Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi

„Veðrið þá var víst ógur­legt“

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi
Einar Svein­björns­son

Veð­ur­fræð­ing­ur­inn Einar Svein­björns­son segir á Facebook-síðu sinni ástæðu til að fylgj­ast grannt með öfl­ugri lægð sem gæti nálg­ast Ísland um miðja viku. Nýjustu spár gera ráð fyrir meiri dýpkun hennar en fyrri spár höfðu sýnt.

Einar greinir frá þessu í færslu á sam­fé­lags­miðlum og birtir jafn­framt myndir sem sýna áætl­aða þróun og feril lægð­ar­innar. Samkvæmt honum sýnir nýjasta spá Evrópsku reikni­m­ið­stöðv­ar­innar lægð sem kemur frá aust­an­verðum Banda­ríkj­unum og sveigir norð­austur yfir Atl­ants­hafið með stefnu á Ísland.

„Breyting frá spám gær­dags­ins er sú að dýpk­unin er meiri en áður var gert ráð fyrir. Síðdegis á mið­viku­dag má þannig töl­una 936 hPa skammt undan Horna­firði,“ skrifar Einar.

Hann segir svo djúpar lægðir vera fáséðar hér við land og rifjar upp sögu­legt veður í því sam­hengi.

„Í októ­ber er aðeins einu sinni vitað til þess að loft­vog hafi fallið niður fyrir 940 hPa í mæl­ingu. Það gerð­ist 1963 þann 19. 938,4 hPa á Stór­höfða. Veðrið þá var víst ógur­legt.“

Einar segir skýr­ing­una á mik­illi dýpkun lægð­ar­innar meðal ann­ars vera þá að hún gleypi aðra og minni lægð. Við það magn­ist hring­hreyf­ingin og dýpk­unin verði enn ákaf­ari.

„Sjálf dýpk­unin reikn­ast 44 hPa frá kl. 12 á morgun, þriðju­dag, til kl. 12 á mið­viku­dag,“ segir Einar.

Þetta er breyt­ing frá fyrri spám. Í keyrslum frá deg­inum áður hafi aðal­lægðin ýtt þeirri minni á undan sér og lægða­orkan því ekki nýst að fullu.

Einar segir mik­il­vægt að fylgj­ast mjög náið með þró­un­inni.

„Grannt þarf að fylgj­ast með þess­ari þróun næstu tvo til þrjá sól­ar­hringa. Mjög djúpar lægðir eins og sú sem nú er í píp­unum valda langoft­ast óskunda hér og stundum veru­legum vand­ræðum og með eigna­tjóni.“

Enn er þó tölu­verð óvissa um nákvæman feril og styrk lægð­ar­innar. Einar slær því ákveð­inn varnagla við spána og bendir á að margt geti breyst áður en hún nálg­ast landið.

„En það er enn langur vegur frá Atlanta til Akur­eyrar!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð