Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Peningar

Fyr­ir­tæki sem eig­in­maður Kristrúnar á hlut í orðið gjald­þrota

Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Heimur

Gefur and­virði 300 ára gam­als ætt­ar­óð­als til barna á Gaza

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti

Pawel vill afnema tollafgreiðslu með ESB-aðild

„Væri ekki frá­bært að losna við þetta vesen?“

Pawel vill afnema tollafgreiðslu með ESB-aðild
Pawel gagn­rýnir háan auka­kostnað við net­verslun erlendis frá Horfir til ESB til að lækka kostnað við net­verslun Mynd: Facebook/Pawel Bartoszek

Pawel Bartoszek, stærð­fræð­ingur og þing­maður, hvetur til þess að Ísland gangi í Evr­ópu­sam­bandið til að liðka fyrir net­verslun lands­manna. Í nýjum pistli vekur hann athygli á þeim mikla auka­kostn­aði og tolla­ves­eni sem mætir Íslend­ingum þegar þeir panta vörur erlendis frá.

Hann bendir á að sam­kvæmt reikni­vél Póstsins geti hlið­ar­kostn­aður vegna virð­is­auka­skatts, umsýslu og send­ingar numið rúmum 2.600 krónum fyrir vöru sem kostar upp­haf­lega 5.000 krónur í erlendri net­verslun. Kostn­að­ur­inn getur því fljótt numið rúm­lega helm­ingi af kaup­verð­inu sjálfu.

„Hver kann­ast ekki við að panta eitt­hvað á net­inu og þurfa svo að borga meira eftir að varan kemur til lands­ins?“ spyr Pawel í pistli sínum.

EES-samningurinn dugir ekki til

Þótt sumar stærri erlendar net­versl­anir séu farnar að inn­heimta íslenskan virð­is­auka­skatt fyr­ir­fram breytir það ekki grunn­vand­anum að mati Pawels. Hann minnir á að þótt Ísland sé hluti af Evrópska efna­hags­svæð­inu (EES), standi landið utan tolla­banda­lags Evr­ópu­sam­bands­ins.

Vegna þessa þurfa vörur sem koma frá Evrópu enn að fara í gegnum hefð­bundna toll­af­greiðslu hér á landi, jafn­vel þótt eng­inn tollur legg­ist á vör­una sjálfa. Þessu fylgja óhjá­kvæmi­leg umsýslu­gjöld og tafir.

Pawel dregur upp þá sýn að með fullri aðild að Evr­ópu­sam­band­inu gætu Íslend­ingar átt í beinum og hindr­un­ar­lausum við­skiptum við gríð­ar­stóran markað.

„Væri ekki frá­bært ef við gætum fengið vörur frá 450 millj­óna manna mark­aði sendar til okkar án alls þessa auka kostn­aðar og ves­ens?“ spyr Pawel að lokum og ljóst er að hann telur svarið liggja í nán­ara Evr­ópu­sam­starfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

5
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ísra­elskur veð­ur­frétta­maður gerði grín að flóð­unum á Gaza

„Ég hef ekki upplifað svona mikla hamingju síðan á sjöunda áratugnum“
Innlent

Krefjast opin­berrar afsök­un­ar­beiðni frá Morg­un­blað­inu

Innlent

Sonurinn áfram í gæslu­varð­haldi vegna mann­dráps í Breið­holti

Heimur

Russell Brand dæmdur í tíu og hálfs árs fang­elsi

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Innlent

Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir

Dagvöruvísitala ASÍ hækkaði um 0,33 prósent frá ágúst til nóvember. Hækkanir á kjöti og mjólkurvörum vógu þyngst.
Innlent

Tveir rot­uðu mann í miðbæ Reykja­víkur

Innlent

„Þessi fámenni, fúl­lyndi hópur öskrar hærra en venju­legt full­orðið fólk“

Innlent

„Tími und­an­þága og fresta í svína­haldi er lið­inn“

Innlent

Erlendir ferða­menn í bílnum sem lenti í Kleifá

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi