1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

4
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

5
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

6
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

7
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

8
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

9
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

10
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Til baka

Konur á Íslandi oftar gerendur í heimilisofbeldi en áður

„Þegar litið er til tegunda heimilisofbeldis kemur fram aukning á ofbeldi af hendi núverandi maka“

Konur sem beita ofbeldi
Myndin tengist fréttinni ekki beint
Mynd: Unsplash/Eric Ward

Hlutfall kvenna sem grunaðar eru um ofbeldi á heimili mælist nú hærra en áður. Á sama tíma fækkar tilkynningum um ágreining á milli skyldra og tengdra aðila, en tilvikum þar sem grunur er um brot af hendi maka fjölgar.

Ný tölfræði ríkislögreglustjóra fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2026 sýnir breytingar á samsetningu heimilisofbeldismála hér á landi. Á tímabilinu frá janúar til mars voru konur grunaðar um að vera árásaraðili í 27% tilfella, eða rúmlega fjórðungi allra mála. Hlutfallið hefur farið vaxandi undanfarin ár; það mældist 17% árið 2021 og var komið í 24% árið 2025. Karlar eru þó áfram í miklum meirihluta þeirra sem grunaðir eru um árásir, eða 73,5%, á meðan konur utgjöra 67,9% fórnarlamba. Meðalaldur gerenda var 36 ár en meðalaldur þolenda tæp 34 ár.

Ofbeldi í nánum samböndum færist í aukana

Þegar litið er til tegunda heimilisofbeldis kemur fram aukning á ofbeldi af hendi núverandi maka. Slík mál fóru úr 119 tilvikum á fyrsta ársfjórðungi 2025 í 135 tilvik á sama tímabili í ár, sem er 13% aukning. Á móti dró úr ofbeldi af hendi fyrrverandi maka, sem fór úr 70 tilvikum niður í 61. Í málum þar sem um er að ræða núverandi eða fyrrverandi maka voru karlar árásaraðilar í 78,2% tilfella og konur þolendur í 74,4% tilfella.

Ofbeldismálum á milli foreldra og barna fjölgaði einnig lítillega. Tilkynnt var um 52 tilvik þar sem foreldri beitti barn ofbeldi (samanborið við 47 í fyrra) og 57 tilvik þar sem barn beitti foreldri ofbeldi (samanborið við 51 í fyrra).

Færri ágreiningsmál og alvarlegum atvikum fækkar

Heildarfjöldi skráðra heimilisofbeldismála og ágreiningsmála nam 585 tilvikum á fyrstu þremur mánuðum ársins, samanborið við 654 tilvik á sama tímabili í fyrra. Þessi samdráttur skýrist fyrst og fremst af 22% fækkun ágreiningsmála þar sem ekki er grunur um refsivert brot; þau fóru úr 332 í 258. Eiginleg heimilisofbeldismál þar sem grunur er um brot á borð við líkamsárás, hótanir eða eignaspjöll stóðu nánast í stað og voru 327 talsins. Jákvæð teikn eru um að alvarlegustu atvikunum hafi fækkað. Tilvik sem flokkast undir endurtekna eða alvarlega hótun gegn lífi og heilsu (samkvæmt 218. gr. b. almennra hegningarlaga) voru 31, en voru 43 á sama tímabili í fyrra. Beiðnir um nálgunarbann og brottvísun voru hins vegar jafnmargar og í fyrra, eða 35 talsins.

Ofbeldismálin flest á höfuðborgarsvæðinu

Tíðni mála sýnir skýra landfræðilega skiptingu þar sem stærsti hluti málanna kemur upp á höfuðborgarsvæðinu. Um 73% allra heimilisofbeldismála og 63% ágreiningsmála voru skráð þar, á meðan landsbyggðin nam 27% ofbeldismála og 37% ágreiningsmála.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Veðurskipti framundan
Innlent

Veðurskipti framundan

Breytingar taka við á fimmtudag
Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Sex manna fjölskylda brennd til bana
Myndband
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

Innlent

Veðurskipti framundan
Innlent

Veðurskipti framundan

Breytingar taka við á fimmtudag
Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Loka auglýsingu