Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mætti ísbirni, var handtekinn fyrir njósnir og gekk 58 þúsund kílómetra

Karl Bushby lagði af stað í göngu 29 ára gam­all og er nú að klára síð­asta spölin, 28 árum síðar.

Mætti ísbirni, var handtekinn fyrir njósnir og gekk 58 þúsund kílómetra
Karl Bushby Karl gekk bók­staf­lega yfir sjó og land Mynd: Instagram

Hann hefur farið yfir heims­álfur, verið ógnað með byssum, fang­els­aður og vísað úr landi, næstum drukknað og lent í lífs­hættu vegna hung­urs og ísbjarna. Nú snýr hann loks aftur til Englands.

Karl Bushby er 57 ára og hefur verið á ferða­lagi um heim­inn frá því hann yfir­gaf heimabæ sinn Hull árið 1998. Hann lagði upp með að ganga frá syðsta odda Suður-Ameríku, Punta Arenas í Chile, alla leið heim til Englands, án þess að nota far­ar­tæki til að kom­ast áfram.

Bushby ætl­aði upp­haf­lega að ljúka ferð­inni á 12 árum en ýmsar hindr­anir, þar á meðal fjár­málakreppur, heims­far­aldur, stríð, vega­bréfs­á­rit­anir og strangar inn­flytj­enda­reglur, lengdu ferð­ina í 28 ár. Hann hefur nú gengið um 58 þús­und kíló­metra og farið um 29 lönd.

Reglur hans voru ein­faldar: Hann mátti ekki nota far­ar­tæki til að kom­ast áfram og mátti ekki snúa heim fyrr en hann hefði lokið ferð­inni fót­gang­andi. Ef hann þurfti að stöðva ferð­ina eða fara af leið­inni varð hann að snúa aftur á nákvæm­lega sama stað þegar hann hélt áfram.

Í dag er hann 57 ára gam­all, með handa­band sem gæti brotið bein, búldu­leit­ara and­lit og vott af mið­aldra­bumbu. Hann segir að fólk búist ekki við því að hann líti svona út. Það sjái hann ann­að­hvort fyrir sér sem Gandálf, með hvítt skegg niður að hnjám, eða sem stæltan íþrótta­mann. „Allir segja: ef hann hefur verið á göngu í 28 ár, af hverju er hann þá svona feitur? En oft­ast nær borða ég á bens­ín­stöðvum og ham­borg­ara­búllum, sit ein­hvers staðar í þrjá mán­uði og bíð eftir vega­bréfs­á­ritun, eld­ist og borða kex og smákökur.“

Nærri dauða á Beringssundi

Ein hættu­leg­asta áskor­unin var að kom­ast yfir Ber­ings­sund frá Alaska til Rúss­lands ásamt franska-amer­íska ævin­týra­mann­inum Dimitri Kieffer. Þeir þurftu að fara yfir haf­svæði þar sem ísinn er sífellt að brotna upp. Þeir höfðu enga reynslu af heim­skauta­að­stæðum.

Á ferð­inni brast ísinn undir þeim og sleðar þeirra, sem vógu sam­tals um 90 kíló með vistum, féllu í ískaldan sjó­inn. Ef þeir hefðu misst vist­irnar hefðu þeir átt á hættu að deyja úr hungri eða ofkæl­ingu.

Þeir mættu einnig ísbirni sem hefði auð­veld­lega getað drepið þá.

„Við reyndum að fæla hann í burtu en höfðum aðeins flug­elda og þeir dugðu ekki. Að lokum færðum við okkur hægt í átt­ina að birn­inum. Hann stopp­aði og horfði á okkur. Ef hann hefði viljað ná okkur hefðum við verið dauðir. Það var engin und­an­komu­leið,“ rifjar Bushby upp í við­tali við Guardian.

Eftir 14 daga tókst þeim að kom­ast yfir sundið, rétt áður en mat­ar­birgðir þeirra klár­uð­ust. Þegar þeir komu til Síberíu voru þeir hand­teknir, ákærðir og sak­felldir fyrir njósnir. Rússnesk yfir­völd vildu að þeir afplán­uðu að minnsta kosti fimm ára fang­els­is­dóm en ákváðu að lokum að senda þá aftur til Alaska.

