1
Minning

Hallgrímur Jónasson er fallinn frá

2
Fólk

Gamaldags en notalegt hús í Mosfellsbæ til sölu

3
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

4
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

5
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

6
Innlent

Kona Hugleiks Dagssonar var rænd

7
Heimur

Gengu í takt á þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna með hvítar grímur

8
Innlent

Fékk vinagreiða hjá almannatengli

9
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

10
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

Til baka

Össur Skarphéðinsson: Grænland lagði Trump „á ippon“ í Davos

„Hann fór haltrandi heim til Bandaríkjanna án þess að fá nokkuð fyrir hótanir sínar, nema það sem hann hafði þegar fyrir,“

Össur Skarphéðinsson
Össur SkarphéðinssonÖssur er nokkuð skarpur þegar kemur að utanríkismálum
Mynd: Nordic.org

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að Grænland hafi staðið uppi sem sigurvegari eftir ágreining við Donald Trump um stöðu og framtíð landsins. Í ítarlegri Facebook-færslu heldur Össur því fram að Trump hafi farið „haltrandi heim“ af fundum í Davos án þess að hafa fengið nokkuð í stað hótana sinna.

„Grænland, Kanada og Evrópusambandið voru sigurvegarar í störukeppninni við Trump. Annað er varla hægt að álykta af niðurstöðum gærdagsins í Davos,“ skrifar Össur og bætir við að þrátt fyrir yfirlýsingar Trumps um „fullkominn sigur“ eftir fund með Mark Rutte, aðalritara NATO, hafi niðurstaðan verið innihaldslaus fyrir Bandaríkin.

„Hann fór haltrandi heim til Bandaríkjanna án þess að fá nokkuð fyrir hótanir sínar, nema það sem hann hafði þegar fyrir,“ segir Össur og heldur því fram að Trump hafi jafnframt „skilið Atlantshafsbandalagið eftir í molum“ og hrundið af stað viðskiptastríði með „fullkomlega ólögmætum refsitollum á prinsipfastar þjóðir sem studdu Grænlendinga“.

Um hið meinta samkomulag Trumps og Rutte segir Össur að í raun sé um að ræða staðfestingu á fyrirkomulagi sem lengi hafi verið í gildi. „Allt, sem Trump segist hafa tryggt Bandaríkjunum hefur þeim því staðið opið um langa hríð,“ skrifar hann og bendir á að Bandaríkin hafi nú þegar herstöð í Norður-Grænlandi og samningsbundinn rétt til að senda þangað „jafn marga hermenn og þau vilja“.

Hann dregur jafnframt í efa fullyrðingar um að Grænlandi stafi hernaðarleg ógn af Rússlandi. „Þeir hafa aldrei ásælst Grænland, látið það í friði, og fremur sýnt því virðingu en hitt innan Norðurskautsráðsins,“ skrifar Össur.

Varðandi Kína segir hann að frumkvæðið að samskiptum hafi komið frá Grænlendingum sjálfum. „Grænlendingar höfðu sjálfir frumkvæði að tengslum við Kína,“ skrifar hann og bendir á að það hafi um árabil verið hluti af opinberri utanríkisstefnu Grænlands að efla tengsl við Kína. Hann nefnir meðal annars að ræðisskrifstofa hafi verið opnuð í Beijing, án þess að Kínverjar hafi svarað í sömu mynt með ræðisskrifstofu í Nuuk.

Össur rifjar einnig upp hvernig Grænlendingar beittu kínverska „spilinu“ þegar Danmörk treysti sér ekki til að fjármagna uppbyggingu flugvalla. Hann lýsir ferð Kim Kielsen, þáverandi forsætisráðherra Grænlands, til Kína með þessum orðum:

„Kim Kielsen, forsætisráðherra fór til Beijing með þrjá ráðherra til reiðar og kom til baka með tvö eða þrjú kínversk ríkisfyrirtæki og fjármagn á fínum kjörum til að byggja þrjá alþjóðaflugvelli.“

Að sögn Össurar varð þessi þróun til þess að Bandaríkin gripu inn í og þrýstu á Dani að tryggja Grænlendingum fjármagn. Hann segir að Kielsen hafi siglt málinu „eins og grænlenskum kajak gegnum diplómatíska stórsjói, með því að beita Kína fyrir sig“.

Í færslunni kemur jafnframt fram að kínversk fyrirtæki hafi um tíma haft námuréttindi víða á Grænlandi, meðal annars þar sem finna má „mest járn sem þekkt er í jörðu“ og einnig aðgang að fágætum málmum og kopar. Áhugi Kínverja hafi þó dvínað fljótt. Össur vísar í því samhengi til ummæla Ólafur Ragnar Grímsson, sem sagði nýverið á CNBC að Kína stafaði engin ógn af Grænlandi.

Össur gagnrýnir Trump einnig fyrir að lýsa því sem sigri að Bandaríkin fái aðgang að herstöðvum og auðlindum á Grænlandi. „Það er því soltið hallærislegt þegar hinn litskæri og ljómandi Trump lýsir því nú sem sérstökum sigri að Bandaríkin megi gera nákvæmlega það sem þeim hefur alltaf staðið til boða!“ skrifar hann.

Í niðurstöðu færslunnar segir Össur að Grænland standi nú sterkari en áður:

„Grænland stendur sterkar eftir en áður og leið þess til sjálfstæðis er að mínum dómi greiðari en fyrir „Grænlandsstríðið“. Litla þjóðin stóð sem einn maður, ávann sér virðingu um allan heim og lagði hinn bandaríska Golíat.“

Hann segir Evrópuríki og Kanada einnig hafa staðið uppi sem sigurvegarar og nefnir sérstaklega forsætisráðherra Kanada, Mark Carney, sem „hetju Davos“. Að hans mati sé Trump hins vegar „langmesti taparinn“ í málinu og að traust til Bandaríkjanna innan NATO hafi beðið hnekki.

Í lokin varpar Össur fram spurningu um stöðu Íslands og rifjar upp bankahrunið:

„Fleiri en Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín hljóta eftir atlöguna að Grænlandi að spyrja sig í hljóði: Er eitthvað skjól fyrir Ísland hjá Bandaríkjunum ef í harðbakkann slær?“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Hvarf sporlaust í desember árið 2020
Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Prins Harry fær ekki að gista í Buckingham-höll
Heimur

Prins Harry fær ekki að gista í Buckingham-höll

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

Flugvél nauðlenti í New York
Myndband
Heimur

Flugvél nauðlenti í New York

Heyannir á Árbæjarsafni
Myndir
Menning

Heyannir á Árbæjarsafni

Arnar Már hrækti á lögreglumann
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón
Innlent

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón

11 ára stúlka lifði af skot í hausinn
Heimur

11 ára stúlka lifði af skot í hausinn

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni
Myndir
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Ræktanirnar voru nokkuð stórar og ætluð til sölu og dreifingar
Arnar Már hrækti á lögreglumann
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

Loka auglýsingu