1
Heimur

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð

2
Heimur

Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu

3
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

4
Fólk

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum

5
Heimur

Dómari skipar Trump að afhenda gögn

6
Heimur

Dánarorsök Kaylee Hottle staðfest eftir banaslys

7
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

8
Heimur

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn

9
Heimur

Karlmenn flykkjast í háreyðingu eftir að stuttbuxur voru leyfðar í vinnunni

10
Heimur

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu

Til baka

Rauði krossinn lokar neyðarskýli fyrir flóttafólk

„Fólk á flótta skal hverfa úr augsýn almennings og verða að andlitslausum tölum sem hurfu“

Neyðarskýli
Neyðarskýli Rauða krossinsNeyðarskýlunum verður lokað í dag
Mynd: Aðsend

Rauði krossinn á Íslandi mun klukkan 10:00 í dag loka neyðarskýli fyrir flóttafólk sem starfrækt hefur verið frá september 2023. Fólkið verður flutt í bæjarhraun 16 í Hafnarfirði, í húsnæði á vegum stoðdeildar
ríkislögreglustjóra. Þetta kemur fram í harðorðri yfirlýsingu frá vinum og stuðningsfólki íbúa skýlisins.

Samkvæmt yfirlýsingunni hefur skýlið hýst fólk sem hafi verið „svipt grundvallarréttindum sínum og mannlegri reisn“ eftir að umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd hafi verið hafnað, þrátt fyrir að ekki hafi reynst mögulegt að flytja það úr landi.

„Þetta er því ekki hópur sem „neitar bara að fara“. Þetta er fólk sem ríkið hefur reynt að losa sig við, án árangurs, en neitar samt að veita því húsaskjól eða lágmarksöryggi,“ segir í yfirlýsingunni.

Þar kemur einnig fram að íbúar skýlisins hafi flúið meðal annars pólitískar ofsóknir, stríð, þrælahald og aðrar lífshættulegar aðstæður.

Stuðningsfólkið segir lokunina vera beina afleiðingu ákvörðunar dómsmálaráðherra Íslands og félagsmálaráðherra Íslands um að endurnýja ekki samning við Rauða krossinn um rekstur úrræðisins.

Með lokuninni hætti Rauði krossinn allri húsnæðisþjónustu fyrir flóttafólk hér á landi.

Í yfirlýsingunni er einnig gagnrýnt það sem kallað er „einangrunarbúðir“ ríkisstjórnar Kristrún Frostadóttir, svokallaða brottfararstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

„Klukkan 10 á morgun (í dag) munu stjórnvöld ekki leita neinna lausna á stöðu fólksins. Það verður einfaldlega fært til í kerfi sem firrar sig allri ábyrgð. Fólk á flótta skal hverfa úr augsýn almennings og verða að andlitslausum tölum sem hurfu,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.

Þá er varað við því að vistun fólks í slíkum búðum geti dregið úr líkum á að meint brot í málsmeðferð komi fram opinberlega.

„Með þessu gulltryggja stjórnvöld möguleikann á frekari brotum gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu,“ segir í yfirlýsingunni.

Að lokum kemur fram að vinir og stuðningsfólk íbúa skýlisins hyggist vera viðstödd þegar fólkinu verður vísað út úr úrræðinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna
Heimur

Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna

Donald Trump segist ekki ætla að skipta sér að framsalsmáli bræðranna
Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu
Pólitík

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð
Heimur

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum
Myndir
Fólk

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum
Myndir
Landið

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio
Pólitík

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu
Myndband
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

Daði og fjölskylda á ferð um landið
Myndband
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi
Landið

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi

Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Auðjöfurinn er styrktaraðili sjóðs sem styður ólöglegar landnemabyggðir
Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda
Innlent

Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela
Innlent

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands
Innlent

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands

Loka auglýsingu