Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Bróðir hans þakk­látur en segir bið­ina sára

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Grinda­vík Leitin hefst á morgun Mynd: Shutterstock

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum und­ir­býr leit að lík­ams­leifum Lúðvíks Pét­urs­sonar í Grinda­vík á morgun, en hann féll niður um jarð­fall í bænum í jan­úar 2024. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni en RÚV sagði frá mál­inu.

Við­bragðs­að­ilar og sér­fræð­ingar vinna að und­ir­bún­ingi í dag, meðal ann­ars við að tryggja öryggi og koma upp vinnu­svæði fyrir leit­ina. Stefnt er að því að hefja aðgerð­ina um klukkan 9 í fyrra­málið við Vest­ur­hóp 29 í Grinda­vík.

Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum hefur virkjað vett­vangs­stjórn vegna aðgerð­ar­innar og er hún þegar að störfum í Grinda­vík. Leitin fer fram í kjöl­far áhættu­mats sem lög­reglu­stjór­inn ber ábyrgð á og unnið er eftir við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd aðgerð­ar­innar.

Bróðir Lúðvíks þakklátur en segir biðina sára

Elías Pét­urs­son, bróðir Lúðvíks, sagð­ist um helg­ina þakk­látur öllum sem hefðu lagt sitt af mörkum til að ákveðið yrði að ráð­ast í leit­ina, sem og þeim sem fara niður í gryfj­una til að leita að lík­ams­leifum bróður hans.

Þetta skrif­aði Elías í færslu á Facebook. Þar sagði hann jafn­framt erfitt að horfa fram hjá því hversu skamman tíma hefði tekið að setja Lúðvík í þá hættu sem leiddi til dauða hans, en hversu langan tíma hefði tekið að und­ir­búa leit­ina. Nærri þrjú ár væru liðin.

„Það þurfti áhættu­mat, mat erlendra sér­fræð­inga og mót­væg­is­að­gerðir áður en óhætt þótti að senda nokkurn mann niður í sprung­una. Það er rétt og eðli­legt að fara var­lega,“ skrif­aði Elías.

Hann benti hins vegar á að þegar Lúðvík og vinnu­fé­lagi hans voru sendir til starfa í bak­garði í Grinda­vík í jan­úar 2024, þar sem þeir áttu að fylla undir hús, hefðu engar sam­bæri­legar örygg­is­ráð­staf­anir verið gerðar.

Að sögn Elíasar hafði Veð­ur­stofan þá þegar varað sér­stak­lega við sprungu­hreyf­ingum, en ekk­ert áhættu­mat hefði legið fyrir um hætt­una sem fylgdi verk­efn­inu sem þeim var falið. Ekki hefði heldur verið metið hvort verkið væri yfir­höfuð áhætt­unnar virði.

Elías segir sár­ast að dauða Lúðvíks hefði mátt koma í veg fyrir.

„Lúlli dó ekki vegna óvið­ráð­an­legra nátt­úru­afla, heldur vegna ákvarð­ana sem voru teknar og ákvarð­ana sem ekki voru teknar en hefðu betur verið teknar,“ skrif­aði Elías.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina