að bera þau fyrst undir úrskurðar­nefndina og eftir atvikum Byggða­stofnun áður en frekari afstaða yrði tekin til þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Áhorfandi sagði táningsstúlku sem dæmdi leikinn að drepa sig.
Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Lögreglan rannsakar árásina í Mjóddinni sem stórfellda líkamsárás. Þrír eru með stöðu sakbornings.

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá