Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

Jökull birti mynd­bandi af mann­inum eftir skemmd­ar­verkið

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg
Skemmd­ar­verk Búið er að spreyja yfir lista­verk Juliu Mai Mynd: Facebook

Jökull Sólberg Auð­uns­son og sam­starfs­fé­lagi hans horfðu upp á karl­mann gera sér lítið fyrir og spreyja yfir póli­tíska lista­verkið á veggnum við hlið­inni á Pennann Eymunds­son á Skóla­vörðu­stíg. Jökull birti mynd­band af mann­inum á Facebook.

Verkið, sem lista­konan Mai Linnéa Julia Maria, eða Julia eins og hún er kölluð, bjó til eftir að þjóð­ar­morð Ísraela á Gaza hófst árið 2023, sýnir stuðn­ing við Palest­ínu en þar stendur meðal ann­ars Frjáls Palest­ína. Julia hefur margoft þurft að þola að spreyjað sé á verkið hennar en hún málar jafn­harðan yfir það. Í þetta skiptið urðu vitni eins og segir hér að ofan. Við færslu á Instagram þar sem Julia sýnir frá því þegar hún mál­aði lista­verkið, skrif­aði hún:

„Mitt agn­arsmáa fram­lag til sam­eig­in­legs átaks heims­ins. Þessi veggur er orð­inn eins konar barnið mitt. Mín leið til að halda geð­heils­unni á meðan ég horfi upp á það allra versta sem hægt er að hugsa sér. En ég vona líka að hann fái fólk ein­hvern veg­inn til að hugsa, láta sig málið varða og jafn­vel gera eitt­hvað.“

Jökull birti ljós­mynd af skemmd­ar­verk­unum og mynd­skeið af mann­inum sem hann og sam­starfs­fé­lagi hans sáu spreyja á lista­verkið en þeir starfa við hlið­ina á verk­inu. Við færsl­una skrifar hann:

„Þessi gæi var að spreyja yfir „Frjáls Palest­ína“ mural-inn við Skóla­vörðu­stíg.“

Á mynd­band­inu sést karl­maður klæddur í brúnan stakk og með Kippah (höf­uð­fat gyð­inga) á koll­inum koma út úr, Sangita­miya - hljóð­færa­verslun.

Mannlíf heyrði í starfs­fólki hljóð­færa­versl­un­ar­innar og spurði hvort þau hefðu orðið var við eitt­hvað grun­sam­legt varð­andi mann­inn, hvort hann hafi til dæmis verið með sprey­brúsa á sér. Sögðu þau mann­inn hafa verið nokkuð öran en að öðru leyti hafi ekk­ert vesen verið á honum. Þau tóku ekki eftir því hvort hann hafi verið með sjá­an­legan sprey­brúsa á sér.

Færslan hefur vakið nokkra athygli síðan hún birt­ist fyrir klukku­stund en fjöl­miðla­mað­ur­inn Egill Helgason er einn af þeim sem tjáir sig við færsl­una og skrifar ein­fald­lega: „Hvílíkur dóna­skapur!“

Þá segja nokkrir að Jökull ætti að til­kynna málið til lög­regl­unnar en í sam­tali við Mannlíf seg­ist Jökull ekki enn hafa haft sam­band við lög­regl­una, þar sem þeir félagar væru upp­teknir í vinn­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum