1
Pólitík

Hrafn hæðist að nýjasta útspili Miðflokksins

2
Peningar

Fyrrum útrásarvíkingur reisir lúxushótel og þyrlupall á Snæfellsnesi

3
Peningar

Óli Stef stofnar fyrirtæki með dóttur sinni

4
Innlent

Fagnar dómnum yfir Friðgeiri

5
Fólk

„Eru allir gengnir af göflunum að taka þátt í að normalisera AI ógeð?“

6
Heimur

Vilhjálmur og Katrín rjúfa þögnina eftir nýjustu Epstein-skjölin

7
Fólk

„Hvað er nú í gangi?“

8
Heimur

Hvít-Rússnesk kona sögð aðalerfingi Jeffrey Epstein

9
Pólitík

Oddviti Miðflokksins í Reykjavík með lögheimili í Portúgal

10
Fólk

Klassíkt einbýli í náttúruparadís til sölu

Til baka

Telur áhyggjur af kynfræðslu oft byggðar á misskilningi

„Við sjáum þetta frekar sem mikilvægt samstarf“

steinn jóhannsson
Steinn Jóhannsson, sviðstjóri skóla- og frístundasviðsVar rektor MH í mörg ár.
Mynd: Gunnar G. Vigfússon/Reykjavíkurborg

Vika6 er gengin í garð en í þeirri viku er starfsfólk grunnskóla, leikskóla, félagsmiðstöðva og frístundaheimila Reykjavíkur hvatt til að setja kynheilbrigði í forgrunn og bjóða upp á fjölbreytta aldursviðeigandi kynfræðslu.

Mannlíf ræddi við Stein Jóhannsson, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur um vikuna.

„Vika6 hefur gengið vel síðastliðin ár og fer hún sífellt stækkandi þar sem fleiri starfsstaðir innan borgarinnar taka þátt í verkefninu en einnig önnur sveitarfélög á landinu,“ sagði Steinn þegar hann var spurður um gengi Viku6 á undanförnum árum.

Hluti af íslenskum lögum

Fáar en háværar raddir hafa á síðustu árum gagnrýnt kynfræðslu borgarinnar og telja ekki rétt að borgin sjái um kynfræðslu. Steinn lítur kynfræðslu á samstarfsverkefni milli heimila og borgarinnar.

„Það má vel vera að sumum finnist það ekki vera hlutverk borgarinnar að veita kynfræðslu en við sjáum þetta frekar sem mikilvægt samstarf á milli skóla, frístundastarfs og heimilis þar sem allir þeir aðilar eru mikilvægir aðilar í kynfræðslu,“ sagði Steinn.

„Með kynfræðslu er þó borgin að uppfylla skyldur sínar en samkvæmt íslenskum lögum, menntastefnu stjórnvalda, aðalnámskrá grunnskóla, samþykktum þingsályktunum og alþjóðlegum samningum eru íslensk stjórnvöld skuldbundin að tryggja fræðslu um kynheilbrigði, mannréttindi og kynjajafnrétti í skólakerfinu. Áhyggjur fólks um kynfræðslu snúa þó oft að misskilningi á hvað felst í kynfræðslu. Kynfræðsla snýst um að efla kynheilbrigði ungs fólks á aldursviðeigandi hátt, þar sem rýnt er í félagslega, tilfinningalega, líkamlega og andlega þætti.“

Þema í Viku6 þetta árið er öryggi og ofbeldi og var það valið af unglingum borgarinnar með rafrænni kosningu. Steinn segir að Jafnréttisskóli Reykjavíkur sjái um skipulag vikunnar hér á skóla- og frístundasviði og útbúi fræðsluefni sem starfsfólk geti nýtt í kennslu og starfi með börnum og unglingum. Þá segir hann einnig að börn og ungmenni í Reykjavík hafi ítrekað bent á að þau vilji meiri fræðslu um mörk, samþykki og samskipti ásamt því hvernig hægt sé að bregðast við þegar eitthvað veldur óöryggi.

Í Viku6 í ár verður meðal annars fjallað um:

Öryggi og mörk: samþykki, að setja og virða mörk, og að þekkja óheilbrigð samskipti.

Ofbeldi og áreitni: hvernig það birtist, hvernig hægt er að bregðast við og hvert má leita.

Samskipti og tengsl: vinátta, virðing, fjölbreyttar fjölskyldur og sambönd.

Réttindi barna: Barnasáttmálinn, áhrif samfélagsmiðla og að þekkja eigin raddir.

En hver eru helstu áhrifin sem Vika6 hefur haft á ungt fólk?

„Kynfræðsla, líkt og farið er í í Viku6 er ein helsta forvörnin gegn kynferðislegu ofbeldi og bættu kynheilbrigði og því er okkar trú að Vika6 valdefli ungt fólk og hefur góð áhrif á líðan þeirra. Við erum stolt af Viku6 og hvernig móttökurnar hafa verið,“ sagði Steinn að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Kona dæmd fyrir að ráðast á fyrrverandi sambýlismann
Innlent

Kona dæmd fyrir að ráðast á fyrrverandi sambýlismann

Árásin átti sér stað innandyra á Seltjarnarnesi
Innkalla kex vegna aðskotahluta
Innlent

Innkalla kex vegna aðskotahluta

Þegar fjölskyldan gleymdi afmælinu kom pítsastaðurinn til bjargar
Heimur

Þegar fjölskyldan gleymdi afmælinu kom pítsastaðurinn til bjargar

Jón Gnarr vill reisa klaustur í Viðey
Pólitík

Jón Gnarr vill reisa klaustur í Viðey

Sakaði forseta Alþingis um þöggun
Myndband
Pólitík

Sakaði forseta Alþingis um þöggun

Streymari kaupir húsið úr Breaking Bad
Heimur

Streymari kaupir húsið úr Breaking Bad

Fjögur á sjúkrahúsi eftir alvarlegan árekstur á Tenerife
Heimur

Fjögur á sjúkrahúsi eftir alvarlegan árekstur á Tenerife

Guðmundur segir íbúalýðræði notað sem yfirskin fyrir útilokun
Innlent

Guðmundur segir íbúalýðræði notað sem yfirskin fyrir útilokun

Stuðningsfulltrúi oddviti Sósíal­ista í Reykja­vík
Pólitík

Stuðningsfulltrúi oddviti Sósíal­ista í Reykja­vík

Ísrael undirbýr aftökur palestínskra fanga
Heimur

Ísrael undirbýr aftökur palestínskra fanga

Óli Stef stofnar fyrirtæki með dóttur sinni
Peningar

Óli Stef stofnar fyrirtæki með dóttur sinni

Fundu málverk af syni sínum á „draugalegu“ gistiheimili
Heimur

Fundu málverk af syni sínum á „draugalegu“ gistiheimili

Innlent

Kona dæmd fyrir að ráðast á fyrrverandi sambýlismann
Innlent

Kona dæmd fyrir að ráðast á fyrrverandi sambýlismann

Árásin átti sér stað innandyra á Seltjarnarnesi
Stjórn Bifrastar boðar sáttaferli eftir niðurstöðu siðanefndar
Innlent

Stjórn Bifrastar boðar sáttaferli eftir niðurstöðu siðanefndar

Innkalla kex vegna aðskotahluta
Innlent

Innkalla kex vegna aðskotahluta

Guðmundur segir íbúalýðræði notað sem yfirskin fyrir útilokun
Innlent

Guðmundur segir íbúalýðræði notað sem yfirskin fyrir útilokun

Lykt varð til þess að lögreglan mætti
Innlent

Lykt varð til þess að lögreglan mætti

Fagnar dómnum yfir Friðgeiri
Innlent

Fagnar dómnum yfir Friðgeiri

Loka auglýsingu