1
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

2
Innlent

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

3
Fólk

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

4
Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin

5
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

6
Innlent

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn

7
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

8
Heimur

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok

9
Innlent

Eigendur Nettó dæmdir eftir áralanga deilu við aha.is

10
Heimur

Fyrrverandi ráðherra og frjálsíþróttakona meðal látinna á Spáni

Til baka

Sex mánaða barn lést eftir 11 daga siglingu yfir Atlantshafið

Barnið hafði verið flutt lífshættulega veikt á sjúkrahús á Tenerife

Strönd Tenerife
TenerifeMyndin tengist fréttinni ekki beint
Mynd: Hello Canary Islands

Sex mánaða gamalt barn, sem var bjargað úr báti með flóttafólki við Kanaríeyjuna El Hierro, er látið. Barnið hafði verið flutt lífshættulega veikt á sjúkrahús á Tenerife eftir að hafa fengið hjartastopp þegar báturinn kom að landi.

Samkvæmt stjórnvöldum á Kanaríeyjum tókst viðbragðsaðilum að endurlífga barnið á bryggjunni í La Restinga áður en það var flutt með þyrlu á háskólasjúkrahúsið Nuestra Señora de Candelaria á Tenerife. Barnið lést síðar í gær.

Þetta er annað dauðsfallið sem tengist bátnum. Við björgunaraðgerðir fannst einnig lík konu sem samferðafólk hennar greindi sem Binta Colly.

Báturinn lagði af stað frá Banjul í Gambíu og var um borð fólk frá Senegal, Gambíu, Gíneu og Malí. Hann fannst skammt undan El Hierro 22. júlí með 165 farþega innanborðs, þar af 110 karla, 42 konur og 13 börn, þar á meðal fjögur ungbörn.

Farþegarnir höfðu verið ellefu daga á siglingu yfir Atlantshafið við afar erfiðar aðstæður. Ástand margra var alvarlegt þegar þeir komu að landi og þurftu 23 tafarlausa læknisaðstoð. Af þeim voru 15 lagðir inn á sjúkrahús, þar á meðal sex mánaða barnið.

Atvikið varpar enn á ný ljósi á þá miklu hættu sem fylgir því að reyna siglinguna yfir Atlantshafið til Kanaríeyja, sem er talin ein mannskæðasta flóttaleið heims.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna
Fólk

Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna

Andri Már kveður leikskólann Baug eftir tæplega átta ár í starfi
Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn
Innlent

Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn

Dorrit skorar á forseta Ísraels að hleypa arabískum flokkum í ríkisstjórn
Pólitík

Dorrit skorar á forseta Ísraels að hleypa arabískum flokkum í ríkisstjórn

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn
Innlent

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn

Átta ára drengur skotinn til bana
Heimur

Átta ára drengur skotinn til bana

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta
Heimur

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta

Heimir Már skorar á Macron að undirbúa kjarnorkuvopn til notkunar
Innlent

Heimir Már skorar á Macron að undirbúa kjarnorkuvopn til notkunar

Sverrir segir íslamófóbíu byggja á vanþekkingu
Innlent

Sverrir segir íslamófóbíu byggja á vanþekkingu

Segir öfgaíslamista og öfga hægrimenn eiga margt sameiginlegt
Pólitík

Segir öfgaíslamista og öfga hægrimenn eiga margt sameiginlegt

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“
Pólitík

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“

Íslenskir sérfræðingar vara við of lítilli þátttöku í brjóstaskimun
Innlent

Íslenskir sérfræðingar vara við of lítilli þátttöku í brjóstaskimun

Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Lögreglan óttast að ofbeldisfullar óeirðir brjótist út á Tenerife á morgun
Ian McKellen minnist Patrick Stewart
Heimur

Ian McKellen minnist Patrick Stewart

Átta ára drengur skotinn til bana
Heimur

Átta ára drengur skotinn til bana

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta
Heimur

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta

Skoska lögreglan rannsakar tengsl Andrews við Epstein
Heimur

Skoska lögreglan rannsakar tengsl Andrews við Epstein

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu
Myndband
Heimur

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu

Loka auglýsingu