1
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

2
Fólk

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

3
Innlent

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík

4
Innlent

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

5
Innlent

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion

6
Fólk

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

7
Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin

8
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

9
Heimur

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok

10
Pólitík

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert

Til baka

Bryndís Björg Guðmundsdóttir er látin

Kerti
Mynd: KinoMasterskaya/Shutterstock

Bryndís Björg Guðmundsdóttir, fyrrverandi skólastjóri Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ, lést á líknardeild í Kópavogi þann 25. apríl, 62 ára gömul. Mbl.is sagði frá andlátinu.

Hún fæddist í Keflavík 1. júní árið 1963 og voru foreldrar hennar Guðmundur Ármann Ingólfsson og Guðrún Guðmundsdóttir.

Bryndís lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík árið 1982. Síðar útskrifaðist hún með B.Ed.-gráðu frá grunnskóladeild Háskóla Íslands árið 2001, nam stjórnun og forystu í skólastarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands árið 2006 og lauk M.Ed.-prófi í stjórnun menntastofnana árið 2021.

Á starfsferli sínum gegndi Bryndís starfi skólastjóra Myllubakkaskóla í áratug og starfaði einnig sem deildarstjóri á fræðslusviði Suðurnesjabæjar í eitt ár. Hún kenndi við Myllubakkaskóla, Holtaskóla og Heiðarskóla, var deildarstjóri í Heiðarskóla og síðar aðstoðarskólastjóri í Akurskóla.

Bryndís var þekkt fyrir öfluga stjórnunarhæfni og ríkan áhuga á menntamálum og velferð barna. Hún bjó yfir víðtækri reynslu á sviði skólamála, einkum innan grunnskóla, og lagði mikla áherslu á þróun lærdómssamfélags og aukin gæði í kennslu og skólastarfi.

Hún tók virkan þátt í félagsstarfi. Hún var landsforseti Ladies Circle á árunum 2007–2009 og félagi í Delta Kappa Gamma á Íslandi. Þá sat hún í stjórn félagsins Börnin og við, sem vinnur að málefnum brjóstagjafar, og gegndi starfi gjaldkera Íslendingafélagsins í Árósum. Einnig var hún meðlimur í Oddfellowreglunni, Rebekkustúku nr. 18 Eldey í Reykjanesbæ. Bryndís hafði jafnframt mikinn áhuga á tónlist, lærði á píanó og söng í kór.

Eiginmaður hennar, sem lifir hana, er Arnar Þór Sigurjónsson, forstöðumaður, fæddur 1961. Börn þeirra eru Íris Ósk, fædd 1987, gift Fannari Helga Rúnarssyni, og eiga þau tvö börn, Elías Snæ og Tönju Sif; Örn Brynþór, fæddur 1989; og Logi Bergþór, fæddur 1995, sem er í sambandi með Helgu Dís Halldórsdóttur. Þá tóku Bryndís og Arnar að sér fósturbarn, Stefán Jón Friðriksson.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna
Fólk

Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna

Andri Már kveður leikskólann Baug eftir tæplega átta ár í starfi
Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn
Innlent

Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn

Dorrit skorar á forseta Ísraels að hleypa arabískum flokkum í ríkisstjórn
Pólitík

Dorrit skorar á forseta Ísraels að hleypa arabískum flokkum í ríkisstjórn

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn
Innlent

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn

Átta ára drengur skotinn til bana
Heimur

Átta ára drengur skotinn til bana

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta
Heimur

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta

Heimir Már skorar á Macron að undirbúa kjarnorkuvopn til notkunar
Innlent

Heimir Már skorar á Macron að undirbúa kjarnorkuvopn til notkunar

Sverrir segir íslamófóbíu byggja á vanþekkingu
Innlent

Sverrir segir íslamófóbíu byggja á vanþekkingu

Segir öfgaíslamista og öfga hægrimenn eiga margt sameiginlegt
Pólitík

Segir öfgaíslamista og öfga hægrimenn eiga margt sameiginlegt

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“
Pólitík

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“

Íslenskir sérfræðingar vara við of lítilli þátttöku í brjóstaskimun
Innlent

Íslenskir sérfræðingar vara við of lítilli þátttöku í brjóstaskimun

Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin
Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin

Arnþór Örlygsson er fallinn frá
Minning

Arnþór Örlygsson er fallinn frá

Björgvin Birgisson er fallinn frá
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá
Minning

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá

Áslaug Arna kveður ömmu sína
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Loka auglýsingu