
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Meðal verkefna voru umferðaróhöpp, líkamsárás, eldur á gámasvæði og fjölmörg umferðarlagabrot.
Tilkynnt var um umferðaróhapp í miðbæ Reykjavíkur þar sem ökutæki hafnaði meðal annars á ljósastaur. Engin slys urðu á fólki en tjón varð á bæði ökutækinu og ljósastaurnum. Ökumaðurinn er grunaður um ýmis umferðarlagabrot sem lögregla telur að kunni að hafa átt þátt í óhappinu. Málið er til rannsóknar.
Þá voru nokkrir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra var jafnframt grunaður um að hafa ekið sviptur ökuréttindum. Annar ökumaður var stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur og enn annar fyrir að aka sviptur ökuréttindum.
Nokkrir ökumenn voru einnig teknir fyrir hraðakstur. Sá sem hraðast ók mældist á 128 kílómetra hraða á klukkustund þar sem leyfilegur hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund.
Meðal annarra verkefna lögreglu var minniháttar líkamsárás sem tilkynnt var um og er málið til rannsóknar. Einnig barst tilkynning um eld á gámasvæði.
Þá sinnti lögregla öðru minniháttar umferðaróhappi. Engin slys urðu á fólki í því tilviki.
