Verkfræðingafélag Íslands segir áhyggjuefni að óvenju mörg mál vegna uppsagna starfsfólks í fæðingarorlofi hafi komið inn á borð félagsins á síðustu misserum. Í grein sem birt hefur verið á Vísi af hálfu félagsins benda forsvarsmenn þess á að þótt aðstæður séu mismunandi milli mála veki þróunin alvarlegar spurningar um virðingu fyrir réttindum foreldra á vinnumarkaði.
Félagið minnir á að samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof sé vinnuveitendum óheimilt að segja starfsmanni upp vegna þess að hann hafi tekið eða hyggist taka fæðingarorlof. Þá eigi starfsmaður almennt rétt á að snúa aftur í fyrra starf að loknu orlofi. Uppsögn á meðan á fæðingarorlofi stendur sé aðeins heimil ef gildar ástæður liggja að baki og beri vinnuveitanda að sýna fram á að ákvörðunin tengist ekki töku orlofsins.
Í greininni kemur fram að lagavernd hefjist þegar starfsmaður tilkynnir yfirmanni um væntanlegan barnsburð og vari þar til viðkomandi snýr aftur til starfa. Félagið telur að sumir vinnuveitendur skorti þekkingu á þessum reglum en í öðrum tilvikum kunni þeir að gera ráð fyrir að starfsfólk leiti ekki réttar síns á viðkvæmum tíma.
Félagið hvetur launþega sem fá uppsögn á meðgöngu eða í fæðingarorlofi til að leita tafarlaust til stéttarfélags síns. Mikilvægt sé að bregðast hratt við þar sem réttindi geti glatast ef málum er ekki fylgt eftir innan tilskilinna tímamarka.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir