1
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

2
Innlent

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi

3
Fólk

Fimmtán ára stóð Andrea í hárinu á glæpamönnum og gafst ekki upp

4
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

5
Fólk

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri

6
Heimur

Sjötíu og sjö prósent líkur á eldgosi á Kanaríeyjum

7
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

8
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

9
Fólk

Landsliðsmaður Íslands á von á barni

10
Innlent

Skilur ekki gagnrýni Breiðfylkingarinnar á samkomulag VR

Til baka

Lokatilboð Trumps - Vill að Úkraína samþykki innlimun Krímskaga og hætti við umsókn í Nató

Úkraínumenn fá frest út daginn.

Donald Trump
Donald TrumpBandaríkjaforseti gefur Úkraínumönnum frest til að svara út daginn.
Mynd: Shutterstock

Í síðustu viku fundaði bandarísk sendinefnd, undir forystu Marco Rubio utanríkisráðherra, með úkraínskum og evrópskum embættismönnum í París og lagði fram tillögu um að binda enda á stríð Rússlands í Úkraínu. Nú hefur vefmiðillinn Axios greint frá innihaldi tillögunnar, með tilvísun í heimildir sem hafa beinan aðgang að málinu.

Samkvæmt frétt Meduza er um að ræða einnar síðu skjal sem skilgreinir þetta sem „lokaútspil“ Bandaríkjanna. Rubio sagði á fundinum að ef tillögunni yrði hafnað myndu Bandaríkin hætta öllum milligöngum í deilunni. Að sögn Axios rennur frestur til að svara útspilinu út miðvikudaginn 23. apríl.

Helstu atriði tillögunnar:

  • Bandaríkin myndu formlega viðurkenna Krímskaga sem hluta af Rússlandi.
  • Öll svæði sem Rússar hafa hernumið síðan í febrúar 2022, að undanskildu litlu svæði í Kharkív-héraði, myndu haldast undir rússneskri stjórn – þó án alþjóðlegrar viðurkenningar. Þetta á við um mestan hluta Lúhansk, auk hluta Dónetsk, Zapórízhja og Khersón.
  • Úkraína myndi skuldbinda sig til að ganga ekki í NATO, en óvíst væri um mögulegt aðildarferli að Evrópusambandinu.
  • Allar viðskiptaþvinganir sem settar voru á Rússland frá árinu 2014 yrðu afnumdar.
  • Bandaríkin og Rússland myndu efla efnahagstengsl sín, sérstaklega á sviði orku og iðnaðar.
  • Öryggi Úkraínu yrði tryggt af hópi evrópskra ríkja – án þess að nefndar séu tryggingar frá Bandaríkjunum.
  • Úkraína myndi fá aðstoð við uppbyggingu eftir stríð, þó ekki sé tilgreint hvaðan fjármagnið kæmi.
  • Kjarnorkuverið í Zapórízhja yrði áfram í eigu Úkraínu, en Bandaríkin myndu sjá um rekstur þess og afhenda rafmagn til bæði Úkraínu og Rússlands.
  • Úkraína yrði einnig skuldbundin til að gera sérstakan samning við Bandaríkin um jarðefnaauðlindir.

Samkvæmt Financial Times lagði Vladímír Pútín til í byrjun apríl að átökin yrðu fryst við núverandi víglínu. Það markaði afturhvarf frá fyrri kröfum hans um yfirráð yfir öllu Lúhansk, Dónetsk, Zapórízhja og Khersón – þar með talið þeim svæðum sem Úkraína heldur enn.

Rubio ræddi þessa sömu tillögu síðar í símtali við Sergej Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, strax eftir Parísarfundinn.

Nýr fundur átti að fara fram í London þann 23. apríl með þátttöku Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópuríkja. Úkraínska sendinefndin ætlaði hins vegar að ræða tímabundinn vopnahlé, ekki nýjan friðarsamning. Rubio dró sig út úr fundinum og fundurinn var á endanum frestað, þrátt fyrir að varnarmálaráðherra og utanríkisráðherra Úkraínu hefðu þegar mætt í höfuðborg Bretlands.

Gert er ráð fyrir að samningur um jarðefnaauðlindir verði undirritaður milli Bandaríkjanna og Úkraínu á morgun, fimmtudaginn 24. apríl, og að Steve Witkoff, sérstakur sendifulltrúi Bandaríkjanna, fari til Rússlands síðar í vikunni til frekari funda með Pútín.

Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, hefur þegar hafnað þessu „lokaútspili“ og sagði að Úkraína myndi aldrei samþykkja innlimun Rússa á Krímskaga né leyfa Bandaríkjunum að reka kjarnorkuverið í Zapórízhja.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi
Innlent

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi

„Frakkar þurfa ekki innflytjendur til að verða róttækir“
Salmonella greindist í innfluttu kryddi
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“
Pólitík

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar
Pólitík

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október
Myndband
Menning

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang
Innlent

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael
Heimur

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

Ragnheiður, Guðmundur og Leifur dusta rykið af perlunum
Menning

Ragnheiður, Guðmundur og Leifur dusta rykið af perlunum

Brotaþoli kvartaði undan lögreglustjóra en þarf að leita til dómstóla
Innlent

Brotaþoli kvartaði undan lögreglustjóra en þarf að leita til dómstóla

Grunur um skipulagt ofbeldi gegn yngri nemendum í sænskum skóla
Heimur

Grunur um skipulagt ofbeldi gegn yngri nemendum í sænskum skóla

Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

Aðrir farþegar tóku eftir hegðun mannsins og var lögreglu gert viðvart
Mætti ísbirni, var handtekinn fyrir njósnir og gekk 58 þúsund kílómetra
Heimur

Mætti ísbirni, var handtekinn fyrir njósnir og gekk 58 þúsund kílómetra

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael
Heimur

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

Grunur um skipulagt ofbeldi gegn yngri nemendum í sænskum skóla
Heimur

Grunur um skipulagt ofbeldi gegn yngri nemendum í sænskum skóla

Rölti um þjóðgarð og fór heim með risademant
Heimur

Rölti um þjóðgarð og fór heim með risademant

Loka auglýsingu