Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Gagnrýnir fyrirkomulag á tónleikum Of Monsters and Men

„Sumir tón­leikar eru bara fyrir heil­brigða“

Gagnrýnir fyrirkomulag á tónleikum Of Monsters and Men
Gagnrýna aðgengi fyrir lang­veika á tón­leikum Of Monsters and Men Mynd: TOM COOPER / GETTY IMAGES NORTH AMERICA / GETTY IMAGES VIA AFP

Umræða hefur skap­ast innan Facebook-hóps­ins Beauty tips eftir að Þóra Marta Krist­jáns­dóttir vakti athygli á erf­ið­leikum lang­veikra og fatl­aðra við að tryggja sér sæti á tón­leikum Of Monsters and Men á Íslandi.

Þóra Marta sendi fyr­ir­spurn á hljóm­sveit­ina Of Monsters and Men eftir að hún sá að miðar á kom­andi tón­leika þeirra væru ónúm­eraðir, sem jafnan þýðir að um stand­andi tón­leika sé að ræða. Í tölvu­póst­inum útskýrði hún stöðu sína:

„Ég er sjúk­lingur sem von­aði að það væru sæti. Ég held í von­ina og vona að ég heyri frá ykkur,“ skrif­aði Þóra, sem hlakk­aði mikið til að sækja við­burð­inn en hik­aði vegna óvissunnar.

Sæti í boði en engin trygging

Svar barst frá miða­söl­unni Tix.is og kom fram að boðið yrði upp á stúku á tón­leik­unum þar sem hægt væri að setj­ast, en skipu­lagið yrði með þeim hætti að ekki væri hægt að koma til móts við sér­stakar þarfir ein­stakra gesta:

„Þau sæti eru í raun fyrstir koma fyrstir fá og því ekki hægt að taka frá sæti fyrir neinn,“ sagði í svari miða­söl­unnar.

Gagnrýnir útilokun á menningarviðburðum

Þetta fyr­ir­komu­lag mælist illa fyrir og sýnir, að mati Þóru Mörtu, ákveðið aðgengis- og skiln­ings­leysi gagn­vart þeim sem glíma við skerta hreyfi­getu eða langvar­andi veik­indi. Þar sem fólk þarf að mæta snemma og treysta á heppni til að fá sæti, standa margir sjúk­lingar frammi fyrir því að geta hrein­lega ekki átt þess kost að mæta.

Þóra Marta birti skjá­skot af tölvu­póst­sam­skipt­unum inni á Beauty tips og dró bitra en raun­sæja ályktun af svör­unum:

„Stað­reynd: sumir tón­leikar eru bara fyrir heil­brigða.“

Málið varpar ljósi á ákall margra um að við­burða­hald­arar á Íslandi tryggi skýr­ari ferla og frá­tek­inn svæði fyrir fólk sem lík­am­lega getur ekki staðið heilu tón­leik­ana.

UPPFÆRT: Of Monsters and Men hafa brugð­ist við frétt Mannlífs um málið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una