Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

María Lilja rekin af Samstöðinni

„Afkomu­ótt­inn orð­inn áþreif­an­legri en nokkru sinni“

María Lilja rekin af Samstöðinni
María Lilja María Lilja hyggst hefja hlað­varp á næst­unni

María Lilja Ing­veldar-Þrast­ar­dóttir Kemp segir að ráðn­ing­ar­sam­bandi hennar við Sam­stöð­ina hafi verið rift þegar hún hugð­ist snúa aftur úr veik­inda­leyfi. Hún hyggst nú hefja eigið hlað­varp og biður fólk um fjár­stuðn­ing við nýtt upp­haf.

María Lilja segir í færslu á Facebook að henni hafi verið sagt upp störfum hjá Sam­stöð­inni þegar hún hugð­ist snúa aftur úr veik­inda­leyfi. Hún segir ákvörð­un­ina hafa verið mikið áfall og að hún standi nú frammi fyrir fjár­hags­legum erf­ið­leikum.

„Án þess að fara neitt sér­stak­lega í saumana á því hér þá var ég rekin af Sam­stöð­inni þegar ég hugð­ist snúa aftur úr veik­inda­leyfi. Öllu heldur, ráðn­ing­ar­sam­bandi mínu var rift, á afar hæpnum grund­velli svo það sé sagt,“ skrifar María Lilja.

Hún segir Blaða­manna­fé­lag Íslands og lög­mann félags­ins hafa stutt sig í mál­inu og þakkar þeim fyrir stuðn­ing­inn.

Að sögn Maríu Lilju hyggst Sam­stöðin ekki greiða henni lög­bund­inn upp­sagn­ar­frest og hafi jafn­framt hafnað beiðnum hennar um að fá að starfa út frest­inn. Hún segir þetta hafa áhrif á rétt sinn til atvinnu­leys­is­bóta og að henni hafi ekki tek­ist að finna nýja vinnu þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir.

„Ég fæ ekki svo mikið sem við­tal og þá skiptir engu hvaða vinnu ég sæki um,“ skrifar hún.

Hún vísar jafn­framt til þess að hún sé umdeild og að yfir höfði hennar hangi alvar­leg kæra. Hún segir sig sæta lög­reglu­rann­sókn vegna meintra tengsla við hryðju­verka­sam­tök, mútur og land­ráð.

„Hver vill ráða umdeilda fer­tuga konu sem hefur hang­andi yfir höfði sér alvar­lega kæru, sætir lög­reglu­rann­sókn fyrir tengsl við hryðju­verka­sam­tök, mútur og alls­konar land­ráð.

Fucked. Cancelled,“ skrifar María Lilja og á þá við kæru á hendur henni vegna fjár­stuðn­ings við Palest­ínu­menn en hún fór ásamt fleiri konum til Egypta­lands til að greiða fyrir heim­komu Gaza-búa sem höfðu þá þegar fengið dval­ar­leyfi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar. Þannig tókst þeim að bjarga þó nokkrum fjöl­skyldum frá hryll­ingnum á Gaza.

Hefur fundið fyrir auknum fjárhagsáhyggjum

María Lilja segir stöð­una hafa reynst sér erfið, ekki síst þar sem hún sé ein­stæð móðir á leigu­mark­aði.

„Sem ein­stæð móðir á leigu­mark­aði hef ég svosem lent í ýmsu í gegnum tíð­ina en við­ur­kenni að eftir því sem liðið hefur á mán­uð­inn hefur hnút­ur­inn í mag­anum stækkað hraðar og afkomu­ótt­inn orðið áþreif­an­legri en nokkru sinni,“ skrifar hún.

Hún seg­ist þó ekki ætla að gef­ast upp. Hvatn­ing­ar­skila­boð frá fólki sem hafi saknað hennar í dag­skrár­gerð hafi meðal ann­ars orðið til þess að hún ákvað að hefja nýtt verk­efni.

„Ég hef ákveðið að svara kall­inu og fara af stað með eigið hlað­varp sem að vonum vex og verður að ein­hverju stærra.“

María Lilja von­ast til að fyrsti þátt­ur­inn verði tek­inn upp og birtur fyrir lok næstu viku, að því gefnu að allt gangi að óskum.

Biður um fjárstuðning við nýtt upphaf

Í færsl­unni biður María Lilja fólk sem hefur tök á því að styrkja hana fjár­hags­lega á meðan hún kemur nýja verk­efn­inu af stað.

„Mér þykir það ekki auð­velt að betla pen­inga fyrir sjálfa mig en eins og staðan er fyrir þessi mán­að­ar­mót hef ég ekki ann­arra kosta völ,“ skrifar hún.

Hægt er að styrkja hana í gegnum vef­síð­una Buy Me a Coffee eða með milli­færslu á reikn­ing hennar: 2200 26 727727 kt. 0109863039.

María Lilja segir jafn­framt að þeir sem hafi áhuga á að ráða hana til starfa geti haft sam­band við sig.

Hún lýkur færsl­unni á þakk­læti til þeirra sem hafa sýnt henni stuðn­ing og hvatn­ingu und­an­farið.

„Áfram veg­inn og þús­und sinnum takk!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð