1
Peningar

Fyrirtæki Höllu forseta greiðir út tugi milljóna í arð

2
Innlent

Hin látnu á Krýsuvíkurvegi voru fædd á árunum 2005 til 2009

3
Minning

Lágafellskirkja boðar til minningarstundar

4
Peningar

Risastór verðmunur á dagvöru

5
Peningar

Sextán á Vestfjörðum með pyngjuna í góðum holdum

6
Minning

Óli Hjálmar Ólason er fallinn frá

7
Fólk

Selja hús sem ekki ætti að kasta steinum úr

8
Fólk

Besta örvunin fyrir heilann er ekki sú sem þú heldur

9
Heimur

Fundu kókaín fyrir 183 milljónir í skottinu á bíl

10
Fólk

„Hvernig dílar maður við gamla freka karla?“

Til baka

Ferðamennirnir sem keyrðu utanvegar skildu óvart eftir sig dróna með upplýsingum

„Félaginn skilar franska ferðamanninum dróna sínum og fær rauðvínsflösku í þakkarskyni.“

Luc og utanvegsakstur
Mynd: Luc franski ferðamaðurinn og ólöglegur utanvegsakstur. Samsett mynd.

Franskir ferðamenn, sem sektaðir voru fyrir stórfelldan utanvegaakstur um helgina, höfðu verið gripnir við iðjuna áður og fengið tiltal landvarða en létu sér ekki segjast.

Dróni sem einn ferðamannanna hafði gleymt á svæðinu fannst með nafni og símanúmeri.

Hvaða tæki var þetta sem ferðamaðurinn skildi eftir, hverjir fundu það og hvar fannst það?

Blaðamaður heyrði í Karli Ingólfssyni sem tilheyrir svokölluðu hálendissamfélgi. Félagi hans fann dróna í eigu eins þessara frönsku ferðamanna. Þá var félagi hans að keyra veginn inn að lóninu 16. júní þegar hann sér dróna sem liggur innst inni á veginum. Á drónanum var nafn og símanúmer eigandans. Félaginn ákveður að heyra í ferðamanninum sem verður til þess að þeir ákveða að mæla sér mót í Vík í Mýrdal. Félaginn skilar franska ferðamanninum dróna sínum og fær rauðvínsflösku í þakkarskyni. Nokkru síðar fara að birtast fréttir af ólöglegum hálendisakstri og myndir af utanvegaakstrinum inni á samfélagsmiðlunum. Karl ákveður að sjá hver það hafi verið sem hafi átt þennan dróna og kemst fljótlega að því að það passar við þennan utanvegaakstur.

Karl segist hafa verið virkilega ósáttur við viðbrögð lögreglu sem hann segir að hafi verið engin. Myndir af mönnunum hafi verið sendar til lögreglu en hann segir að ekkert hafi verið gert í málinu lengi vel.

Utanvegaaksturinn

Kort úr Wikiloc af ferðum Luc á Íslandi
Mynd: Nákvæmt kort af leiðum Luc um Suðurlandið
Kort úr Wikiloc af ferðum Luc á Íslandi
Mynd: Kort úr Wikilocs af ferðum Luc um Austfirði

Fyrst var Luc og félagi staðinn að verki á Mýrdalssandi inn undir Kötlujökli.

Þegar þeir voru staðnir að verki á Emstrum á Syðri Fjallabaksleið voru þeir búnir að keyra alla leið inn að Álftavatnshálsi en þar var það bratt að þeir höfðu ekki treyst sér til að fara fram hjá skaflinum sem var í sneiðingum. Fyrstu ummerki um utanvegaakstur voru við Einhyrning og náðu allt inn að Álftavatnshálsi.

Sekt fyrir utanvegaakstur á Íslandi

Kort af hálendi Íslands frá Vegagerðinni
Mynd: Kort sem sýnir hvaða vegir eru opnir og hverjir eru lokaðir á Íslandi/Vegagerðin
Kort af hálendi Íslands frá Vegagerðinni
Mynd: Austfirðir/Vegagerðin

Í samtali við lögregluna á Suðurlandi hefur 7–14 málum verið lokið með greiðslu þar sem sektin fer hæst í 1.000.000 kr.

Luc Haudeville, einn þessara frönsku manna, er þekktur fyrir útivist og mótorhjólaferðir og skráir þær gjarnan inn á Wikiloc. Þar deilir hann GPS-ferlum af ferðalögum sínum, kortum og myndum þar á meðal sínum ferðum um hálendi Íslands. Á Wikiloc hefur hann skráð hversu marga km hann náði að spanna á ferð sinni um Ísland undir heitinu J5-Islande.

GPS-leiðirnar sem Luc Haudeville hefur hannað fyrir Ísland eru sérstaklega gerðar fyrir utanvegaakstur og mótorhjólaferðir (Off-Road / Trail).

Kort af ferðum mannsins inn á Wikiloc

Ólöglegur utanvegsakstur
Mynd: Ólöglegur utanvegsakstur. Facebook/Klemenz Geir Klemenzson
Ólöglegur utanvegsakstur.
Mynd: Miklar skemmdir í landslaginu eftir utanvegsakstur. Facebook/Klemenz Geir Klemenzson

Í kortunum er hægt að lesa nokkuð nákvæmar hæðarlínur og kort. Hann skiptir ferðalögum sínum gjarnan niður í dagleiðir þar sem ætla má að „J“ standi fyrir Jour eða dagur á frönsku. Helstu einkenni og svæði á Íslandsleiðunum hans á Wikiloc telja þúsundir kílómetra þar sem hann hannar ferðirnar sem svo virðist fyrir öflug mótorhjól eða fjórhjóladrifna jeppa sem þola grófa slóða eins og hægt er að finna víðsvegar á Suðurlandi og í Vík.

Margir af hans vinsælustu punktum og dagleiðum liggja um nágrenni Víkur í Mýrdal, þar sem hann keyrir um svarta sanda og slóða á milli jökla. Þetta eru hálendisvegir (F-vegir) sem einblína mikið á miðhálendið.

Hann ferðast um helstu hálendisleiðirnar eins og slóðana í átt að Landmannalaugum, um Emstrur og Fjallabaksleið syðri, Emstruleið og Rangárvallaveg, þar sem hann leggur áherslu á vissar náttúruperlur en samkvæmt korti Vegagerðarinnar eiga þessir vegir að vera lokaðir.

Hann stoppar gjarnan og skráir hnit við formfagra staði eins og gljúfur, til dæmis í nágrenni við Sigöldugljúfur og ýmsa fáfarna fossa. Einnig er hægt að sjá kort af utanvegaakstri á Austurlandi um Þórdalsheiðarveg vestan Áreyja sem einnig er lokaður samkvæmt Vegagerðinni en nokkuð nákvæmt kort, hæðarlínur á gps-skránum hans, er hægt að finna inn á Wikiloc.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lágafellskirkja boðar til minningarstundar
Minning

Lágafellskirkja boðar til minningarstundar

„Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“
Innlent

„Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“

„Hvernig dílar maður við gamla freka karla?“
Fólk

„Hvernig dílar maður við gamla freka karla?“

Íslenskt tölvuleikjafyrirtæki heldur áfram að leka peningum
Peningar

Íslenskt tölvuleikjafyrirtæki heldur áfram að leka peningum

Einn látinn og tveir lögreglumenn særðir í skotárás í Hollandi
Heimur

Einn látinn og tveir lögreglumenn særðir í skotárás í Hollandi

Hin látnu á Krýsuvíkurvegi voru fædd á árunum 2005 til 2009
Innlent

Hin látnu á Krýsuvíkurvegi voru fædd á árunum 2005 til 2009

Risastór verðmunur á dagvöru
Peningar

Risastór verðmunur á dagvöru

Sér vaxandi ógn við tjáningarfrelsið
Innlent

Sér vaxandi ógn við tjáningarfrelsið

Stálu 100 kílóum af kjúklingi úr flutningabíl á ferð
Myndband
Heimur

Stálu 100 kílóum af kjúklingi úr flutningabíl á ferð

Alvarleg staða á fjölmiðlamarkaði
Innlent

Alvarleg staða á fjölmiðlamarkaði

Lögregla skaut konu til bana eftir hnífaárás á Times Square
Heimur

Lögregla skaut konu til bana eftir hnífaárás á Times Square

Rún aðstoðar Þorgerði Katrínu
Pólitík

Rún aðstoðar Þorgerði Katrínu

Landið

Bannað að veiða rjúpu á miðvikudögum
Landið

Bannað að veiða rjúpu á miðvikudögum

Verndarsvæði verður jafnframt á Reykjanesi líkt og undanfarin á
Biskup fagnar aldarafmæli með Flateyingum
Myndir
Landið

Biskup fagnar aldarafmæli með Flateyingum

Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum
Landið

Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum

Lögreglumenn á Vestfjörðum verulega ósáttir
Landið

Lögreglumenn á Vestfjörðum verulega ósáttir

Þremur útlendingum sparkað úr landi
Landið

Þremur útlendingum sparkað úr landi

E. coli-gerlar í vatni á Borgarfirði eystra
Landið

E. coli-gerlar í vatni á Borgarfirði eystra

Loka auglýsingu