Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Brúni hundamítillinn greindist á Selfossi

Kvik­indið getur leynst í húsum mán­uðum saman

Brúni hundamítillinn greindist á Selfossi
Brúni hundamít­ill­inn Brúni hundamít­ill­inn getur lifað inn­an­dyra í marga mán­uði Mynd: gailhampshire/wikimedia

Brúni hundamít­ill­inn hefur greinst á hundi á Selfossi. Mat­væla­stofnun vinnur nú að því að koma í veg fyrir að mít­ill­inn nái fót­festu hér á landi, en hann getur lifað inn­an­dyra í marga mán­uði og leynst í sprungum, undir listum og í bælum dýra.

Eigandi hunds­ins fann mít­ill­inn þegar feldur hunds­ins var burstaður og fór með hann til Dýra­lækna­þjón­ustu Suð­ur­lands. Þaðan var hann sendur til grein­ingar á Til­rauna­stöð Háskóla Íslands í meina­fræði að Keldum, þar sem stað­fest var að um brúna hundamít­il­inn (Rhipicephalus sanguineus) væri að ræða.

Mít­ill­inn hefur aðeins greinst í örfá skipti á Íslandi og er ekki tal­inn land­lægur hér. Tekist hefur að upp­ræta hann í fyrri til­vikum.

Getur lifað mánuðum saman innandyra

Brúni hundamít­ill­inn nær­ist fyrst og fremst á hundum en getur einnig lagst á önnur spen­dýr, svo sem nag­dýr. Hann er sér­stakur að því leyti að hann getur lokið öllum lífs­ferli sínum inn­an­dyra og því fund­ist allt árið um kring.

Samkvæmt Mat­væla­stofnun eru aðeins um fimm pró­sent mítl­anna á hund­inum sjálfum en um 95 pró­sent í umhverf­inu. Í upp­hit­uðu hús­næði getur mít­ill­inn lifað í þrjá til fimm mán­uði á hverju þroska­stigi án þess að fá nær­ingu.

Því getur þurft að með­höndla bæði dýrið og heim­ilið ef brúni hundamít­ill­inn grein­ist. Mat­væla­stofnun mun fyr­ir­skipa að dýr sem mít­ill­inn hefur greinst á verði ein­angruð frá öðrum dýrum þar til við­ur­kennd lyfja­með­höndlun er hafin og orðin virk.

Samhliða með­höndlun þarf að ryk­suga heim­ilið dag­lega, meðal ann­ars undir listum, við þrösk­ulda og í sprungum þar sem mítl­arnir geta leynst. Einnig þarf að þvo bæli dýrs­ins, teppi og fatnað. Ef ekki er hægt að þvo hluti getur fryst­ing eða gufu­hreinsun komið að gagni. Ef mikið er af mítlum í hús­næð­inu gæti þurft að leita til mein­dýra­eyðis.

Getur borið smitefni

Erlendis er þekkt að brúni hundamít­ill­inn geti borið smitefni sem valda sjúk­dómum í hundum, meðal ann­ars Ehrlichia canis og Babesia canis.

Ehrlichia canis hefur aldrei greinst á Íslandi. Babesia canis greind­ist hins vegar í fyrsta sinn hér á landi í inn­fluttum hundi á ein­angr­un­ar­stöð í lok árs 2023, en hefur ekki greinst síðan.

Mít­ill­inn getur einnig borið bakt­er­í­una Rickettsia conorii, sem getur valdið sjúk­dómi í fólki og er land­læg við Mið­jarð­ar­haf. Sú bakt­ería hefur aldrei greinst hér á landi.

Hvetja eigendur til að skoða gæludýr

Mat­væla­stofnun hvetur hunda- og katta­eig­endur til að skoða húð og feld dýra sinna reglu­lega og hafa sam­band við dýra­lækni ef mít­ill finnst eða grunur vaknar um mítla.

Almenn­ingur og dýra­læknar eru jafn­framt hvattir til að varð­veita mítla sem finn­ast á fólki eða dýrum og koma þeim til grein­ingar hjá Til­rauna­stöð Háskóla Íslands í meina­fræði að Keldum.

Mik­il­vægt er að upp­lýs­ingar fylgi sýnum, meðal ann­ars um dag­setn­ingu og fund­ar­stað, hvort mít­ill­inn hafi fund­ist á manni eða dýri og hvar við­kom­andi hafi haldið sig síð­ustu daga. Ef hann finnst á dýri þurfa einnig að fylgja upp­lýs­ingar um dýrið, eig­anda þess og tengiliða­upp­lýs­ingar.

Algeng­ast er að fuglamítlar, einnig nefndir lundamítlar, eða skóg­armítlar finn­ist hér á landi. Þeir geta borist til lands­ins með far­fuglum. Ef grunur vaknar um að um brúna hundamít­il­inn sé að ræða þarf að til­kynna það taf­ar­laust til Mat­væla­stofn­unar á [email protected].

Getur borist með fólki og farangri

Brúni hundamít­ill­inn getur borist til Íslands með fólki og far­angri frá löndum þar sem hann er land­lægur, einkum eftir snert­ingu við dýr eða umhverfi þeirra.

Mat­væla­stofnun bendir því á mik­il­vægi þess að þvo fatnað og búnað og hreinsa skó vand­lega eftir slíka snert­ingu erlendis, ann­að­hvort áður en haldið er heim eða strax við komu til lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