Bushby hefur einnig verið í lífs­hættu í frum­skógum Kólumbíu, þar sem hann var nokkrum sinnum ógnað með byssum. Hann segir að róleg fram­koma og bros hafi oft hjálpað honum að kom­ast úr hættu­legum aðstæðum. Þá hafi annað hjálpað honum í þeim aðstæðum:

„Sem betur fer hafði ég, þegar ég átti í sam­skiptum við byssu­menn­ina, afrit af blaða­úr­klippum um mig frá Suður-Ameríku. Með þeim gat ég talað mig út úr hverju sem var.“

Óvænt góðvild ókunnugra

Þrátt fyrir hætt­una segir Bushby að ferða­lagið hafi kennt honum að treysta fólki. Hann hafi áður haft fremur nei­kvæða sýn á mann­kynið eftir 12 ár í hernum, en upp­lifunin á ferða­lag­inu hafi gjör­breytt henni.

Hann rifjar upp hvernig ókunn­ugt fólk hafi gefið honum mat, vatn og húsa­skjól þegar hann var illa staddur. Í Atacama-eyði­mörk­inni í Chile hafi vöru­bíl­stjórar reglu­lega rétt honum ávexti og vatn á meðan hann gekk eftir þjóð­veg­inum.

„Ég segi alltaf að 99,999 pró­sent þeirra sem ég hitti hafi sýnt það besta sem mann­kynið hefur upp á að bjóða. Það hefur verið eins í öllum löndum,“ segir hann.

Ferða­lagið hefur þó kostað hann mikið per­sónu­lega. Hann skildi við eig­in­konu sína áður en hann lagði af stað og hefur átt nokkur ást­ar­sam­bönd sem hafa ekki stað­ist langvar­andi fjar­veru hans. Hann á son­inn Adam, sem er nú 36 ára, og 12 ára barna­barn sem hann hefur enn ekki hitt.

Bushby við­ur­kennir að ferða­lagið hafi verið eig­in­gjarnt verk­efni.

„Þessi 28 ár hafa snú­ist um mig. Ég hef verið mið­punkt­ur­inn í mínum eigin heimi. Þetta hefur snú­ist um að koma sjálfum mér frá einum stað til ann­ars og sjá til þess að ég lifi ferð­ina af,“ segir hann.

Kvíðir heimkomunni

Bushby synti yfir Ermar­sund fyrir nokkrum dögum og kom þannig aftur til Englands. Hann hyggst ganga síð­asta spöl­inn til Hull og von­ast til að koma þangað 1. nóv­em­ber, nákvæm­lega sama dag og hann lagði upp í ferð­ina árið 1998.

Þrátt fyrir að hafa lifað af ótrú­legar raunir kvíðir hann heim­kom­unni. Hann segir að til­gangur lífs síns hafi um ára­tuga­skeið verið að ljúka ferð­inni og nú þurfi hann að finna sér nýtt hlut­verk.

„Ég veit ekki hvernig maður á að haga sér eins og full­orð­inn maður. Ég þarf að finna mér vinnu og koma mér fyrir. Það er ógn­vekj­andi,“ segir hann. Hann gerir ráð fyrir að búa fyrst um sinn hjá móður sinni og segir að hann þurfi að leggja vinnu í að end­ur­byggja sam­band sitt við fjöl­skyld­una.

Hann telur sig hafa breyst mikið á ferða­lag­inu. Áður hafi hann verið íhalds­sam­ari og litið á Bretland sem miðju heims­ins, en nú hafi hann víð­ari sýn á lífið.

„Heim­ur­inn er ótrú­legur staður. Fólk er allrar fyr­ir­hafnar virði,“ segir hann.

Þrátt fyrir að ferða­lag­inu sé að ljúka sér hann ekki fyrir sér að setj­ast að í Hull til fram­búðar. Heim­ild­ar­mynd er í und­ir­bún­ingi um ævin­týri hans, bók er vænt­an­leg og fyr­ir­hugað er að hann haldi fyr­ir­lestra um ferð­ina.

En ætlar hann að leggja aftur af stað í annað langt göngu­ferða­lag?

„Nei!“ svarar Bushby ákveð­inn.

Það kemur jafn­vel á óvart að heyra að hann hafi aldrei haft sér­staka ánægju af því að ganga.

„Þetta er hund­leið­in­legt,“ segir hann hlæj­andi. „Það var ferða­lagið í heild sem heill­aði mig, að reyna að kom­ast frá A til B.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco