Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

Leigj­and­inn hélt því fram að samn­ing­ur­inn hefði ekki tekið gildi

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda
Reykja­vík Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Kæru­nefnd húsa­mála hefur úrskurðað að leigu­sölum sé heim­ilt að fá 295 þús­und krónur greiddar úr trygg­ingu leigj­anda vegna leigu­samn­ings sem leigj­and­inn rifti með ólög­mætum hætti. Aðilar máls­ins voru ekki nafn­greindir í úrskurð­inum.

Málinu lauk með úrskurði kæru­nefnd­ar­innar 24. sept­em­ber síð­ast­lið­inn en úrskurð­ur­inn var birtur á net­inu í byrjun októ­ber. Kæru­nefnd­ina skip­uðu í mál­inu Auður Björg Jóns­dóttir lög­maður, Þor­valdur Hauksson lög­maður og Eyþór Rafn Þór­halls­son verk­fræð­ingur.

Deilan sner­ist um íbúð sem leigj­and­inn hafði samið um að taka á leigu frá 17. des­em­ber 2025 til árs­loka 2026. Samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður raf­rænt af aðilum 15. og 16. des­em­ber.

Leigj­and­inn hélt því fram að samn­ing­ur­inn hefði ekki tekið gildi þar sem hann hefði hvorki greitt fyrstu leig­una né fengið lykla að íbúð­inni. Kæru­nefndin féllst ekki á þau sjón­ar­mið og taldi bind­andi leigu­samn­ing hafa kom­ist á með raf­rænum und­ir­skriftum aðila.

Leigj­and­inn til­kynnti 19. des­em­ber að hann hygð­ist hætta við leig­una. Hann sagði samn­ingnum síðan upp 22. des­em­ber og rifti honum form­lega 30. des­em­ber.

Nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu að rift­unin hefði ekki átt sér stoð í húsa­leigu­lögum og væri því ólög­mæt. Leigusal­arnir kröfð­ust 445 þús­und króna úr 600 þús­und króna trygg­ingu vegna ógreiddrar leigu.

Kæru­nefndin taldi þó að leigusal­arnir hefðu átt að tak­marka tjón sitt með því að leigja íbúð­ina aftur eins fljótt og mögu­legt væri. Var miðað við að unnt hefði verið að koma henni aftur í leigu frá 15. jan­úar 2026.

Nið­ur­staðan varð því sú að leigusal­arnir mættu ganga að trygg­ingu leigj­and­ans fyrir 295 þús­und krónum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina