1
Heimur

Handtekinn fyrir að berja hund

2
Heimur

Trump með óvenjulegt útspil við Kanada

3
Innlent

Reykvíkingur nær ekki í eiginmann sinn og vill skilja

4
Peningar

Þrettán á Seltjarnarnesi sem eru loðin um lófanna

5
Innlent

Björn Ingi dæmdur fyrir hrottalega nauðgun

6
Pólitík

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn

7
Peningar

Átján í Hafnarfirði með digra sjóði og djúpa vasa

8
Innlent

Sonur þingmanns grunaður um morð

9
Pólitík

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland

10
Fólk

Sána og sex svefnherbergi til sölu í draumahúsi

Til baka

Hinsegin fólk fyrir Palestínu fordæmir „bleikþvott“ Ísraels

„Stolt okkar felst í baráttunni fyrir frelsi okkar allra“

Regnbogafáni
RegnbogafániHópurinn fordæmir þjóðarmorðið á Gaza.
Mynd: Shutterstock

Hópurinn Hinsegin fólk fyrir Palestínu hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fordæmd eru hernaðaraðgerðir Ísraels á Gaza og það sem hópurinn kallar bleikþvott. Þar er jafnframt lýst yfir samstöðu með palestínsku hinsegin fólki og hvatt til áframhaldandi baráttu gegn því sem hópurinn skilgreinir sem hernám og þjóðarmorð.

Í yfirlýsingunni segir að palestínskt hinsegin fólk búi við margþætta kúgun, bæði vegna kynhneigðar eða kynvitundar og vegna átakanna á Gaza.

„Palestínsk systkini okkar ganga nú í gegnum hrottalegt þjóðarmorð af hendi Ísraels, sem er fjármagnað og vopnað af vestrænum stjórnvöldum,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.

Þar er einnig fjallað um bleikþvott, sem hópurinn skilgreinir sem þegar réttindabarátta hinsegin fólks sé notuð til að réttlæta eða draga athygli frá mannréttindabrotum.

Meðal annars segir að það sé bleikþvottur þegar Ísrael kynni Tel Aviv sem áfangastað fyrir hinsegin ferðamenn á sama tíma og hernaðaraðgerðir standi yfir á palestínskum svæðum. Þá er einnig gagnrýnt að árásir á hinsegin fólk séu notaðar til að réttlæta ofbeldi gegn öðrum hópum.

Að lokum er kallað eftir aukinni samstöðu milli hinsegin fólks og Palestínumanna í baráttunni fyrir mannréttindum og sjálfsákvörðunarrétti.

Hinsegin fólk fyrir Palestínu gengur þriðja árið í röð í Gleðigöngunni 2026 sem fram fer næstkomandi laugardag. Öllum er boðið velkomið að ganga með þeim.

Yfirlýsing Hinsegin fólks fyrir Palestínu

Palestínsk systkini okkar ganga nú í gegnum hrottalegt þjóðarmorð af hendi Ísraels, sem er fjármagnað og vopnað af vestrænum stjórnvöldum. Rétt eins og hinsegin fólk alls staðar annars staðar í heiminum þarf palestínskt hinsegin fólk að takast á við margþætta mismunun og kúgun. Baráttuhreyfingin fyrir frjálsri Palestínu stendur þó sterkari en nokkru sinni og við sem hinsegin fólk stöndum stolt sem hluti af henni.

Bleikþvottur er þegar hinseginleiki og hinsegin barátta og málefni eru notuð til að breiða yfir mannréttindabrot, ofbeldi, dráp og landrán Ísraela og bandamanna þeirra. Við sem hinsegin fólk verðum að leiða baráttuna gegn bleikþvotti og ofbeldinu sem það leiðir af sér.

Það er bleikþvottur þegar hinsegin hermenn í ólöglegu hernámsliði Ísraels sprengja upp palestínsk heimili og veifa svo regnbogafánum ofan á rústunum og líkum palestínumanna, þar á meðal hinsegin fólks, til að fela glæpi sína og dreifa athygli frá ofbeldi sínu.

Það er bleikþvottur þegar Ísrael auglýsir Tel Aviv sem ferðamannastað fyrir hinsegin fólk á meðan það myrðir hinsegin Palestínufólk nokkrum kílómetrum frá.

Það er bleikþvottur þegar okkur er sagt að hata fólk frá Arabalöndum af því þau hati okkur.

Það er bleikþvottur þegar árásir á okkur eru notaðar í þeim tilgangi að réttlæta ofbeldi gegn öðrum.

Á tímum þar sem stofnanir og stjórnmálafólk um allan heim ráðast að tilvist og lífum trans fólks, og Palestínufólk af öllum kynjum og kynhneigðum berst gegn kúgun Ísraels, verðum við að taka höndum saman til að byggja upp og standa vörð um réttlæti og sjálfsákvörðunarrétt fyrir öll.

Stolt okkar og gleði felst í samstöðu og sameiginlegri baráttu sem við heyjum til þess að binda enda á kúgun, hernám og þjóðarmorð alls staðar. Stolt okkar felst í baráttunni fyrir frelsi okkar allra. Palestína skal verða frjáls!

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Tengja þyngdarstjórnunarlyf við metfækkun glæpa
Heimur

Tengja þyngdarstjórnunarlyf við metfækkun glæpa

Mesta fækkun ofbeldisbrota í Bandaríkjunum síðan 1936
Sálfræðingur segir eineltisrannsókn Kristínar Helgu alvarlega gallaða
Innlent

Sálfræðingur segir eineltisrannsókn Kristínar Helgu alvarlega gallaða

Svandís komin með nýtt starf
Fólk

Svandís komin með nýtt starf

Bjartur dæmdur fyrir að kýla konu í höfuðið
Innlent

Bjartur dæmdur fyrir að kýla konu í höfuðið

Atvinnuleysi tekur stökk milli mánaða
Innlent

Atvinnuleysi tekur stökk milli mánaða

„Batman“ handtekinn á Kanarí
Heimur

„Batman“ handtekinn á Kanarí

Annar einstaklingur handtekinn vegna sverðsárásar í Svíþjóð
Heimur

Annar einstaklingur handtekinn vegna sverðsárásar í Svíþjóð

Selja rosalega krúttlegt einbýli í Kópavogi
Myndir
Fólk

Selja rosalega krúttlegt einbýli í Kópavogi

Reynslubolti tekur við Hafró
Innlent

Reynslubolti tekur við Hafró

Björn Ingi dæmdur fyrir hrottalega nauðgun
Innlent

Björn Ingi dæmdur fyrir hrottalega nauðgun

Átján í Hafnarfirði með digra sjóði og djúpa vasa
Peningar

Átján í Hafnarfirði með digra sjóði og djúpa vasa

Ók fullur á tvöföldum hámarkshraða
Innlent

Ók fullur á tvöföldum hámarkshraða

Innlent

Sálfræðingur segir eineltisrannsókn Kristínar Helgu alvarlega gallaða
Innlent

Sálfræðingur segir eineltisrannsókn Kristínar Helgu alvarlega gallaða

Meginmarkmið rannsóknar Kristínar Helgu var að skoða birtingarmyndir eineltis af hálfu kvenkyns gerenda á vinnustöðum
Ók fullur á tvöföldum hámarkshraða
Innlent

Ók fullur á tvöföldum hámarkshraða

Bjartur dæmdur fyrir að kýla konu í höfuðið
Innlent

Bjartur dæmdur fyrir að kýla konu í höfuðið

Atvinnuleysi tekur stökk milli mánaða
Innlent

Atvinnuleysi tekur stökk milli mánaða

Reynslubolti tekur við Hafró
Innlent

Reynslubolti tekur við Hafró

Björn Ingi dæmdur fyrir hrottalega nauðgun
Innlent

Björn Ingi dæmdur fyrir hrottalega nauðgun

Loka auglýsingu