1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

3
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

4
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

5
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

6
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

7
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

8
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

9
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

10
Innlent

Veðurskipti framundan

Til baka

Samband milli áfalla í æsku og kvilla á meðgöngu

Sérstaklega áberandi hjá konum sem hafa upplifað fjögur eða fleiri áföll

Fæðing
Myndin tengist fréttinni ekki beint
Mynd: Unsplash/Omar Lopez

Áföll í æsku (ACEs), svo sem ofbeldi, vanræksla og misnotkun, að alast upp í neikvæðu heimilisumhverfi sem og að verða vitni að ofbeldi gegn nánum ættingjum eða innan samfélagsins, getur haft skaðleg áhrif á þroska og heilsu barns. Að alast upp í slíku umhverfi getur valdið vanlíðan sem hefur seinna meir áhrif bæði á líkamlega og andlega heilsu einstaklingsins.

Þetta var viðfangsefnið í grein í tímaritinu Midwifery sem rannsóknarhópur Emmu Marie Swift, dósents í ljósmóðurfræði, og Helgu Zoega, prófessors í lýðheilsuvísindum, birti fyrr á árinu.

Birtar hafa verið nokkrar vísindagreinar út frá þessari rannsókn, þar sem nýtt eru gögn úr hinni viðamiklu rannsókn Áfallasaga kvenna. Rannsóknin sýnir er fram á þetta samband milli áfalla í æsku og heilsu seinna meir á lífsleiðinni. Erlendar rannsóknir hafa einnig bent á samband áfalla í æsku og kvilla á meðgöngu, svo sem meðgöngusykursýki, háþrýsting, þyngdaraukningu á meðgöngu og svo einnig kvíða og þynglyndis á meðgöngu.

Sérstaklega áberandi hjá konum sem hafa upplifað fjögur eða fleiri áföll

Helstu rannsóknarniðurstöður eru þær að konur sem hafa upplifað áföll í æsku eru líklegri til að líta svo á að fæðingin þeirra hafi verið neikvæð upplifun. Þessi tilhneiging er sérstaklega áberandi hjá konum sem hafa upplifað fjögur eða fleiri áföll, en þær voru tvisvar sinnum líklegri til að líta á fæðinguna sína sem neikvæða reynslu en konur sem ekki höfðu upplifað nein áföll í æsku.

Þessi tengsl áfalla í æsku og fæðingarupplifunar hafa ekki verið rannsökuð áður, svo vitað sé, og rannsóknin því mikilvæg viðbót við þekkingu á því hvað geti haft áhrif á hvernig konur upplifa fæðinguna. Niðurstöðurnar gefa tilefni til frekari rannsókna og umræðu um hvernig best sé að styðja við þennan hóp kvenna á meðgöngu, í fæðingu og eftir fæðingu.

Rannsóknin er hluti af verkefninu BirthSAGA sem hlaut verkefnastyrk frá Rannís og að því hafa komið samstarfsaðilar frá Miðstöð í lýðheilsuvísindum (Læknadeild) og námsbraut í ljósmóðurfræði við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild HÍ.

Rannsóknin er sú fyrsta sem birtist úr BirthSAGA-verkefninu en fleiri rannsóknir um upplifun af fæðingu eru í farvatninu og gert ráð fyrir að þær birtist síðar á þessu ári.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“
Fólk

„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“

Valur Gunnarsson veltir fyrir sér klíkuskap landans
Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum
Heimur

Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju
Heimur

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans
Heimur

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Sex manna fjölskylda brennd til bana
Myndband
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

Innlent

Veðurskipti framundan
Innlent

Veðurskipti framundan

Breytingar taka við á fimmtudag
Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Loka auglýsingu