Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli

Gæti átt yfir höfði sér fjög­urra ára fang­elsi

Sá seki og flamingóinn
Sá seki og flamingóinn Maðurinn hafði drukkið allt að 40 bjóra dag­inn örlaga­ríka Mynd: Lögreglan í Las Vegas

Kanadískur maður var á mánu­dag sak­felldur fyrir dýra­níð í Las Vegas eftir að hafa stolið flamingófugli af spila­víti þar sem hann var í fríi fyrr á þessu ári.

Mitchell Fairbarn, 34 ára, frá mið­hluta Ontario í Kanada, á yfir höfði sér allt að fjög­urra ára fang­elsi fyrir þjófn­að­inn. Hann stal fugl­inum 3. mars frá Flamingo Las Vegas-hót­el­inu og spila­vít­inu.

Fairbarn bar vitni um að hann hefði drukkið á bil­inu 30 til 40 bjóra dag­inn sem þjófn­að­ur­inn átti sér stað. Um klukkan fimm um morg­un­inn ákvað hann að skoða fugl­ana í aðstöðu spila­vít­is­ins þar sem flamingó­fuglar eru hafðir, sam­kvæmt frétt sjón­varps­stöðv­ar­innar KVVU-TV í Las Vegas.

Fairbarn sagði að hann hefði verið ölv­aður, svefn­vana og í sím­tali þegar hann fór inn á svæðið til að skoða fugl sem hann taldi hafa „ójafna“ vængi.

Á ein­hverjum tíma­punkti greip hann annan flamingófugl, sem heitir Peachy, um háls­inn. Hann sagð­ist hafa gert það í „fárán­legu flippi“. Síðan fór hann með fugl­inn í lyftu upp á hót­el­her­bergi sitt og skildi hann eftir á gang­inum fyrir utan her­bergið.

Á mynd­bands­upp­töku af atvik­inu heyr­ist Peachy skrækja þegar Fairbarn grípur fugl­inn, sam­kvæmt breska dag­blað­inu The Guardian.

Sér­fræð­ingar báru vitni um að fugl­inn hefði orðið fyrir fjaðra­skemmdum og blóð­missi vegna með­ferðar Fair­barns. Dýra­læknir sagði fyrir dómi að Peachy væri nú kvíðn­ari í návist fólks en áður.

Kvið­dómur ræddi málið í nokkrar klukku­stundir áður en Fairbarn var sak­felldur fyrir alvar­legt og væg­ara brot á lögum um dýra­níð.

Dómur yfir honum verður kveð­inn upp 1. des­em­ber. Hann er enn í stofu­fang­elsi í Las Vegas og hefur ekki getað snúið aftur til Kanada frá því hann var hand­tek­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Blaðamaðurinn Julia Raeside segir þekkta menn starfa áfram í skemmtanabransanum þrátt fyrir ásakanir um kynferðisbrot.

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

Tvö alvar­leg umferð­ar­slys á sama veg­ar­kafla á Tenerife