1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

4
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

5
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

6
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

7
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

8
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

9
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

10
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Til baka

Starfsmaður Sky Lagoon fær ekkert frá fyrirtækinu eftir vinnuslys

Fyrirtækið hafnaði ábyrgð

Sky Lagoon
Sky Lagoon
Mynd: Laurenmcl/Wikipedia

Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað fyrirtæki sem rekur baðlónið Sky Lagoon af kröfu fyrrverandi starfsmanns um viðurkenningu á skaðabótaskyldu vegna vinnuslyss sem hún varð fyrir í lok árs 2021 þegar hún rann á blautu gólfi í búningsklefa og hlaut heilahristing.

Konan höfðaði málið í október 2025 og krafðist þess að viðurkennt yrði að vinnuveitandinn bæri ábyrgð á líkamstjóni sem hún varð fyrir 30. desember 2021. Samkvæmt frásögn hennar var hún að sækja vaðskó áður en hún fór út í lónið þegar hún rann á blautum flísum, féll í gólfið og rak höfuð, öxl og mjöðm í skáp.

Í kjölfar slyssins leitaði hún læknisaðstoðar og greindist með heilahristing. Hún lýsti því að hafa glímt við langvarandi einkenni, meðal annars höfuðverki, svima, þreytu, minnisskerðingu, ljós- og hljóðfælni, kvíða og þunglyndi. Sjúkratryggingar Íslands og launþegatrygging vinnuveitandans höfðu áður viðurkennt bótaskyldu og konan fékk greiddar bætur úr tryggingunni.

Stefnandi hélt því fram að gólf í búningsklefanum hefðu verið óforsvaranlega hál og að stjórnendur hefðu lengi vitað af vandanum án þess að grípa til fullnægjandi úrbóta. Fyrrverandi starfsmenn báru fyrir dómi að starfsmenn hefðu ítrekað bent á slysahættu vegna blautra gólfa og að rætt hefði verið um að leggja mottur á gólfið, en það hefði ekki verið gert.

Fyrirtækið hafnaði ábyrgð og vísaði meðal annars til þess að gólfefnið uppfyllti gildandi kröfur og að reynt hefði verið að draga úr slysahættu með reglulegri þurrkun gólfa, sérstökum efnum á flísum og viðvörunarskiltum.

Dómurinn féllst á að bleyta og hálka væru eðlilegur fylgifiskur starfsemi baðlóns og að ekki yrði gerð sú krafa að útiloka mætti alla fallhættu. Þá taldi dómurinn að stefnandi hefði ekki sýnt fram á að flísarnar uppfylltu ekki lögbundnar öryggiskröfur eða að vinnuveitandinn hefði sýnt af sér saknæma vanrækslu.

Þótt fyrirtækið hefði ekki tilkynnt slysið til Vinnueftirlitsins innan lögboðins frests taldi dómurinn að sú vanræksla hefði ekki haft áhrif á sönnunarstöðu málsins. Var fyrirtækið því sýknað af kröfum konunnar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Eva Hauksdóttir tjáir sig um frávísun í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem ákærður var fyrir að valda dauða móður hennar.
Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

Ísraelskir ráðherrar leiddu kröfugöngu um nýjar landnemabyggðir á Gaza
Myndband
Heimur

Ísraelskir ráðherrar leiddu kröfugöngu um nýjar landnemabyggðir á Gaza

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin
Myndband
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

Sprenging skók alríkisbyggingu í New York
Myndband
Heimur

Sprenging skók alríkisbyggingu í New York

Ellefu ára drengur lést í fjallgöngu með föður sínum
Heimur

Ellefu ára drengur lést í fjallgöngu með föður sínum

Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Eva Hauksdóttir tjáir sig um frávísun í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem ákærður var fyrir að valda dauða móður hennar.
Ofurverð á Íslandi fær fólk til að hlæja og gráta
Innlent

Ofurverð á Íslandi fær fólk til að hlæja og gráta

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Markús endaði á bráðamóttöku eftir árás nágrannans
Innlent

Markús endaði á bráðamóttöku eftir árás nágrannans

Vinsæl leikföng tekin af markaði vegna köfnunarhættu
Innlent

Vinsæl leikföng tekin af markaði vegna köfnunarhættu

Loka auglýsingu