1
Innlent

Íslenski barinn Nostalgía tilkynnir stórtíðindi

2
Heimur

Áhrifavaldurinn Einar Méndez fallinn frá

3
Heimur

Kona fær nálgunarbann samþykkt eftir ofbeldi sem sást á eftirlitsmyndavél

4
Innlent

Eygló lenti í leiðinlegu atviki með hráefni úr Costco

5
Innlent

Hjónin hvergi sjáanleg en skuldin stendur eftir

6
Fólk

Opnuðu sig um heilaæxli Unu

7
Innlent

Milljónafarangurinn komst ekki lengra en Leifsstöð

8
Fólk

Ein dýrasta gata landsins heldur áfram að standa undir nafni

9
Fólk

Sjaldséð risastór eign í Þingholtunum komin í sölu

10
Menning

Ónæði á Akranesi

Til baka

Ólíkt tekið á utanvegaakstri á Íslandi og í Frakklandi

„Áhugavert að skoða hvernig þetta er í Frakklandi“

Ólöglegur utanvegsakstur.
Mynd: Miklar skemmdir í landslaginu eftir utanvegsakstur. Facebook/Klemenz Geir Klemenzson

Frönsk umhverfisyfirvöld og lögregla hafa gripið til aðgerða gegn erlendum ferðamönnum sem staðnir voru að stórfelldum utanvegaakstri á sérútbúnum jeppum í frönsku ölpunum.

Ólíkt því sem tíðkast á Íslandi heimilaði héraðssaksóknari tafarlausa upptöku ökutækjanna til að tryggja að sakborningar gætu ekki flúið land undan lögsókn né valdið frekari náttúruspjöllum. Málið komst upp eftir að göngufólk á svæðinu náði myndböndum og ljósmyndum af utanvegaakstrinum. Í kjölfarið hófst samstarf lögreglu og umhverfiseftirlits sem hafði uppi á ökumönnunum.

Kristín Helga Gunnarsdóttir lætur sig mál utanvegaaskturs Frakkanna varða í opinberri færslu og segir: „Aðeins meira af utanvegaakstrinum. Það er áhugavert að skoða hvernig þetta er í Frakklandi, heimalandi dólganna sem fá áfram að njóta og þjóta um íslenska hálendið í bjartri sumarnóttinni.“

Ökutækin seld á uppboði

Nýlega kom upp svipað mál í frönsku ölpunum en augljóst að átt er við þessi mál á mjög ólíkan hátt hér og í Frakklandi.

„Tveir ferðamenn eru gómaði í utanvegaakstri í frönsku ölpunum á sérútbúnum jeppum. Göngufólk nær myndum af athæfinu. Umhverfiseftirlitið hefur ásamt lögreglu uppá delunum. Héraðssaksóknari heimilar þegar í stað upptöku ökutækjanna, meðal annars til að koma í veg fyrir frekari skemmdir og svo flótta undan lögsókn. Báðir ökumenn greiða strax 3000 evrur samanlagt í sérlega lögreglusekt, en auk þess og aðallega greiða þeir svo mörg þúsund evrur í bætur beint til þjóðgarðsins, meðal annars til að standa straum af lagfæringum. Ökutækin eru í vörslu lögreglu mánuðum saman. Og það er allt eins líklegt að þeir fái aldrei bílana til baka. Í mörgum tilfellum þar sem dæmd er varanleg upptaka ökutækis í einkaeigu í Frakklandi (confiscation définitive) sem viðbótarrefsing, fá eigendurnir bílana ekki aftur. Þegar dómari staðfestir varanlega upptöku gerist annað tveggja: Bíllinn er seldur á uppboði: Franska ríkið (í gegnum sérstaka eignastofnun, Service des Domaines) tekur bílinn og selur hann á opinberu uppboði. Allur ágóðinn rennur beint í ríkissjóð eða til umhverfissjóða til að fjármagna viðgerðir á náttúruspjöllum. Eða þá að bílarnir fara í eyðingu, ef þeir eru ólöglega útbúnir. Svo eru vörslugjöld lögreglu há og tikka hvern dag sem ökutækin eru í geymslu hjá hinu opinbera. Já, já, svona er þetta í Frans. Þeir eru að reyna að standa vörð um náttúruleg svæði eða það sem er eftir. Auk þess er bundið í lög hjá frökkum að ekki þarf skilti til að sýna lokanir eða boð og bönn í villtri náttúru. Utanvegaakstur er einfaldlega bannaður alltaf.“

Eru íslensk stjórnvöld ekki að standa sig þegar kemur að náttúru- og umhverfisvernd?

