
Drengir leiðast oft inn í mannhvelið (e. Manosphere) í leit að svörum við vandamálum sem fylgja unglingsárunum. Þetta kom fram í hlaðvarpinu Svellinu, sem er nýtt hlaðvarp UN Women á Íslandi. Í hlaðvarpinu var meðal annars fjallað um hið stafræna umhverfi sem börn og ungir drengir lifa og hrærast í, tilfinningar, skaðlega áhrifavalda og jákvæðar og neikvæðar hliðar netsins.
Mannhvelið og hin skaðlega orðræða sem þar þrífst hefur verið mikið til umfjöllunar undanfarin ár. En það sem er talið liggja að baki efnissköpun mannhvelsins er fjárhagslegur ágóði.
Markmiðið með þessu efni er oftast skilaboð um nauðsyn efnahagslegs árangurs en líkurnar að drengir sem hafa séð efni þessu tengt er mjög mikið. Efnið sem um ræðir eru oftast skilaboð um nauðsyn efnahagslegs árangurs, looksmaxxing, drottnun yfir konum og stúlkum og hvernig jafnrétti hefur mismunað karlmönnum.
Sjónvarpsþættir á borð við Adolescence og Louis Theroux: Inside the Manosphere vöktu verðskuldaða athygli og umtal sem hægt er að lesa um í grein hjá UN Women.
Ungt fólk upplifir sig utangarðs
Í hlaðvarpinu kemur fram að drengir gætu verið að upplifa ástarsorg eða höfnun, verið einmana eða einfaldlega verið að leita eftir upplýsingum um hollara líferni. Þegar ungt fólk upplifir sig utangarðs í skóla, heima eða í samfélaginu, leitar það gjarnan að samþykki og félagsskap í rýmum á netinu. Innan mannhvelsins finna drengir einföld, en oft villandi, svör við flóknum tilfinningum og vandamálum.
Hér að neðan eru nokkur ráð til foreldra og forsjáraðila sem eru að reyna að átta sig á því hvenær og hvernig þeim beri að stíga inn í málið:
- Hefjum samtalið með forvitni og án fordóma
- Hjálpaðu þeim við að horfa gagnrýnið á það sem þau sjá og lesa
- Skapaðu rými fyrir erfiðar samræður
- Bjóddu ekki aðeins fram ráð, heldur aðra valkosti
- Haltu ró þinni, jafnvel þegar það reynist erfitt
- Munið að mannhvelið hefur einnig áhrif á stúlkur.
