1
Minning

Þóra í Bakkakoti er látin

2
Pólitík

Feðgar í framboði vilja bylta borginni

3
Fólk

„Lífið varð erfitt í kjölfar ásakananna“

4
Heimur

„Kherson-níumenningarnir“ dæmdir í allt að 20 ára fangelsisvist

5
Heimur

Svona myrtu Ísraelar blaðakonuna Amal Khalil

6
Fólk

Páll var átta ára farinn að spá í hlutabréfum

7
Heimur

Russel Brand í vandræðum í viðtali við Piers Morgan

8
Fólk

Ari lifir með kæfisvefn

9
Heimur

Hermaður sem ætlaði að vitna um UFO-áætlanir lést skömmu fyrir áheyrn þingsins

10
Heimur

Eigandi Home Alone-hússins fannst látin á náttúruverndarsvæði

Til baka

Ekki einn þingmaður hefur svarað bréfi Hjálmtýs um Gaza

„Enginn hefur brugðist við sendingunni - ekki einu sinni sveiattan.“

Hjálmtýr Heiðdal
Hjálmtýr HeiðdalHjálmtýr er afar ósáttur við svaraleysið

Formaður félagsins Ísland-Palestína, Hjálmtýr Heiðdal, segist hafa sent öllum þingmönnum Alþingis bréf ásamt grein eftir bresk-ísraelska arkitektinn Eyal Weizman fyrir um viku síðan, án þess að fá nokkur viðbrögð.

Í færslu sem hann birti á Facebook lýsir Hjálmtýr yfir vonbrigðum með þögn kjörinna fulltrúa og gagnrýnir að fáir þingmenn hafi tjáð sig opinberlega um stöðuna í Palestínu eða eins og hann orðar það sjálfur: „Enginn hefur brugðist við sendingunni - ekki einu sinni sveiattan.“

Í bréfinu spyr hann meðal annars: „Hvað er að gerast á Gaza?“ og bendir á að átökin þar hafi fengið minni athygli undanfarið, meðal annars vegna annarra alþjóðlegra átaka.

Hann segir grein Weizman varpa ljósi á stöðuna á Gaza og þróun mála á Vesturbakkanum, þar sem hann lýsir ofbeldi og landtökum gegn Palestínumönnum. Þá leggur hann áherslu á að ástandið sé ekki einangrað heldur endurspegli hættulega þróun í alþjóðamálum.

Í bréfinu segir orðrétt:

„Það er engin rödd svo veik að hún skipti ekki máli ef hún segir sannleikann - margar raddir mynda raddkór sem getur náð eyrum þeirra sem geta brugðist við og orðið að öldu sem brýtur veggi þagnarinnar.“

Hjálmtýr heldur því fram að þögn stjórnvalda skapi ábyrgð þegar alvarleg mannréttindabrot eigi sér stað og vísar til alþjóðlegra sáttmála sem settir voru eftir síðari heimsstyrjöld, þar á meðal stofnunar Sameinuðu þjóðanna og mannréttindayfirlýsinga.

Hann hvetur íslensk stjórnvöld til frekari aðgerða og bendir á að Ísland hafi þegar tekið þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum.

Í bréfinu segir einnig:

„Það blasir við að niðurstaðan getur ekki orðið önnur en sú að Ísrael fremji þjóðarmorð. En hver verður eftirleikurinn eftir uppkvaðningu dómsins?“

Hjálmtýr telur að til að raunveruleg áhrif náist þurfi að grípa til víðtækra aðgerða, meðal annars með því að setja bann á viðskipti, menningar- og íþróttasamstarf við Ísrael.

Hann segir að slík skref þurfi að vera hluti af víðtækara alþjóðlegu samstarfi og að ábyrgð hvíli sérstaklega á kjörnum fulltrúum að bregðast við þróuninni.

Bréfið

Ágætu þingmenn

Hvað er að gerast á Gaza?
Ástandið á Gaza hefur ekki verið mikið í sviðsljósinu eftir að Donald Trump og Netanyahu beindu morðtólum sínum að Íran og Líbanon.
Meðfylgjandi grein eftir bresk- ísraelska arkitektinn Eyal Weizman gefur ítarlega mynd af því sem er að gerast á Gaza og sýnir einnig hver verður framtíð Vesturbakkans þar sem óður landræningjaskríll eyðileggur búsvæði og myrðir Palestínumenn í hundraðatali.

Ástandið á Gaza er ekki einangrað frá því sem gerist í öðrum löndum. Það sem gerist þar er aðvörun um það hvert stefnir í alþjóðamálum.

Framtíð mannkyns veltur á því að þeir sem stefna að eyðileggingu hennar verði stöðvaðir og dregnir til ábyrgðar.
Það verkefni er okkar allra sem skilja ástandið og hvert framhald núverandi átaka og eyðileggingar mun leiða - sem að auki hafa mikil og neikvæð áhrif á vistkerfið.
Það er ekki síst verkefni þeirra sem hafa verið kjörnir til ábyrgðarstarfa á þingum og í stofnunum og samtökum um allan heim. Ef þessir aðilar gera ekkert til að stemma stigu við þeirri neikvæðu þróun sem minnkar möguleika jarðarbúa á lífvænlegri framtíð - þá eru þau meðábyrg þeim sem fremstir fara í eyðilegginu og manndrápum.

Íslenskir þingmenn og ráðherrar hafa vettvang til þess að leggja sín lóð á vogarskálarnar. Það geta þeir gert á heimavelli og á fundum og ráðstefnum erlendis. Það er engin rödd svo veik að hún skipti ekki máli ef hún segir sannleikann - margar raddir mynda raddkór sem getur náð eyrum þeirra sem geta brugðist við og orðið að öldu sem brýtur veggi þagnarinnar.

Fáir Alþingismenn hafa kveðið sér hljóðs og rætt ástandið í Palestínu, það er þögnin sem er ráðandi.
Það skapar ábyrgð þegar þjóðarmorð er á allra vitorði.

Eftir að helförin gegn gyðingum varð heiminum ljós voru teknar skynsamlegar ákvarðanir. Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar 1945 til þess að viðhalda friði með því að efla alþjóðlegt samstarf og öryggi í heiminum.
Genfarsáttmálarnir frá 1949 innihéldu alþjóðleg mannúðarlög og Mannréttinda-yfirlýsingin frá 1948 er undirstaða annarra mannréttindasamninga. Samþykktir þessar voru allar skref til betri framtíðar.
Nú er þetta starf eyðilagt, eyðingaöflin fara hröðum skrefum í átt að afnámi alls þess sem þessir áfangar gáfu okkur.
Við þessu verður að bregðast með öllum tiltækum ráðum.

Ríksistjórn íslands hefur tekið nokkur jákvæð skerf sem eiga við í þessu ástandi.
Hæst ber þátttaka í hinni mikilvægu málssókn S-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum.
Það blasir við að niðurstaðan getur ekki orðið önnur en sú að Ísrael fremji þjóðarmorð. En hver verður eftirleikurinn eftir uppkvaðningu dómsins?
Eftirleikurinn verður enginn og eyðingaröflin halda áfram sem fyrr - nema stjórnvöld sem hafa þá döngun og framsýni, grípi til aðgerða sem afnema áratuga friðhelgi Ísraels - og setji allsherjar bann á viðskipti við Ísrael á svið viðskipta, menningar og íþrótta.

Þetta er eitt skref í rétta átt - en þau verða að vera fleiri og í samstarfi ríkja og samtaka sem bera hag mannkynsins fyrir brjósti.

Hjálmtýr Heiðdal

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Þingkona Demókrata lést í flugslysi
Heimur

Þingkona Demókrata lést í flugslysi

Henni er lýst sem sem öflugum talsmanni menntamála, umhverfisverndar og gagnsæis.
Ungur Íslendingur lést í fallhlífaslysi í Danmörku
Innlent

Ungur Íslendingur lést í fallhlífaslysi í Danmörku

Ari lifir með kæfisvefn
Viðtal
Fólk

Ari lifir með kæfisvefn

Breskur áhrifavaldur lést eftir að bíl var ekið á hann
Heimur

Breskur áhrifavaldur lést eftir að bíl var ekið á hann

Trump fluttur á brott eftir að skotárás hófst á hátíðarkvöldverði í Washington
Heimur

Trump fluttur á brott eftir að skotárás hófst á hátíðarkvöldverði í Washington

Andlega veikur maður fluttur á bráðadeild eftir rúðubrot
Innlent

Andlega veikur maður fluttur á bráðadeild eftir rúðubrot

Þóra í Bakkakoti er látin
Minning

Þóra í Bakkakoti er látin

Páll var átta ára farinn að spá í hlutabréfum
Viðtal
Fólk

Páll var átta ára farinn að spá í hlutabréfum

Hermaður sem ætlaði að vitna um UFO-áætlanir lést skömmu fyrir áheyrn þingsins
Heimur

Hermaður sem ætlaði að vitna um UFO-áætlanir lést skömmu fyrir áheyrn þingsins

„Kherson-níumenningarnir“ dæmdir í allt að 20 ára fangelsisvist
Heimur

„Kherson-níumenningarnir“ dæmdir í allt að 20 ára fangelsisvist

Fyrrverandi útfararstjóri dæmdur fyrir að fela hundruð líka
Heimur

Fyrrverandi útfararstjóri dæmdur fyrir að fela hundruð líka

„Lífið varð erfitt í kjölfar ásakananna“
Viðtal
Fólk

„Lífið varð erfitt í kjölfar ásakananna“

Eigandi Home Alone-hússins fannst látin á náttúruverndarsvæði
Heimur

Eigandi Home Alone-hússins fannst látin á náttúruverndarsvæði

Innlent

Ungur Íslendingur lést í fallhlífaslysi í Danmörku
Innlent

Ungur Íslendingur lést í fallhlífaslysi í Danmörku

Vitnum hefur verið boðin áfallahjálp
„Þegar íslenskur aðili greiðir mútur þá er spillingin líka íslensk“
Innlent

„Þegar íslenskur aðili greiðir mútur þá er spillingin líka íslensk“

Ekki einn þingmaður hefur svarað bréfi Hjálmtýs um Gaza
Innlent

Ekki einn þingmaður hefur svarað bréfi Hjálmtýs um Gaza

Andlega veikur maður fluttur á bráðadeild eftir rúðubrot
Innlent

Andlega veikur maður fluttur á bráðadeild eftir rúðubrot

Tveir ökumenn, grunaðir um ölvunarakstur, ollu umferðaslysi
Innlent

Tveir ökumenn, grunaðir um ölvunarakstur, ollu umferðaslysi

Segir leik Snorra í High School Musical fyrirboða
Myndband
Innlent

Segir leik Snorra í High School Musical fyrirboða

Loka auglýsingu