Kristín heldur áfram og segir stöðuna hreinlega vera eins og í villta vestrinu.

„Ótti landans við regluverk hefur komið okkur í þá stöðu að reka hér einhverskonar Villta-Vestur, auk þess sem við getum ekki einu sinni komið okkur saman um svo sjálfsagt fyrirbæri sem alvöru hálendis þjóðgarð hér í Galapagos norðursins. Það væri hið eðlilega regluverk utan um okkar mestu dýrmæti. Að lokum legg ég til að við endurheimtum sjálfstætt umhverfis og náttúruVERNDAR ráðuneyti með ráðherra í fullu starfi fyrir náttúruna.“

Lög gegn utanvegaakstri í Frakklandi

Strangt regluverk Frakka eiga sér sterka stoð í frönskum lögum. Hér eru dæmi um viðurlög þar í landi:

  • Lög gegn utanvegaakstri: Í Frakklandi hafa gilt ströng lög frá árinu 1991 (Loi Lalonde) sem banna alfarið akstur vélknúinna ökutækja utan markaðra vega og slóða í villtri náttúru. Þar þarf engin skilti til; reglan er sú að sé slóðinn ekki augljóslega opinn almennri umferð, þá er akstur bannaður.
  • Tafarlaust hald og geymslugjöld: Frönsk lögregla og umhverfisverndarsinnar hafa ítrekað stöðvað hópa á jeppum og fjórhjólum á vernduðum svæðum (t.d. í Ölpunum) þar sem beitt er tafarlausum sektum, bílar hlaðnir upp á pallbíla og haldlagðir, og eigendur rukkaðir um há geymslugjöld á dag.
  • Varanleg eignaupptaka (Confiscation définitive): Samkvæmt frönskum hegningarlögum hafa dómarar ríkar heimildir til að dæma tæki og tól sem notuð eru við alvarleg umhverfisbrot til varanlegrar upptöku. Ríkisstofnunin Service des Domaines sér þá um að selja tækin á opinberu uppboði eða fargar þeim.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Björn berst við Sigríði Elsu
Innlent

Björn berst við Sigríði Elsu

Alls sóttu fimm um tvö störf
Innkalla vinsæl hrísgrjón vegna skordýra
Innlent

Innkalla vinsæl hrísgrjón vegna skordýra

Syndandi svört svín laða að sér ferðamenn
Myndir
Heimur

Syndandi svört svín laða að sér ferðamenn

Þóttist vera lögreglumaður til að auðvelda morðtilraun á fyrrverandi
Myndband
Heimur

Þóttist vera lögreglumaður til að auðvelda morðtilraun á fyrrverandi

186 athugasemdir en laxinn syndir samt áfram
Landið

186 athugasemdir en laxinn syndir samt áfram

Lögreglumaður aumur í eistunum eftir punggrip konu
Innlent

Lögreglumaður aumur í eistunum eftir punggrip konu

Guðmundur í Baggalút kominn með aðra nýja vinnu
Fólk

Guðmundur í Baggalút kominn með aðra nýja vinnu

Eins árs drengur lést eftir að hafa verið skilinn eftir í heitum bíl
Heimur

Eins árs drengur lést eftir að hafa verið skilinn eftir í heitum bíl

Hundur neitaði að verða kvöldmatur hlébarða
Myndband
Heimur

Hundur neitaði að verða kvöldmatur hlébarða

Grunaður morðingi ók stolnum lögreglubíl inn í einbýlishús
Myndband
Heimur

Grunaður morðingi ók stolnum lögreglubíl inn í einbýlishús

Vilja að Ísland slíti tengslunum við Ísrael
Innlent

Vilja að Ísland slíti tengslunum við Ísrael

Milljónafarangurinn komst ekki lengra en Leifsstöð
Innlent

Milljónafarangurinn komst ekki lengra en Leifsstöð

Hjónin hvergi sjáanleg en skuldin stendur eftir
Innlent

Hjónin hvergi sjáanleg en skuldin stendur eftir

Landið

186 athugasemdir en laxinn syndir samt áfram
Landið

186 athugasemdir en laxinn syndir samt áfram

Leyfin heimila allt að 10.000 tonna eldi
Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum
Landið

Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum

Innanlandsflug tekur breytingum
Landið

Innanlandsflug tekur breytingum

Stórglæsilegar myndir af borgarísjaka við Íslandsstrendur vekja athygli
Myndir
Landið

Stórglæsilegar myndir af borgarísjaka við Íslandsstrendur vekja athygli

Bannað að veiða rjúpu á miðvikudögum
Landið

Bannað að veiða rjúpu á miðvikudögum

Loka auglýsingu