Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Flugmenn sáu undarlegan silfurlitan hlut á himni yfir Ohio

„Gætið þess að taka fram hvaða litur var á geim­ver­unni“

Flugmenn sáu undarlegan silfurlitan hlut á himni yfir Ohio
Tölvu­gerð mynd af hlutnum Flug­menn­irnir lýstu hlutnum sem silf­ur­lit­aðan og pillu­laga Mynd: NUFORC

Flugmenn á flugi yfir Ohio í Banda­ríkj­unum höfðu sam­band við flug­um­ferð­ar­stjórn eftir að þeir komu auga á und­ar­legan hlut skammt frá flug­vél sinni. Þeim var hins vegar tjáð að ekk­ert slíkt væri sýni­legt á rat­sjá.

Í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef National UFO Report­ing Center (NUFORC) þann 26. októ­ber er hlutnum lýst sem silf­ur­lit­uðum og pillu­laga. Hann virt­ist nán­ast kyrr­stæður þegar flug­vélin nálg­að­ist hann.

Einn flug­mann­anna náði ljós­mynd af hlutnum og lýsti honum nánar í eft­ir­fylgni­sam­tali við Ben Hansen, rann­sak­anda hjá NUFORC. Atvikið átti sér stað 16. ágúst.

Ljós­myndinEkki skýr mynd en sýnir að eitt­hvað var þarna

„Yfir­borðið var silf­ur­litað og mjög end­ur­kastandi, líkt og hreinn, fág­aður málmur,“ segir í skýrslu rann­sak­and­ans. Flug­mað­ur­inn er aðeins auð­kenndur með bók­stafnum J.

„J lýsti óþekkta fljúg­andi hlutnum sem eins­leitum og pillu­laga. Engar dældir eða fell­ingar voru á yfir­borð­inu og hann mjókk­aði ekki að neðan,“ skrif­aði Hansen.

Áhöfnin sá engar aðrar flug­vélar á árekstr­ar­við­vör­un­ar­kerfi sínu eða í smá­forriti sem fylgist með flug­um­ferð. Samkvæmt skýrsl­unni sögðu flug­um­ferð­ar­stjórar hjá Cleveland Center einnig að hvorki flug­vélar né óþekktir hlutir væru sýni­legir á rat­sjá.

J taldi mögu­legt að hlut­ur­inn hefði komið út úr þrumu­skýjum sem flug­menn­irnir reyndu að fljúga á milli.

Hann velti því þó fyrir sér hvort loft­belgur hefði yfir­höfuð getað lifað af slíkar aðstæður. Flug­vélin þeirra hafði sjálf orðið fyrir ísingu á hreyflum og miðl­ungs miklum ókyrrð­ar­á­hrifum eftir að hún flaug inn í skýin.

NUFORC stað­festi að banda­ríska flug­mála­stjórnin (FAA) hefði ekki greint hlut­inn á rat­sjá og að engar upp­lýs­ingar hefðu fund­ist í gagna­grunnum um fyr­ir­hug­aðar loft­belgja­slepp­ingar á svæð­inu.

„Þegar þetta er skoðað í sam­hengi við mat sjón­ar­votts­ins, sem taldi hlut­inn vera að minnsta kosti 30 fet (um níu metra) á hæð og með eins­leita lögun án þess að mjókka að ofan eða neðan, skap­ast ákveðnir erf­ið­leikar við þá kenn­ingu að um loft­belg hafi verið að ræða,“ sagði Hansen í skýrsl­unni.

Flaug í 12.500 metra hæð

Um klukkan átta að kvöldi að stað­ar­tíma sögð­ust flug­menn­irnir vera í 41.000 feta hæð, eða um 12.500 metra, og nálg­ast stórt þrumu­veður. Skýin náðu allt að 55.000 feta hæð, eða tæp­lega 17.000 metrum.

Þeir ákváðu að örugg­ast væri að fljúga í gegnum op á milli skýj­anna.

Það var þá sem J kom auga á und­ar­legan hlut fyrir framan flug­vél­ina, örlítið ofar en hún var stödd.

Í fyrstu taldi hann hlut­inn vera í um fimm mílna fjar­lægð, en áætl­aði síðar að fjar­lægðin hefði fremur verið tvær til þrjár mílur.

Flug­menn­irnir töldu hlut­inn vera í um 43.000 feta hæð, eða rúm­lega 13.000 metrum, og að hann hefði flogið í gagn­stæða átt og farið fram hjá þeim vinstra megin.

Í fyrstu velti J fyrir sér hvort um veð­ur­belg væri að ræða. Lögun hlut­ar­ins, sem var jafn og mjókk­aði ekki að neðan, vakti hins vegar efa­semdir um þá skýr­ingu.

Yfir­borðið virt­ist úr mjög fág­uðum málmi. J taldi birt­una stafa af end­ur­kasti sól­ar­ljóss en ekki því að hlut­ur­inn gæfi frá sér eigið ljós.

Atvikið stóð yfir í um tvær mín­útur. Samkvæmt flugupp­lýs­ingum sem J lagði síðar fram var flug­vélin á um 380 mílna hraða á klukku­stund, eða rúm­lega 610 kíló­metra hraða.

J tók eina ljós­mynd af hlutnum með iPhone-síma sínum eftir að hann hafði flogið fram hjá flug­vél­inni. Þá taldi hann hann vera um sjö mílur að baki flug­vél­inni. Hann lagði þó áherslu á að lýs­ing hans á hlutnum byggð­ist fyrst og fremst á því þegar hann hafði verið mun nær honum fyrr í atvik­inu.

Flug­mað­ur­inn sagði að aðkoman og fram­hjá­flugið hefðu minnt hann á þegar flug­vélar mæt­ast á lofti. Það styrkti þá til­finn­ingu hans að hlut­ur­inn hefði verið á hreyf­ingu en ekki svifið kyrr á sama stað.

Um mín­útu eftir að hann sá hlut­inn fyrst hafði hann sam­band við flug­um­ferð­ar­stjór­ana hjá Cleveland Center og spurði hvort ein­hverjar flug­vélar eða veð­ur­belgir væru á svæð­inu.

Ekkert kom fram á árekstr­ar­við­vör­un­ar­kerfi flug­vél­ar­innar eða í flugrakn­ing­ar­for­riti flug­manns­ins. Samkvæmt frá­sögn J sögðu flug­um­ferð­ar­stjór­arnir einnig að ekk­ert væri sýni­legt á rat­sjá á svæð­inu þar sem þeir höfðu séð hlut­inn.

Flug­menn­irnir héldu áfram að fylgj­ast með hlutnum þar til hann hvarf í fjarska fyrir aftan þá.

Gagnrýna viðbrögð flugumferðarstjórnar

NUFORC segir að atvikið veki víð­tæk­ari spurn­ingar um hvernig yfir­völd taki á til­kynn­ingum um óþekkta hluti í nágrenni almennra far­þega­flug­véla.

Samtökin benda á að ekk­ert bendi til þess að FAA hafi vísað mál­inu áfram til ann­arra stofn­ana til frek­ari rann­sóknar. Þau telja að hugs­an­legri hættu fyrir flug­ör­yggi eigi að fylgja betur eftir.

Þau vekja einnig athygli á sam­tali í hljóð­upp­töku frá atvik­inu þar sem flug­um­ferð­ar­stjóri grín­að­ist með það að flug­menn­irnir myndu senda skýrslu til NUFORC.

„Gætið þess að taka fram hvaða litur var á geim­ver­unni,“ sagði flug­um­ferð­ar­stjór­inn í gríni.

NUFORC telur slík við­brögð ýta undir þann for­dóma sem fylgi til­kynn­ingum um UFO-sjónir og geti fælt flug­menn frá því að greina frá slíkum atvikum.

Samtökin benda á að jafn­vel þótt í ljós komi að um loft­belg hafi verið að ræða geti nær­vera hans í stýrðu loft­rými skapað hættu.

Flug­vélar sem ferð­ast á hund­ruðum kíló­metra hraða geti orðið fyrir alvar­legum skemmdum við árekstur við slíka hluti. Óþekktir eft­ir­lits­belgir geti auk þess skapað ógn við þjóðar­ör­yggi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heimur

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Málið vakti talsverða athygli meðal íbúa
Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana