Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Öskraði á íslenskt par og sakaði það um gyðingahatur

„Um leið og hann var kom­inn á filmuna brosti ég og sagði „fuck Israel“ og svo „welcome to Iceland“.“

Öskraði á íslenskt par og sakaði það um gyðingahatur
Rabbín­inn Shmuley Boteach Boteach sak­aði Samúel og kær­ustu hans um gyð­inga­hatur Mynd: Instagram-skjáskot

Banda­ríski rabbín­inn og fjöl­miðla­mað­ur­inn Shmuley Boteach er enn á ferða­lagi um Ísland ásamt syni sínum, her­mann­inum Mendy en hann þjón­aði Ísra­els­her bæði á Gaza og í Líbanon en Mannlíf sagði frá heim­sókn feðganna á dög­unum. Samkvæmt mynd­skeiðum sem hann hefur birt virð­ist ferðin meðal ann­ars tengj­ast gerð heim­ild­ar­efnis.

Myndband sem Boteach birti á sam­fé­lags­miðlum sínum, er nú á dreif­ingu en þar sést hann öskra nær stans­laust á ungt íslenskt par á Akureyri og saka þau um gyð­inga­hatur. Rabbín­inn er einn þekkt­asti stuðn­ings­maður Ísraels og Ísra­els­hers í Banda­ríkj­unum.

Í mynd­band­inu sést rabbín­inn veit­ast að par­inu sem er á göngu í miðbæ Akur­eyrar. Boteach sakar mann­inn, Samúel Guð­munds­son, um að hafa þóst vera aðdá­andi hans þar sem hann var að taka upp mynd­band og síðan sagt „Fjandinn hirði Ísrael (Fuck Israel)“. Þessu játar Samúel. Rabbín­inn sakar þá Samúel um gyð­inga­hatur og hótar lög­regl­unni og banda­ríska sendi­ráð­inu á hann. Samúel heldur ró sinni allan tím­ann en harð­neitar að hann hafi sagt nokkuð um gyð­inga, heldur sé hann á móti Ísrael og þjóð­ar­morð­inu á Gaza. End­ur­tekur hann orð sín ítrekað í mynd­skeið­inu: „Fuck Israel“.

Þó svo að Samúel haldi ró sinni er aug­ljóst á mynd­band­inu að kær­ustu Samúels þykir afar óþægi­legt að vera í mynd á meðan rabbín­inn heyr­ist ítrekað hrópa á parið .

Í mynd­band­inu, sem er rúm­lega átta mín­útur að lengd, má heyra rabbínan afar æstan eins og áður hefur komið fram en í lok mynd­bands­ins vísar Boteach til veru banda­ríska hers­ins á Íslandi í síð­ari heims­styrj­öld­inni og segir Íslend­inga eiga Banda­ríkja­mönnum þakkir að færa fyrir að hafa verndað landið gegn nas­istum.

Engir eftirmálar

Mannlíf heyrði í Samúel sem lýsti atvik­inu á eft­ir­far­andi hátt:

„Ég og kærasta mín vorum í fríi á Akureyri og vorum úti að labba eftir kvöld­mat­inn. Ég sé Shmuley fyrir algjöra til­viljun fyrir framan bar með IDF-liða syni sínum. Ég hafði nefni­lega áður séð frétt frá ykkur að hann væri á land­inu, þannig að ég var hand­viss um að þetta væri mað­ur­inn. Ég tók kær­ustu mína afsíðis örstutt til að útskýra í stuttu máli það sem þessi maður stæði fyrir og væri ábyrgur fyrir. Ég sagði svo að ég myndi ekki geta lifað með sjálfum mér ef ég léti þetta ósagt og fór og tal­aði við hann. Ég tók upp mynd­band af fyrstu kynn­unum þarna, hann sagð­ist vera í sím­anum við lög­fræð­ing en sam­þykkti að vera með því ég sagð­ist vera aðdá­andi. Um leið og hann var kom­inn á filmuna brosti ég og sagði „fuck Israel“ og svo „welcome to Iceland“. Eftir þetta elta þeir feðgar okkur upp um allar trissur og götur þarna, og það lág­kúru­leg­asta er að þeir elta kær­ustu mína sem átti enga sök frekar en mig. Þeir settu strax orð í munn og ásök­uðu mig meira að segja að hafa sett hand­legg­inn utan um hann, en eins og sést á mynd­band­inu kom ég aldrei við hann. Hann aftur á móti reyndi ítrekað að labba utan í mig þegar hann var að elta kær­ustu mína. Ég er alls ekki hissa á þess­ari hegðun þeirra, hef séð önnur mynd­bönd þar sem menn ósáttir með þjóð­ar­morðið á Gaza láta hann heyra það. Hann hót­aði mér lögg­unni og öllu illu.“

Að sögn Samúels urðu engir eft­ir­málar á þessu enda hafi sonur rabbín­ans vilja fara og bætti við: „Ég hélt kúl­inu allan tím­ann, sem var ábyggi­lega öfugt við það sem þeir vildu.“

Hér má sjá mynd­skeiðið sem rabbín­inn birti:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Maðurinn vísaði til sjálfsvígshættu í máli sínu gegn fjölmiðlunum.
Pólitík

Anna María ótt­ast að höggvið verði of nærri kjarna sam­fé­lags­ins

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sigurjón segir bank­ana reka okur­stefnu og „éta útsæðið“

Heimur

Trump segir Banda­ríkin hætta fjár­hags­að­stoð við Ísrael

Innlent

Innlent

Segir sölu Ljós­leið­ar­ans geta ógnað almanna­hags­munum

Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir varar við að einkavæðing mikilvægra fjarskiptainnviða geti veikt öryggi kerfisins og stöðu almennings.
Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Sendi­bíl­stjóri vann VÍS og fær tæpar 16 millj­ónir

Innlent

Jóhann dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi fyrir barn­a­níðs­efni

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls