1
Innlent

Fleiri meint fórnarlömb Írisar „eltihrellis“ stíga fram

2
Fólk

Vala opnar sig um líknardauða móður sinnar og handtöku í kjölfarið

3
Fólk

Ofurhuggulegt hús í Hafnarfirði sett á sölu

4
Innlent

Helgi Bjartur dæmdur í fangelsi

5
Innlent

Vinsælir hamborgarar innkallaðir vegna salmonellu

6
Innlent

Skólameistari FS hefur fengið nóg og er hættur

7
Minning

Svavar Sigmundsson er fallinn frá

8
Innlent

Fangi á Litla-Hrauni ákærður fyrir að fela eiturlyf á óvenjulegum stað

9
Pólitík

Gagnrýnir ummæli þingkonu um nígeríska nema

10
Heimur

Móðir í áfalli eftir að hafa keyrt yfir barn sitt

Til baka

Ólafur Ágúst Hraundal

Ólafur Ágúst Hraundal

Rafrænn heimur

Framtíð frelsis eða alræðisvald?

Olafur-Agust-Hraundal
Ólafur Ágúst Hraundal
Mynd: Ljósmynd: Aðsend

Á ógnarhraða ferðumst við inn í stafrænan heim og á sama tíma hverfur vald almennings yfir eigin lífi. Samskipti, viðskipti og fjármál eru nánast alfarið háð alnetinu, en hvað gerist ef alnetið bilar eða hrynur? Hvað ef stjórnvöld og stórfyrirtæki öðlast alræðisvald yfir fjármálum, upplýsingum og persónulegum gögnum almennings?

Hér verður farið yfir hvernig aukið rafrænt eftirlit, fjármálakerfi án reiðufé og hvernig aðgerðir stjórnvalda hafa smám saman verið að rýra persónufrelsi og færa samfélög nær stjórnarháttum fyrri einræðisríkja. Einnig verður stiklað á leiðum til að verja frelsi einstaklingsins og koma í veg fyrir að þessi þróun leiði okkur inn í, „Alræðisríkis Kúgun“.

Takmörkun á reiðufé

Í mörgum löndum er reiðufé á hröðu undanhaldi og almenningur er þvingaður til að notast við rafrænar greiðslur. Þó það virðist vera þægilegt og einfalt, gerir þessi þróun almenning háðan fjármálakerfi sem stjórnvöld og bankar ráða yfir. En hvað gerist ef tæknin bregst? "Computer says no", ekkert samband við alnetið og enginn kemst í peningana sína?

Við slíkar aðstæður gæti samfélagið lamast. Verslanir gætu ekki afgreitt viðskiptavini, fólk gæti ekki keypt nauðsynjar og daglegt líf myndi stöðvast. Dæmi: Í náttúruhamförum eins og fellibylum hafa rafmagnsleysi og netbilanir valdið því að fólk hefur ekki getað keypt mat eða lífsnauðsynjar.

Svört markaðsviðskipti myndu blómstra, þar sem vörur og þjónusta yrðu gjaldmiðill í stað rafrænna greiðslna. Dæmi: Í Grikklandi árið 2015, þegar fjármálakreppan reið yfir og bankar lokuðu, gátu aðeins þeir sem áttu reiðufé keypt mat og nauðsynjar. Þeir sem treystu alfarið á rafrænar færslur stóðu hjálparvana.

Á sama tíma yrði ljóst hversu mikið vald stjórnvöld og bankar hafa yfir fjármálum almennings, þar sem rafrænir reikningar gætu verið frystir eða gerðir óaðgengilegir. Dæmi: Í Kanada árið 2022 frystu stjórnvöld bankareikninga mótmælenda án dómsúrskurðar, sem sýndi hversu auðvelt það er fyrir stjórnvöld að takmarka aðgengi fólks að eigin fjármunum.

Þessi þróun útilokar einnig viðkvæma hópa, eins og eldri borgara og efnaminni einstaklinga, sem oft eiga erfitt með aðlagast tækninni og eru háð opinbera kerfinu. Án reiðufé verður þessi hópur algjörlega háður fjármálakerfi sem getur útilokað þá með einu músarklikki.

Aukin völd löggæslu og stjórnvalda

Löggæsla um allan heim er nú að sækjast eftir alræðisvaldi sem minnir óneitanlega á aðferðir Gestapo í Þýskalandi og Stasi í Austur-Þýskalandi. Með tæknilegum úrræðum eins og allsherjarvöktun, andlitsgreiningu og fjármálalegum inngripum eru stjórnvöld sífellt meira og meira að skerða frelsi borgaranna, sem þau réttlæta með sinni forræðishyggju, „öryggi og forvarnaraðgerðum“, sem ber keim af aðferðum Gestapo og Stasi á einum myrkustu tímum sögunnar.

Með rafrænu eftirliti, gagnaöflun og andlitsgreiningu hafa stjórnvöld auknar heimildir til að fylgjast með borgurum sínum, skrásetja hegðun þeirra og jafnvel beita þeim fjárhagslegum þvingunum. Dæmi: Patriot Act í Bandaríkjunum veitti stjórnvöldum auknar heimildir til að fylgjast með borgurum sínum eftir hryðjuverkaárásirnar 2001. Þessi lög hafa verið gagnrýnd fyrir að skerða friðhelgi einkalífsins. Og í Kína hefur "Social Credit System" verið innleitt, þar sem borgarar eru metnir eftir hegðun sinni og geta misst aðgang að opinberri þjónustu ef þeir fara ekki að kröfum stjórnvalda.

Það sem áður var handvirk njósnastarfsemi, eins og hjá Stasi í Austur-Þýskalandi, er nú sjálfvirkt og nákvæmara en nokkru sinni fyrr með gervigreind og ofurgagnagreiningu. Dæmi: Í Bretlandi hafa lögregluyfirvöld prófað andlitsgreiningu í rauntíma á fjölförnum stöðum, sem hefur leitt til þess að saklausir einstaklingar hafa verið ranglega merktir sem glæpamenn. Og í Frakklandi voru drónar notaðir til að fylgjast með borgurum í COVID-19 faraldrinum og tryggja að útgöngubann væri virt.

Þessi þróun hefur einnig mikil áhrif á fjölmiðlafrelsi. Í mörgum löndum hafa stjórnvöld aukið áhrif sín á fjölmiðla og samfélagsmiðla, ritskoðað gagnrýnis raddir og stjórnað upplýsingaflæði með stafrænum leiðum. Dæmi: Í Rússlandi hafa stjórnvöld notað netritskoðun til að hindra aðgang almennings að óháðum fjölmiðlum, sem tryggir að aðeins samþykktar upplýsingar fá að berast út. Og á tímum Gestapo var fjölmiðlafrelsi afnumið og aðeins áróður stjórnvalda var leyfður.

Það sem áður krafðist umfangsmikillar leyniþjónustu er nú framkvæmt á sekúndubroti með örfáum skipunum í hugbúnaði.

Hvernig getur almenningur varið sig?

Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki auka völd sín í skjóli stafrænnar þróunar, verður almenningur að vera vakandi og grípa til aðgerða. Ef ekkert er að gert, gæti eftirlitskerfið fest sig í sessi og svipt einstaklinga fjárhagslegu og persónulegu frelsi sínu.

Viðhalda reiðufé sem valkosti
Reiðufé tryggir að almenningur hafi full fjárráð og vald á sínum fjármunum, og eigin viðskiptum. Ef það hverfur, verður fólk algjörlega háð rafrænum greiðslukerfum sem stjórnvöld og bankar stjórna.

Efla gagnrýna hugsun og upplýsingalæsi
Mikilvægt er að skilja hvernig stjórnvöld og stórfyrirtæki beita tækni til að auka vald sitt. Almenn krafa um gagnsæi í lagasetningu um stafrænt eftirlit og persónuvernd er nauðsynlegt til að koma í veg fyrir misnotkun.

Nota dulkóðuð samskipti
Friðhelgi einkalífsins er sífellt ógnað með stafrænu eftirliti. Notkun dulkóðaðra samskiptaleiða, eins og Signal og ProtonMail, geta hjálpað einstaklingum að vernda sig gegn óþarfa vöktun.

Standa gegn ritskoðun og misnotkun á tækni
Fjölmiðlafrelsi er undirstaða lýðræðis. Mikilvægt er að styðja sjálfstæða fjölmiðla og krefjast þess að samfélagsmiðlar og önnur stafræn tól séu ekki notuð sem vopn til pólitískrar kúgunar.

Niðurstaða

Stafræn þróun hefur fært samfélaginu ýmis tækifæri, en á sama tíma aukið efnahagslega stjórn stjórnvalda og stórfyrirtækja. Við stöndum á tímamótum þar sem tæknin veitir ómæld þægindi en getur jafnframt leitt til stjórnkerfis sem rænir fólk fjárhagslegu og persónulegu frelsi.

Ef við grípum ekki til aðgerða núna og stöndum vörð um frelsið, munum við í framtíðinni standa frammi fyrir spurningunni:
Hvernig leyfðum við þessu að gerast?

Ólafur Ágúst Hraundal
Höfundur er lífskúnstner

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Móðir í áfalli eftir að hafa keyrt yfir barn sitt
Heimur

Móðir í áfalli eftir að hafa keyrt yfir barn sitt

„Lífið getur breyst á augabragði.“
Skólameistari hylltur fyrir hugrekki eftir skotárás
Myndband
Heimur

Skólameistari hylltur fyrir hugrekki eftir skotárás

Bankaræningjar sluppu úr greipum lögreglu
Myndband
Heimur

Bankaræningjar sluppu úr greipum lögreglu

Finnar stefna á próf sem skilyrði til að fá ríkisborgararétt
Heimur

Finnar stefna á próf sem skilyrði til að fá ríkisborgararétt

Fjögur berjast um dómarasæti í Hæstarétti
Innlent

Fjögur berjast um dómarasæti í Hæstarétti

Skólameistari FS hefur fengið nóg og er hættur
Myndband
Innlent

Skólameistari FS hefur fengið nóg og er hættur

Ákærður fyrir fíflagang sem endaði með slysi
Innlent

Ákærður fyrir fíflagang sem endaði með slysi

Vinsælir hamborgarar innkallaðir vegna salmonellu
Innlent

Vinsælir hamborgarar innkallaðir vegna salmonellu

Vala opnar sig um líknardauða móður sinnar og handtöku í kjölfarið
Myndband
Fólk

Vala opnar sig um líknardauða móður sinnar og handtöku í kjölfarið

Hafnfirðingur nefbraut mann á Hverfisgötu
Innlent

Hafnfirðingur nefbraut mann á Hverfisgötu

Fangi á Litla-Hrauni ákærður fyrir að fela eiturlyf á óvenjulegum stað
Innlent

Fangi á Litla-Hrauni ákærður fyrir að fela eiturlyf á óvenjulegum stað

Oddviti Miðflokksins í Hafnarfirði á lista yfir talsmenn hælisleitenda
Viðtal
Pólitík

Oddviti Miðflokksins í Hafnarfirði á lista yfir talsmenn hælisleitenda

Gagnrýnir ummæli þingkonu um nígeríska nema
Pólitík

Gagnrýnir ummæli þingkonu um nígeríska nema

Skoðun

Burt með dýraeftirlit hjá Matvælastofnun
Skoðun

Magnús Georg Jensen Margeirsson

Burt með dýraeftirlit hjá Matvælastofnun

Opið bréf til íslenskra fjölmiðla - Hver eru markmið ykkar?
Skoðun

Daníel Andri Eggertsson

Opið bréf til íslenskra fjölmiðla - Hver eru markmið ykkar?

Kæra borgarstýra
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Kæra borgarstýra

Þegar leyndardómar Evrópu komu til Íslands
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Þegar leyndardómar Evrópu komu til Íslands

Hulan fellur
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Hulan fellur

Ofbeldissambönd skilja ekki bara eftir sár hjá konum heldur móta þau börnin líka
Skoðun

Ester S. Jóhannsdóttir

Ofbeldissambönd skilja ekki bara eftir sár hjá konum heldur móta þau börnin líka

Loka auglýsingu