1
Peningar

Fjórtán í Mosfellsbæ sem synda í seðlum

2
Innlent

Ingunn Rut fékk fimm og hálfa milljón eftir pyntingar á manni

3
Heimur

Níu líffæri fjarlægð eftir ranga greiningu

4
Innlent

MAST varar við girnilegri súkkulaðiköku

5
Fólk

„Það var ekki til neinn peningur“

6
Fólk

Óska eftir tilboði í eitt eftirsóttasta hús Garðabæjar

7
Sport

Bjuggu til sögusagnir í kringum veikindi Jóns

8
Heimur

Kókaínkennari sviptur starfsréttindum

9
Innlent

Reykvíkingur nær ekki í eiginmann sinn og vill skilja

10
Innlent

Sonur þingmanns grunaður um morð

Til baka

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn

„Harður vetur framundan“

Kristrún Frostadóttir
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslandsfundar með Selenskí og leiðtogum stórvelda
Mynd: RAIGO PAJULA / AFP

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók í gær og í fyrradag þátt í mikilvægum fjarfundum með Volodómír Selenskí Úkraínuforseta og leiðtogum helstu stuðningsríkja Úkraínu. Tilefni fundanna var að sýna samstöðu í verki þegar Úkraínumenn fagna því að 35 ár eru liðin frá endurreisn sjálfstæðis landsins.

Staða mála í innrásarstríði Rússa í Úkraínu var rædd í þaula á trúnaðarfundum leiðtoganna. Sjónum var einkum beint að helstu áskorunum við að verja Úkraínu gegn linnulausum skotflaugaárásum Rússa. Þá var rætt um þörfina á að herða enn á þrýstingi og refsiaðgerðum gagnvart Rússlandsstjórn svo unnt verði að knýja fram réttlátan frið. Leiðtogar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) undirstrikuðu eindreginn stuðning sinn við varnarbaráttu Úkraínu í sameiginlegri yfirlýsingu.

Fordæma grimmilegar árásir

„Rússar halda áfram að valda hrikalegri eyðileggingu í innrásarstríði sínu gegn Úkraínu. Við fordæmum Rússlandsstjórn harðlega fyrir grimmilegar árásir á almenna borgara og borgaraleg skotmörk og áréttum samstöðu okkar og stuðning við Úkraínu,“ segir forsætisráðherra á vef stjórnarráðsins.

Hún varar við því að ástandið fari versnandi þegar haustar. „Það er harður vetur framundan. Staðan er einfaldlega þannig að stuðningsríkjum Úkraínu, austan hafs og vestan, ber að gera allt sitt til að mæta varnarþörfum Úkraínu og að styðja við Úkraínumenn með því að leita allra leiða til að tryggja orkuöryggi í landinu.“

Í yfirlýsingu leiðtoganna með Úkraínuforseta kemur fram að NB8-ríkin muni standa með Úkraínu svo lengi sem þörf krefur. Árásir Rússa á almenna borgara og mikilvæga innviði eru harðlega fordæmdar og lýst er yfir stuðningi við enn frekari og hertar þvingunaraðgerðir gegn Rússlandi.

Samstilla loftvarnir fyrir veturinn

Forsætisráðherra tók einnig þátt í víðtækari fjarfundi leiðtoga ríkjahóps til stuðnings Úkraínu. Sá fundur fór fram undir stjórn Sir Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, Emmanuel Macron Frakklandsforseta og Olaf Scholz, sambandskanslara Þýskalands.

Á fundinum gaf Úkraínuforseti starfssystkinum sínum raunsanna og alvarlega lýsingu á stöðunni á vígvellinum. Mikil áhersla var lögð á að nýta vel næstu vikur til að undirbúa Úkraínumenn og styrkja loftvarnir landsins gegn harðnandi árásum Rússa áður en veturinn gengur í garð. Leiðtogar á þriðja tug ríkja tóku þátt í fundinum og ítrekuðu skuldbindingar sínar gagnvart öryggi Evrópu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland
Pólitík

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland

Forsætisráðherrann fyrrverandi blandar sér í baráttuna
Handtekinn fyrir að berja hund
Grein

Handtekinn fyrir að berja hund

„Ef ég er að fela þetta þá væri það erfiðara“
Fólk

„Ef ég er að fela þetta þá væri það erfiðara“

Skelfing í Portúgal þegar maður ók á hóp ungmenna og lögreglumenn
Heimur

Skelfing í Portúgal þegar maður ók á hóp ungmenna og lögreglumenn

Sigfús fasteignasali kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna
Pólitík

Sigfús fasteignasali kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna

Eigandi 49ers sakaður um vændiskaup
Sport

Eigandi 49ers sakaður um vændiskaup

Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að „móðga hetjur“
Heimur

Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að „móðga hetjur“

Úkraína fagnaði sjálfstæðinu með her vélmenna
Myndband
Heimur

Úkraína fagnaði sjálfstæðinu með her vélmenna

Flutti inn mikið magn af maríhúana
Innlent

Flutti inn mikið magn af maríhúana

Reykvíkingur nær ekki í eiginmann sinn og vill skilja
Innlent

Reykvíkingur nær ekki í eiginmann sinn og vill skilja

Reykjavíkurborg útvistar skólaþrifum og segir upp starfsfólki
Innlent

Reykjavíkurborg útvistar skólaþrifum og segir upp starfsfólki

Segir líkindi milli Nei-manna og MAGA
Pólitík

Segir líkindi milli Nei-manna og MAGA

Sána og sex svefnherbergi til sölu í draumahúsi
Myndir
Fólk

Sána og sex svefnherbergi til sölu í draumahúsi

Pólitík

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland
Pólitík

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland

Forsætisráðherrann fyrrverandi blandar sér í baráttuna
Draga ofurhækkun á lægstu tekjuhópana til baka að hluta
Pólitík

Draga ofurhækkun á lægstu tekjuhópana til baka að hluta

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn
Pólitík

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn

Sigfús fasteignasali kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna
Pólitík

Sigfús fasteignasali kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna

Segir líkindi milli Nei-manna og MAGA
Pólitík

Segir líkindi milli Nei-manna og MAGA

Ragnar Þór skipar nýja nefnd
Pólitík

Ragnar Þór skipar nýja nefnd

Loka auglýsingu