1
Heimur

Gabriel Ganley fallinn frá aðeins 22 ára að aldri

2
Fólk

Landsliðskona Íslands ólétt

3
Heimur

Kona bitin á baðströnd á Lanzarote

4
Innlent

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á hættulegu spili

5
Heimur

Frakki sakaður um kynferðisbrot gegn leikskólabörnum

6
Innlent

Óvenjulegur þjófnaður í Laugardalnum

7
Heimur

Fullyrðir að Sarah Ferguson og Diddy hafi verið bólfélagar

8
Heimur

Fimm unglingar drukknuðu í hitabylgjunni um helgina

9
Fólk

Selja hrífandi einbýli í Kópavogi

10
Heimur

Sérfræðingar vara við nýju pungtrendi

Til baka

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni

„Ef sú víglína brestur drukknar heimsbyggðin í drullusvaði sem nú þegar nær víða í mitti.“

Kristinn Hrafnsson
Kristinn HrafnssonKristinn talar um gervigreind og áróður í nýrri Facebook-færslu
Mynd: HENRY NICHOLLS / AFP

Ritstjóri WikiLeaks, Kristinn Hrafnsson, segir mikilvægt að rýna í myndmál í fréttum og áróðri á tímum þar sem mörkin milli raunveruleika og tilbúins efnis séu sífellt að dofna.

Í Facebook-færslu fjallar hann um nýleg dæmi úr alþjóðlegu fréttastreymi og áhrif myndefnis á almenningsálit.

„Það er áhugavert fyrir blaðamanninn að fylgjast með myndmálinu í fréttastreyminu - fréttaljósmyndum og áróðri. Hér eru fjögur dæmi, tvær fréttaljósmyndir og tvö tilfelli um gervigreindartilbúning,“ skrifar Kristinn og birtir tvær fréttaljósmyndir frá grimmdarverkum Ísraela og tvær gervigreindarmyndir sem sýna Donald Trump sem Jesú og Legó-áróðursmynd.

„Ein mynd veldur óheyrilegum ímyndarskaða“

Kristinn nefnir fyrst ljósmynd sem hafi vakið mikla athygli:

„Ljósmyndin af ísraelska hermanninum sem er að mölva hausinn á styttu af Jesú á krossinum, sem fór á flug um liðna helgi er sterk og hefur líklegast valdið meiri skaða en fréttamyndir af fólki sem hefur verið stráfellt í hernámi Ísraels í suðurhluta Líbanons eða þeirri gjöreyðileggingu sem hefur fylgt þessu nýjustu landtöku brjálæðingana. Ein mynd veldur óheyrilegum ímyndarskaða.“

Mynd sem „segir meira en þúsund orð“

Hann vísar einnig í umdeilda forsíðumynd ítalska tímaritsins L’Espresso:

„Mynd tvö sem birt var á forsíðu ítalska blaðsins L’Espresso er einnig sterk og segir meira en þúsund orð. Grimmdarsvipurinn á ísraelska „landnemanum“ á Vesturbakkanum, í skjóli ísraelska hersins er táknræn fyrir stöðuna en hann snýr óifrýnilegum svip að palestínskri konu.“

Hann bendir á að viðbrögð Ísraels við myndinni hafi verið hörð:

„Ísrael mótmælti þessari myndbirtingu harðlega og kallaði hana einhliða brenglun, sviðsetningu, hatursglæp og jú jú - gyðingahatur. Það gerði þó ekki annað en að draga fram frekara myndefni frá þessum atburði og upptökur sem sýndu að engin sviðsetning var á ferð og vakti athygli á því sem var að gerast þarna, sum sé ísrelskt hertökulið að skemma fyrir óífuuppskeru Palestínumanna og gera það sem það gerir best - eyða.“

Gervigreind og áróður

Kristinn fjallar einnig um aukna notkun gervigreindar í áróðri:

„Á áróðurshliðinni hefur Íran tekið gervigreind í sína þjónustu og LEGO tónlistarmyndbönd farið um allan heim eins og eldur í sinu. Í propaganda slagnum hefur Íran forystu sem stendur og eru þarna að ná til unga fólksins með einföldum og snjöllum hætti.“

Hann segir mótleik Bandaríkjanna ekki hafa náð sömu áhrifum:

„Á móti þessu hefur bandaríkjastjórn birt áróðursmyndbönd af eigin her sprengja upp innviði og hertól en þau ná ekki máli gagnvart LEGO köllunum í svölum rapp-lögum.“

Kristinn nefnir einnig dæmi um notkun gervigreindar af hálfu Donald Trump:

„Loks er Trump ötull við að nýta sér gervigreindina eins og í AI ljósmyndinni sem hann birti af sjálfum sér í hlutverki hins líknandi Krists. Þetta kallaði á svo heiftarleg viðbrögð að Bandaríkjaforseti neyddist til að taka myndina af eigin samfélagsmiðli (sem er fáheyrt) og reyndi síðan að útskýra að fyrir honum hefði þetta ekki verið jesúmynd heldur mynd af forsetanum sem lækni.“

Hann segir skýringuna ekki hafa sannfært marga:

„Sú „útskyring“ vakti hæðnisleg viðbrögð og raunar gerði illt verra því það fóru á flot hundruð gerfimynda af Dr. Trump í kjölfarið.“

Varað við óljósum mörkum sannleikans

Í lok færslunnar varar Kristinn við þróuninni:

„Hér eru skýrar línur á milli hins raunverulega og hins tilbúna. Þær markalínur eru þó að dofna hratt með aukinni tækni. Slagurinn við að standa vörð um sannleikana og staðreyndir er stríð þar sem óhlutdrægir blaðamenn verða að taka sér stöðu í framlínu. Ef sú víglína brestur drukknar heimsbyggðin í drullusvaði sem nú þegar nær víða í mitti.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Óvenjulegur þjófnaður í Laugardalnum
Innlent

Óvenjulegur þjófnaður í Laugardalnum

Segir Mossad hafa hótað sér vegna rannsóknar á þjóðarmorðinu
Heimur

Segir Mossad hafa hótað sér vegna rannsóknar á þjóðarmorðinu

Fimm unglingar drukknuðu í hitabylgjunni um helgina
Heimur

Fimm unglingar drukknuðu í hitabylgjunni um helgina

„Fá betri þjónustu fyrir sama pening“
Pólitík

„Fá betri þjónustu fyrir sama pening“

Rússar segjast leita að leynilegum stjórnstöðvum Úkraínu
Heimur

Rússar segjast leita að leynilegum stjórnstöðvum Úkraínu

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á hættulegu spili
Innlent

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á hættulegu spili

Helga Vala hamast gegn andstöðu við skjólshús Geðhjálpar
Innlent

Helga Vala hamast gegn andstöðu við skjólshús Geðhjálpar

Frakki sakaður um kynferðisbrot gegn leikskólabörnum
Heimur

Frakki sakaður um kynferðisbrot gegn leikskólabörnum

Svíar stórlækka verð í almenningssamgöngur
Heimur

Svíar stórlækka verð í almenningssamgöngur

Kona bitin á baðströnd á Lanzarote
Heimur

Kona bitin á baðströnd á Lanzarote

Landsliðskona Íslands ólétt
Fólk

Landsliðskona Íslands ólétt

Innlent

Óvenjulegur þjófnaður í Laugardalnum
Innlent

Óvenjulegur þjófnaður í Laugardalnum

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á hættulegu spili
Innlent

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á hættulegu spili

Helga Vala hamast gegn andstöðu við skjólshús Geðhjálpar
Innlent

Helga Vala hamast gegn andstöðu við skjólshús Geðhjálpar

Loka auglýsingu