Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

„Þetta er ekk­ert annað en skatt­sýki“

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann
Rósa Guð­bjarts­dóttir og Guð­mundur Ari eru væg­ast sagt ósam­mála Mynd: Samsett

Rósa Guð­bjarts­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, mælti á Alþingi í gær fyrir frum­varpi um afnám erfða­fjár­skatts. Harðar orða­hnipp­ingar urðu í kjöl­farið milli hennar og Guð­mundar Ara Sig­ur­jóns­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um áhrif til­lög­unnar á rík­is­sjóð og hverjir myndu helst njóta góðs af breyt­ing­unni.

Rósa sagði erfða­fjár­skatt fela í sér tví­sköttun á verð­mætum sem fólk hefði þegar greitt skatta af á lífs­leið­inni. Hún sagði skatt­inn meðal ann­ars geta komið illa niður á fjöl­skyldum við kyn­slóða­skipti fyr­ir­tækja, þegar verð­mæti væru bundin í fast­eignum, tækjum og rekstri en ekki reiðufé.

„Að mínu mati er hér fyrst og fremst um órétt­láta tví­sköttun að ræða og er afnám erfða­fjár­skatts því mikið rétt­læt­is­mál,“ sagði Rósa.

Hún hélt því jafn­framt fram að skatt­ur­inn bitn­aði ekki ein­göngu á efna­mestu ein­stak­lingum lands­ins heldur einnig venju­legum fjöl­skyldum og litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum. Þá vís­aði hún til þess að Svíþjóð og Noregur hefðu afnumið erfða­fjár­skatt.

Segir skattalækkunina óútfærða

Guð­mundur Ari gagn­rýndi frum­varpið harð­lega og sagði það fela í sér óút­færða skatta­lækkun upp á millj­arða króna á sama tíma og rík­is­stjórnin væri að vinna að halla­lausum fjár­lögum. Hann sagði til­lög­una fyrst og fremst nýt­ast þeim sem ættu mest.

„Þú þarft að tryggja að þú eigir fyrir þeirri þjón­ustu sem þú ert að veita,“ sagði Guð­mundur Ari og benti á að þörf væri á auk­inni mönnun í heil­brigð­is­kerf­inu, fleiri lög­reglu­þjónum og stuðn­ingi við mennta­kerfið.

Hann spurði jafn­framt hvort fleiri til­lögur væru vænt­an­legar frá Sjálf­stæð­is­flokknum sem myndu lækka tekjur rík­is­sjóðs án þess að útfært væri hvernig mæta ætti tekju­tap­inu.

Sakar ríkisstjórnina um „blygðunarlausa skattsýki“

Rósa svar­aði gagn­rýn­inni af hörku og vís­aði til efna­hags­til­lagna Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hún sak­aði rík­is­stjórn­ina um að vera upp­tekna af skatt­heimtu og sagði erfða­fjár­skatt­inn koma sér­stak­lega illa niður á venju­legum fjöl­skyldum.

„Þetta er ekk­ert annað en skatt­sýki þess­arar rík­is­stjórnar og hún er blygð­un­ar­laus,“ sagði Rósa.

Hún sagði efna­meira fólk oft hafa meiri mögu­leika á að skipu­leggja eignir sínar með þeim hætti að erfða­fjár­skattur yrði minni, á meðan slíkar leiðir stæðu almennum fjöl­skyldum síður til boða. Hún sagði órétt­látt að fólk gæti þurft að taka lán eða selja eignir eftir and­lát for­eldra til þess að standa undir skatt­greiðsl­unni.

Rósa lagði til að frum­varp­inu yrði vísað til ann­arrar umræðu og efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum