1
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

2
Heimur

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni

3
Heimur

Samþykkja umdeildar reglur á vinsælum ströndum Tenerife

4
Innlent

Ætlaði úr landi með þýfi úr Icewear og Jysk

5
Innlent

Dauðsfall erlendis kveikir spurningar um réttindi íslenskra sjúklinga

6
Innlent

Kosningasigur múslímskrar konu kveikir hörð viðbrögð Íslendinga

7
Innlent

„Hvað á maður að segja þegar horft er upp á aðra eins grimmd?“

8
Innlent

Brúni hundamítillinn greindist á Selfossi

9
Innlent

Skúli ósáttur við Sif og segir skrifin sérkennileg og sorgleg

10
Innlent

Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli

Til baka

Forsetinn í mótsögn við sjálfan sig

Donald Trump í eiturlyfjastríði en náðar fyrrverandi forseta sem var dæmdur fyrir stórfellt smygl.

Donald Trump Bandaríkjaforseti
Donald TrumpHefur gert stríð gegn fíkniefnum að ástæðu til að gera ýmsar árásir.
Mynd: Shutterstock

Donald Trump og nánustu ráðgjafar hans segja eiturlyfjasamtök helstu ógn við Bandaríkin – á sama tíma og forsetinn hyggst náða fyrrverandi forseta Hondúras, dæmdan fyrir umfangsmikla fíkniefnaviðskipti.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hert hernaðaraðgerðir sínar í Karíbahafi og kringum Venesúela, með söfnun herliðs og loftárásum á meinta smyglbáta – en á sama tíma tilkynnt á samfélagsmiðlum að hann muni veita Juan Orlando Hernández, fyrrverandi forseta Hondúras, „fulla og algjöra“ náðun, þrátt fyrir 45 ára dóm í Bandaríkjunum fyrir innflutning á hundruðum tonna af kókaíni, að því er kemur fram í umfjöllun The New York Times og opinberum gögnum bandarískra stjórnvalda.

Á laugardag skrifaði Trump á Truth Social að lofthelgi „yfir og í kringum Venesúela“ skyldi talin „ALGERLEGA LOKUГ. Boðskapurinn beindist bæði að flugfélögum, flugmönnum og „eiturlyfja- og mansalshringjum“. Engin skýr útskýring fylgdi um hvernig Bandaríkin hygðust framfylgja slíku ákvæði um erlenda lofthelgi, og venesúelska stjórnin fordæmdi yfirlýsinguna sem brot á fullveldi ríkisins.

Minna en sólarhring áður hafði forsetinn á sama vettvangi tilkynnt áform um að veita Hernández, sem var dæmdur í New York árið 2024 fyrir aðstoð við að flytja meira en 400 tonn af kókaíni til Bandaríkjanna, fulla náðun. Í færslunni sagði Trump að Hernández hefði, „að sögn margra sem hann beri mikla virðingu fyrir“, verið meðhöndlaður „afar harkalega og ósanngjarnt“. Náðunin hefur þó enn ekki verið fullgilt stjórnarfarslega.

Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur lýst Hernández sem lykilpersónu í einu „umfangsmesta og ofbeldisfyllsta“ eiturlyfjahringakerfi heims. Hann hafi misnotað forsetaembættið til að vernda glæpahópa sem fluttu kókaín í gegn um Hondúras og inn í Bandaríkin og haldið sér við völd með „kókaín-drifnu mútufé“ og stuðningi hers, lögreglu og dómskerfis.

Samhliða áformum um náðun hefur ríkisstjórn Trumps safnað herafla í Karíbahafi undir merkjum aðgerðarinnar Operation Southern Spear. Bandaríski herinn hefur frá byrjun september gert rúmlega tuttugu loftárásir á báta sem sagðir eru flytja eiturlyf. Að minnsta kosti um 80 manns hafa farist, án þess að stjórnin hafi birt sjálfstætt sannreynanlegar upplýsingar um hverjir voru um borð eða hvaða farmur var á skipunum.

Washington Post hefur greint frá því að varnarmálaráðherrann Pete Hegseth hafi í fyrstu árásinni skipað sérsveitum að „drepa alla“ um borð í bát nálægt Trínidad, og að seinni eldflaugaárás hafi verið gerð til að fella tvo sem lifðu fyrstu sprenginguna af. Í kjölfarið svaraði Hegseth gagnrýninni á samfélagsmiðlum og sagði að hernaðaraðgerðirnar væru „lögmætar“ og bætti við: „Við erum rétt að byrja að drepa narkó-hryðjuverkamenn.“

Fyrrverandi aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna í málaflokki alþjóðlegra fíkniefna- og löggæslumála, Todd Robinson, segir þessi skilaboð forsetans senda hættuleg og mótsagnakennd skilaboð. „Við sprengjum báta með „meintu“ eiturlyfi í Karíbahafi en náðum raunverulega dæmda eiturlyfjasala í Bandaríkjunum. Einhver útskýri þetta fyrir mér,“ skrifaði hann á LinkedIn, þar sem hann vísaði til umfjöllunar The New York Times um málið.

Donald Trump Vance Hegseth Rubio
TrumpistarPete Hegseth, sem hér er lengst til hægri á myndinni, skipaði hernum sérstaklega að „drepa alla“ um borð í meintum smyglbát.
Mynd: AFP

Trump hefur jafnframt sett mikinn pólitískan og hernaðarlegan þrýsting á Nicolás Maduro, leiðtoga Venesúela, og sakað hann um að stýra svonefndum Cartel de los Soles. Bandaríkin hafa nýverið skilgreint hópinn sem erlenda hryðjuverkasamtök, en fjölmargir sérfræðingar í fíkniefna- og glæpahópum í Rómönsku Ameríku telja að um sé að ræða laustengt net spilltra hermanna og embættismanna frekar en formlega, stigskiptan „eiturlyfjahring“.

Trump sjálfur var árið 2024 sakfelldur í New York fyrir 34 brot vegna fölsunar viðskiptaskjala í tengslum við greiðslu leyndarpeninga til klámleikkonunnar Stormy Daniels, til að fela hneyksli í forsetakosningabaráttunni 2016. Hann varð þar með fyrsti bandaríski forsetinn til að vera dæmdur sekur um glæp, áður en hann sneri aftur í Hvíta húsið eftir kosningarnar 2024.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Styrkja Mannlíf

Má bjóða þér að styrkja starfsemi Mannlífs með mánaðarlegu framlagi?


Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Páll og Selma Eir eiga von á dreng
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

„Lítill gaur í bumbu“
Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks
Pólitík

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga
Myndband
Sport

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið
Innlent

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif
Viðtal
Stjórnandinn

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu
Pólitík

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag
Innlent

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú
Heimur

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford
Heimur

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu
Innlent

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni
Myndir
Heimur

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni

Heimur

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú
Heimur

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú

Hitler Mussolini Simeón Flores, 45 ára, sigraði í sveitarstjórnarkosningum í litlu héraði í Andesfjöllum í Perú með aðeins 25 atkvæða mun. Hann bauð sig fram fyrir mið-vinstri flokkinn Ahora Nación.
Farþegaþotur skullu saman
Myndband
Heimur

Farþegaþotur skullu saman

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford
Heimur

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni
Myndir
Heimur

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni

Meintur hnífamorðingi í Malmö játar hvorki né neitar
Heimur

Meintur hnífamorðingi í Malmö játar hvorki né neitar

Læknir neitar að hafa skipulagt tvö manndráp í Stokkhólmi
Heimur

Læknir neitar að hafa skipulagt tvö manndráp í Stokkhólmi

Loka auglýsingu