Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eiríkur varar við vaxandi spennu á norðurslóðum

„Norð­ur­slóðir eru að mínu mati eitt af mik­il­væg­ustu svæðum heims“

Eiríkur varar við vaxandi spennu á norðurslóðum
Eiríkur Björn Björg­vins­son Er þing­maður Við­reisnar. Mynd: Alþingi

Eiríkur Björn Björg­vins­son, þing­maður Við­reisnar, segir norð­ur­slóðir vera eitt mik­il­væg­asta svæði heims þegar kemur að umhverf­is­málum, öryggi og alþjóða­sam­vinnu. Hann segir brýnt að Ísland haldi áfram að leggja áherslu á frið, stöð­ug­leika og sjálf­bæra þróun á svæð­inu.

Eiríkur ræddi mál­efni norð­ur­slóða undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær. Tilefnið var meðal ann­ars Arctic Circle, Hring­borð norð­ur­slóða, sem fór fram í Hörpu í síð­ustu viku.

„Norð­ur­slóðir eru að mínu mati eitt af mik­il­væg­ustu svæðum heims, m.a. þegar kemur að umhverf­is­málum, örygg­is­málum og alþjóða­sam­vinnu,“ sagði Eiríkur.

Áhrif loftslagsbreytinga áberandi

Hann sagði hags­muni Íslands á norð­ur­slóðum skýra sam­kvæmt þeirri stefnu sem Alþingi hefur sam­þykkt. Mark­miðið væri að tryggja frið, stöð­ug­leika og sjálf­bæra þróun ásamt því að virða alþjóða­lög og rétt­indi þeirra sem búa á svæð­inu.

Eiríkur benti sér­stak­lega á að áhrif lofts­lags­breyt­inga væru mjög sýni­leg á norð­ur­slóðum. Bráðnun íss, breyt­ingar á líf­ríki og aukin umsvif manna köll­uðu á öfl­ugt alþjóð­legt sam­starf. Ísland legði jafn­framt mikla áherslu á vís­inda­rann­sóknir, nátt­úru­vernd og ábyrga nýt­ingu auð­linda.

„Vernd umhverf­is­ins er ekki aðeins lofts­lags­mál heldur einnig grund­vall­ar­at­riði í lang­tíma­ör­yggi svæð­is­ins,“ sagði hann.

Aukin spenna og hernaðarlegir hagsmunir

Eiríkur sagði jafn­framt að áhersla á öryggis- og varn­ar­mál á norð­ur­slóðum hefði auk­ist. Alþjóð­leg spenna og hern­að­ar­legir hags­munir stór­velda hefðu meðal ann­ars aukið umræðu um nauð­syn þess að efla við­búnað, eft­ir­lit, leit og björgun og vernd mik­il­vægra inn­viða.

Hann sagði Ísland byggja öryggi sitt á alþjóð­legu sam­starfi, meðal ann­ars innan NATO, en mik­il­vægt væri að norð­ur­slóðir yrðu áfram vett­vangur friðar, sam­tals og sam­vinnu.

Á Arctic Circle-ráð­stefn­unni hefði meðal ann­ars verið fjallað um lofts­lagsvá, vax­andi alþjóð­lega spennu og mik­il­vægi þess að rödd frum­byggja fengi að heyr­ast þegar ákvarð­anir um fram­tíð svæð­is­ins væru teknar.

Eiríkur lauk máli sínu með því að leggja áherslu á að örygg­is­mál ein og sér myndu ekki ráða fram­tíð norð­ur­slóða.

„Framtíð norð­ur­slóða verður ekki tryggð með öryggi einu saman, heldur með sam­vinnu, trausti og sam­eig­in­legri ábyrgð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum